• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Viðtal við stuðningsmann ÍA
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 30. ágúst 2008 10:15
 

Til að dýpka aðeins umfjöllun okkar á www.valsarar.is báðum við Þröst Þráinsson einn af harðari stuðningsmönnum ÍA um að svara nokkrum spurningum um Skagaliðið. Svör Þrastar eru um margt athyglisverð og ættu að gefa mönnum ágæta innsýn um hvað merkingu fótboltinn á Akranesi hefur fyrir bæjarfélagið og hvers vegna þeir standa öðrum félögum framar í unglingastarfi.


 

 

 


 
 

Hverjar voru væntingar stuðningsmanna ÍA fyrir þetta tímabil?

 

Ég held að flestir hafi búist við viðlíka eða betri árangri en náðist í 2007. (3.sætið) Leikirnir á undirbúningstímabilinu voru mun betri en á sama tíma í fyrra og betri úrslit náðust. Liðið vann t.d sannfærandi sigur á KR í deildarbikarnum rétt fyrir mót. Stórt tap fyrir Valsmönnum strax í kjölfarið virtist hinsvegar slá liðið dálítið út af laginu. Framhaldið er síðan búið að vera martröð. Hver hefði trúað því ?

 

 

 

Hvaða leikmenn hafa staðið sig best í sumar og hverjir hafa valdið mestum vonbrigðum?

 

Árni Þór Hallgrímsson hefur staðið sig einna best í sumar. Ég held hreinlega að ég muni ekki eftir sumri þar sem eins margir leikmenn hafa spilað undir getu. Ég er lítið fyrir að taka staka menn út þar sem þetta er hópíþrótt og liðið stendur og fellur sem ein heild. Ég verð þó að nefna það að þeir fjórir útlendingar sem áttu að styrkja okkur hafa allir klikkað í sumar. Það eitt og sér er ótrúlegt sérstaklega í ljósi þess að tveir af þeim leikmönnum spiluðu frábærlega árið á undan og voru með betri mönnum á mótinu þá. Þeir tveir sem bættust við fyrir þetta tímabil gerðu því miður lítið annað en að búa til stórt spurningarmerki á Akranesi.

 

 

 

 

 

Skagamenn hafa verið góðu vanir sem stuðningsmenn síðustu 50-60 árin. Það eru sjö ár síðan ÍA var síðast í toppbaráttu. Virkar þetta ekki eins og heil eilífð miðað við fyrri tíð?

 

Það er rétt að Skaginn er með bestu tölfræði allra liða á Íslandsmótinu síðan þeir byrjuðu að keppa á þessum vettvangi. Það hafa hafa hinsvegar komið "gúrkútíðir" áður eins og gengur og gerist. Við höfum t.d fallið áður en ávalt komið mjög sterkir til baka. Þriðja sæti í fyrra var að vísu ekki langt frá efstu liðunum en auðvitað sakna allir þess að sjá Skagaliðið í alvöru toppbaráttu. Annars er ég bara 36 ára svo að ég ætla "bara" að svara fyrir c.a 30 ár. Þau ár hefur maður kannski verið ofdekraður í árangri. Þannig að jú sjö ár eru ansi langur tími í mínum huga. Því miður líta þau út fyrir að ætla að vera fleiri.

 

 

 

 

 

Guðjón Þórðarson var óumdeildur konungur íslenskra þjálfara fram að þessu tímabili. Hvernig mun sagan dæma hann þá aðallega vegna árangursins í sumar auk "kjúklinga" ummæla hans í KR-útvarpinu?

