• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

2bæingarnir mæta
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 07. ágúst 2008 12:36
Í dag mæta þeir óransklæddu í siðmenninguna, þeir þeir verða þess heiðurs aðnjótandi að fá að spila leik gegn Val á glæsilegasta heimavelli landsins.
Fyrri leikur liðana endaði ekki vel fyrir okkur Valsmenn, en Árbæingar höfðu sigur í Lautinni á okkar mönnum 2-0. Þó ekki séu nema nokkrar vikur liðnar frá þeirri rimmu, hefur staðan gjörbreyst í Landsbankadeildinni og mikið vatn runnið til sjávar í gríðarlega skemmtilegri 12 liða deild.

Fyrir ekki svo mörgum árum voru Fylkismenn með eitt burðugasta liðið í Landsbankadeildinni, ávalt hættulegir og í nokkur ár líklegir til að gera góða hluti og atlögu að titlum. Í ár er þó allt annað uppi á teningnum enda eru Fylkismenn í 3ja neðsta sæti, sem hlýtur að teljast mjög dapur árangur þar á bæ. Þeir hafa þó tekið nokkra kippi af og til í sumar, sem þó virðast alfarið bundnir við birtingu okkar hér á Valsarasíðunni, á frægri mynd af Leifi Garðarssyni, en hin margrómaða "Leifur Óheppni" mynd virðist á einhvern kosmískan hátt blása lífi í Fylkismenn við birtingu hér á síðunni.
Það þarf því vitanlega ekki að taka það fram, að allar slíkar myndir á síðunni hafa verið faldar hér , a.m.k. framyfir leik.
Svartagaldurs-lukka Fylkis, sem fylgt hefur myndbirtingunni verður því voanandi e-r staðar annarsstaðar.
Hvað varðar okkur Valsara, þá líta málin ansi vel út, sem verður að teljast magnað. Það er nefninlega ekki laust við það að stuðningsmenn Vals hafi verið með hjartað í buxunum eftir að bæði Pálmi Rafn og Birkir Már fóru að reyna fyrir sér útí hinum stóra knattspyrnuheimi, og margir sannfærðir að nú færi allt í handaskolan við það að missa slíka burðarása úr liðinu, en það verður ekki annað sagt en að Valsliðið hafi stigið upp, ungu strákarnir komið sterkir inn og Henrik Eggerts verið að sýna að þar fer verulega flinkur fótboltamaðursem fyllir skarð Pálma Rafns gríðarlega vel, a.m.k. það sem af er.Hlíðarendi

Mikil eftirvænting er fyrir leiknum meðal stuðningsmanna beggja vegna Elliðaár, enda er ljóst að um mikilvegægan leik er að ræða fyrir bæði lið, í þó mjög ólíkum skiliningi.
Vinni Valur, erum við ennþá alvöru toppbáráttukandídatar, en vinni Fylkismenn, ná þeir að skilja sig frá botnfallinu neðst á stigatöflunni. Á hinn bóginn er það svo fyrir þá appelsínugulu, að ef þeir tapa leiknum horfir sama strögglið við þeim og undanfarnar vikur, fallslagur og vonleysi.
Fylkismenn mega líka búast við verulega erfiðum leik á Hlíðarenda, enda er um gríðarlega erfiðan heimavöll að ræða, og brekkan brött fyrir þá að klífa á móti Valsliði sem er einfaldlega betra, og hefur sérstaklega verið að spila góðan leik á okkar glæsilega Vodafonevelli.
Það þýðir þó alls ekki að vanmeta Árbæinga, því að þeir hafa einmitt reynst skeinuhættir í 'stóru' leikjunum í sumar, og því alls engin lömb að leika sér við.

Annars er einfaldlega von á þrusuleik, og vonandi að sjá sem allra flesta stuðningsmenn Vals í stúkunni í kvöld.

N.b! Stuðningsmenn Vals hittast eins og alltaf á Hlíðarenda fyrir leik, þeir allra stundvísustu uppúr klukkan 5 og eru vitaskuld allir velkomnir.

Áfram Valur !

Digg    Facebook   
Besservisserar (11)add comment

Rauður said:

...
Rosalega er maður samt ánægður með það hvernig Willum kemur fram í sjónvarpi, alltaf faglegur og lætur ekki espa sig upp eða leiða sig útí neina vitleysu.

