• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Skyldulesning !
Höfundur: Valli Valsari   
Föstudagur, 06. júní 2008 10:03
Ef þú kannt að lesa – þá verðuru að lesa þetta

Leikskrá okkar Valsmanna fyrir leikinn gegn Breiðablik er nú tilbúin og er hún sérstaklega athyglisverð að þessu sinni. Þar er að finna ansi áhugavert viðtal við Guðmund Benediktsson og söguna á bak við meiðslin. Gummi er ekki byrjaður að æfa en segist verða betri með hverjum deginum. Hvenær hann kemur aftur er þó óvíst.

Í leikskránni má einnig lesa pistil frá sjálfum Valla Valsara sem lætur menn svo sannarlega heyra það. Valli er þó ekki á því að grúfa sig í gras og byrja að gráta. Hann hefur sett saman kostulegan söngtexta við landsþekktan dægurlagaslagara, sem hann hvetur fólk til þess að leggja á minnið og syngja í stúkunni.

Meiðslalisti Valsliðsins og digurbarkalegar yfirlýsingar frá sjálfum Gilzenegger sem er mikill stuðningsmaður Breiðabliks eru einngi í skránni. Þar spáir Gillz 1:6 sigri Breiðabliks og reiknar fastlega með að Prinsinn setji þrennu.

Lesendur komast einnig að því hvar Baldur Aðalsteinsson fer í klippingu en hann er kallaður “Embættismaðurinn” af liðsfélögum sínum.

Láttu ekki leikskránna fram hjá þér fara á sunnudaginn.


Áfram Valur!

Digg    Facebook   
Besservisserar (2)add comment

jonas said:

...
Vill nú yfirleit ekki vara að argast út í dómara eftir leiki því oftast er maður bara pirraður út greyinn...En í þessum leik verð eg að vera sammála pistlahöfundi. Dómarinn og línuvörðurinn voru að gera eitthvað annað en að dæma fótbolta leik. Sat ágætlega á vellinum til að sjá hvað átti sér stað í fyrra spjaldi Atla...Í fyrsta lægi var Prinsinn rangstæður og átti að dæma hann það og ef það átti að gefa gulspjöld fyrir atganginn sem var á milli hans og Atla þá áttu þeir báðir að fá spjald. vítaspyrnudómurinn var bara djók og útafreksturinn líka....talandi um að sumir ættu að fá smá hvíld frá dómgæslu ...
18:12 | 11 júní | 2008

GJ said:

...
Sá einhvern leik með Val í fyrra í laugardalnum sem hann algjörlega náði að eyðileggja... Held ég hafi aldrei séð hann dæma leik hjá stórveldinu án þess að leikurinn fari algjörlega að snúast um hann og fótboltinn gleymist útaf pirringi. Hann dæmdi leik KR og Breiðablik fyrr í sumar og var hann gjörsamlega óhæfur í þeim leik... Stórbolurinn Henry Birgir talar um hann sem slakasta flautuleikarann á þessu tímabili og er það algjörlega spot on. Þessi gæji er djók og ég mæli með því að hann sleppi tveimur ljósatímum í viku og horfi á fótbolta í staðinn...

Áfram KR
08:13 | 12 júní | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:05