 

Guðjón er vissulega einn hæfileikaríkasti þjálfari sem við Íslendingar höfum átt. Ef ekki sá besti. Ferill hans sem og annara þjálfara er metinn í árangri. Hans árangur er heilt yfir góður með fáeinum undantekningum. Guðjón á jafnframt mörg glæsilegustu þjálfaraafrek Íslandssögunnar á sinni ferilsskrá. Það er hinsvegar ljóst að ef menn eru ekki tilbúnir til að axla ábyrgð á slæmu gengi sjálfir að þá eru þeir á rangri braut. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki til fullnustu "kjúklingasalats" skotið. Ef átt er við að efniviðurinn sé ekki nægjanlega góður á Akranesi þá skal bent á að 2. flokkurinn er í toppbaráttu á Íslandsmótinu. Eftir að Arnar og Bjarki tóku við þá hafa nokkrir þessara stráka komið inn í liðið undir erfiðum kringumstæðum og staðið sig mjög vel. Kannski að Afturelding sé að leita að þjálfara? Mér skilst að það sé "sponsorað" í kjúklingum í Mósó.

 

 

 

 

 

Eftir á að hyggja, sjá Skagamenn ekki hrikalega eftir því að hafaráðið Guðjón árið 2006 og fórnað í staðinn tvíburunum og í raun líka Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni? Var Guðjón einfaldlega of stórt nafn til að hafna?

 

Það er gott að vera vitur eftir á. En vitandi hvaða árangri Guðjón Þórðarsson hefur náð í fortíðinni, þá hlaut hann að koma sterklega til greina sem þjálfari. Guðjón vann grettistak með liðið í fyrra og náði þá árangri langt umram vonir. Í ljósi þess er þetta hrikalega gengi í ár efni í góða vísindaskáldsögu. Ég held hreinlega að Guðjón hafi verið brottnuminn af geimverum fyrir þetta tímabil og einhver annar settur í staðinn.

 

 

 

Hafþór Ægir var hinsvegar brottnuminn af ykkur Valsmönnum. Honum verður skilað aftur ekki satt ?

 

 

 

 

 

Mun ÍA geta haldið sínum bestu leikmönnum ef liðið fellur í haust?

 

Hvaða leikmenn okkar hafa vakið athygli annara liða í sumar?

 

 

 

Ég geri fastlega ráð fyrir því að ef menn fara með liðið niður að þá renni þeim blóðið til skyldunnar og komi liðinu strax aftur upp. Það er ekkert flóknara en það.

 

 

 

Hvers vegna nær Akranes að framleiða svo marga góða leikmenn á meðan önnur svipað stór bæjarfélög á landsbyggðinni gera það ekki? Er það útsýnið yfir til Reykjavíkur kannski?

 

Sjaldnast hafa Reykjavíkurrisarnir slegið Skaganum við í framleiðslu á góðum knattspyrnumönnum í gegnum tíðina ;) Hvað þá önnur landsbyggðarlið eins og þú segir. Það skapast viss hefð í kringum afreksmenn sem ungt fólk hefur svo sem fyrirmyndir og reyna að líkjast þeim og þannig skapast þessi sigurhefð. Það er ekkert öðruvísi á Skaganum.

 

 

 

Þegar ég var að sprikla í boltanum sem gutti, þá var Langisandurinn staður sem allir ungir Skagamenn gátu æft á og það jafnvel í hörkufrosti.  Slíkar aðstæður voru ekki sjálfsagðar á klakanum á árum áður. Kannski hefur það eitthvað haft að segja og byrjaði þannig.  Það var þannig að þegar ég var að alast upp þá fóru allir krakkarnir á Akranesi í fótbolta í öllum frístundum. Það var bara númer 1, 2 og 3 og ekkert var skemmtilegra í okkar huga.  Ég man það að áhuginn var svo mikill að það voru haldinn hverfamót og jafnvel mót á milli götuliða(!), skólamót, fótboltaskóli, osfrv. Allt var þetta aukalega fyrir utan æfingar hjá knattspyrnufélaginu ÍA. Fótbolti frá morgni til kvölds. Þannig var þetta bara og er ennþá að vissu leyti.