Svo er það magnað að Ásmundur skuli hafa dirfst að væla undan dómgæslu í leiknum, hvað vildi maðurinn eiginlega fá meira gefins ? Spurning um að hann taki sig saman í andlitinu og einbeiti sér að leik síns liðs frekar en að væla um dómgæslu.
11:50 | 12 ágúst | 2008

Sindri said:

...
Rauður farðu að taka typpið úr rassgatinu á þér....Fjölnir átti leikinn og líka leikinn á hlíðarenda.ótrúlegt alveg hvað við erum óheppnir gegn ykkur... og geimveran í liðinu ykkar þarf að fá atvinnuleyfi(Sibbi ógeðslegi typpahaus)
15:43 | 12 ágúst | 2008

Tryggvi said:

...
Mikill klassi yfir þessum skrifum hjá þér Sindri. Einhver þynka í gangi á þriðjudags eftirmiðdegi kannski?
16:28 | 12 ágúst | 2008 | url

Rauður said:

...
Nei, sko þig, kanntu að segja typpi og rass. Duglegur strákur !

Munnsöfnuðurinn á þessum Grafarvogspjökkum er þeim til háborinnar skammar, og Fjölnisliðinu líka.
16:29 | 12 ágúst | 2008

Frelsarinn said:

...
Þetta lið í RIMLA-hverfinu gengur ekki heillt til skógar...
17:50 | 12 ágúst | 2008

Fjölnismaður said:

...
Það verður nú að segjast að dómgæslan hallaði ansi mikið á okkur, amk tvisvar fengu Valsmenn aukaspyrnu á hættulegum stað eftir að hafa flogið í jörðina við litla sem enga snertingu. Skil ekki af hverju hraustir menn láta sig detta svona auðveldlega, sjálfur myndi ég skammast mín. Við áttum að fá aukaspyrnu þegar Tommi var hindraður rétt fyrir utan teig, sá ekki hver en varnarmaður Vals hljóp bara beint fyrir hann þegar hann var að sleppa í gegn. Svo átti Sigurbjörn á fá rautt þegar hann gaf Gunnari Má olnbogaskot og ekki virtist það vera óvart, fór fullfrjálslega upp með olnbogann og gerði það líka í fyrri hálfleik en þá var hann reyndar á leið upp í skallabolta og tel ég það ekki viljaverk.

Þó var þetta engum að kenna nema okkur Fjölnismönnum, við fengum, líkt og á Hlíðarenda, böööns af færum sem okkur tókst ekki að nýta og eins og oft gerist eftir að hafa klúðrað mörgum færum þá nær hitt liðið að pota inn sigurmarkinu. Hefðum við nýtt brot af þessum færum hefðum við sett 5 mörk á ykkur. Þið voruð heppnir en heppni er hluti af boltanum eins og við allir vitum og þá sérstaklega KR-ingar (sigurmark úr víti á 93.mín á Fjölnisvelli í 1. umferð) : )

Takk fyrir leikinn en þær þakkir eru þó ekki ætlaðar Sigurbirni, mér fannst þetta ljótt olnbogaskot og hreinn skandall hjá dómaranum að reka hann ekki útaf.
20:24 | 12 ágúst | 2008

Valsari said:

...
Dómarinn í leiknum var mjög góður fyrir utan náttúrulega þegar hann gaf ykkur Fjölnismönnum vítaspyrnuna. Og þetta ''olngboga skot'' hjá bjössa var aldrei rautt...
23:08 | 12 ágúst | 2008 | url

valur said:

...
ólafur páll tók örugglega flestar dýfurnar í þessum leik.

Valsmenn eru að spila leikina þannig sem dugar til að sigra - ekkert minna né meira. Í bæði skiptin sem fjölnir jafnaði tóku Valsmenn sig á og skoruðu. fjölnir fékk gefins víti og Bjössi var réttstæður - sést vel á upptökunum.
12:33 | 13 ágúst | 2008

Frelsarinn said:

...
Magnað að Fjölnismenn séu að saka okkur um leikaraskap. Óli Palli minnti mann á Drogba þarna í tímabili, mátti ekki snerta hann. Tómas Leifsson datt líka ansi auðveldlega þegar vítið var dæmt...
13:18 | 13 ágúst | 2008

Sindri þroskaði said:

...
Gaman hvernig þessir sauðir þarna í Grafarvogi eru nýkomnir úr trjánum (allavega sumir). Hvernig þeir sjá ekki leikinn (kannski ekki nema von þar sem þeir einbeita sér meira af því að skíta menn út). Höfum spilað þarna 2 sinnum og í bæði skiptin hefur Bjössi strítt þessu liði þannig að svekkelsi er kannski skiljanlegt. En þegar hann stingur svona uppí þetta lið þarna þá var það alveg magnað. Gaman að svara svona fyrir sig. Skil ekki alveg textana þeirra né kommentin. Geimvera, typpahaus hvað eru þessi r krakkar að þvæla.
19:37 | 13 ágúst | 2008

Ási Sveinss said:

...
Svona, svona. Þeir eru nýkomnir í andsbankadeildina og vita bara ekki alveg hvernig á að haga sér hjá stóru strákunum. Við verðum bara að afsaka þá.
03:40 | 15 ágúst | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 07. ágúst 2008 12:41