 

 

 

Arnar Gunnlaugsson talaði um á dögunum að það muni taka mörg ár að fletta ofan af vitleysunni sem á undan hefur gengið hjá ÍA. Hvenær búast Akurnesingar við að geta stimplað sig aftur inn sem topplið?

 

Þarna hittir Arnar naglan á höfuðið.

 

 

 

Ég hef þegar talað um þá erlendu leikmenn sem komu til okkar í sumar.

 

 

 

Þá hefur einnig verið haldið mjög rangt á spöðunum í málum er tengjast framtíðarmönnum og öðrum leikmannamálum. Mér er það mjög sárt að sjá uppalda og oft stórefnilega leikmenn fara á braut frá okkur og það oft ódýrt eða frítt til Reykjavíkurliðana eða í unglingalið stórklúbba í Evrópu. Skaginn hefur alltaf verið útungunarstöð efnilegra leikmanna. Því miður hafa margir þessara efnilegu leikmanna undanfarinn ár farið í aðra klúbba fyrir lítið. Fyrir Valsmenn að setja sig í sömu spor, að þá er þetta svipað og ef þið mynduð missa eitt stykki Birkir Már Sævarsson á hverju tímabili í önnur lið á Íslandi. Það er ekki alveg að gera sig er það?

 

 

 

Þrátt fyrir slakan árangur í ár þá virðist mér að haldið sé vel á spöðunum í stjórn félagsins núna. Það þarf að takast að halda okkar efnilegu leikmönnum hjá klúbbnum á komandi árum og þá verður því ekki langt að bíða að ÍA verði í fremstu röð á ný. Ég lít á það sem forgangsverkefni klúbbsins og algeran lykil að vexti. Takist það eru 3-4 ár í toppbaráttu.

 

 

 

Hvaða leikmann í Valsliðinu myndir þú helst vilja sjá hjá ÍA?

 

Hafþór Ægir Vilhjálmsson fyrst og fremst. Þið hafið fengið nóg frá okkur undanfarinn ár. Komdu heim Hafþór !  ;)

 

 

 

Hvaða skoðun hefur þú á Knattspyrnufélaginu Val:

 

a) Liðinu b) Þjálfaranum c) Stuðningsmönnunum d) Félaginu

 

Valsmenn mega vera stoltir af þeim góðu verkum sem hafa verið unninn í uppbyggingu klúbbsins.  Liðið er vel skipað þrátt fyrir að hafa misst sterka menn í atvinnumennsku undanfarið. Willum er klárlega einn allra besti þjálfari landsins. Það hefur hann sannað allstaðar þar sem hann hefur stigið niður fæti. Ekki bara með stórklúbba í Reykjavík. Heldur minni klúbba með minni fjárráð. Kvennaboltinn í félaginu er jafnframt til mikillar fyrirmyndar og sóma og er eftir því tekið. Stuðningsmenn standa svo þétt við bakið á klúbbnum á öllum vígstöðum. Hvort sem er í fótbolta eða handbolta. Til hamingju með þessa snillinga í handboltalandsliðinu og kvennalandsliðinu í knattspyrnu. Glæsilegur hópur og Íslandi til sóma!

 

 

 

Hvernig fer leikurinn á sunnudaginn?

 

Með það að leiðarljósi að Skaginn hefur aðeins unnið einn leik í allt sumar í deildinni og að hann vannst á sjálfsmarki andstæðingana þá er ég ekki bjartsýnn! Sú kalda staðreynd blasir við okkur að Valsarar geta rekið síðasta naglann í kistuna hjá okkur og sent okkur niður um deild. Valsmenn eru mun sigurstranglegri í þessum leik.

 

 

 

Ef þú vilt spá þá verð ég þó að vera bjartsýnn fyrir mína menn.

 

 

 

Valur-ÍA  1-2

 

 

 

Hafþór Ægir með mark Vals og Heimir Einars og Jón Vilhelm með mörk ÍA. Góða skemmtun!

 

 

 

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Laugardagur, 30. ágúst 2008 10:51