|
Höfundur: Valli Valsari
|
|
Fimmtudagur, 10. júlí 2008 14:02 |
Þegar Valli vaknaði í morgun var það fyrsta sem hann hugsaði: “Þetta er dagurinn”. Eftirvæntingin er mikil enda ekki á hverjum degi sem kr og Valur mætast á grasinu. Upp úr hádegi flaug Valli yfir Frostaskjólið og mætti honum þá megn mykjulykt. Í logninu í vesturbænum leið honum eins og í fjósi í kjósinni. Það hefur lengi verið orðrómur um að Frostaskjólið sé fullt af skít, miðað við mykjulyktina þar í hádeginu er sá orðrómur á rökum reistum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:05 |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Valli Valsari
|
|
Föstudagur, 06. júní 2008 10:03 |
Ef þú kannt að lesa – þá verðuru að lesa þetta
Leikskrá okkar Valsmanna fyrir leikinn gegn Breiðablik er nú tilbúin og er hún sérstaklega athyglisverð að þessu sinni. Þar er að finna ansi áhugavert viðtal við Guðmund Benediktsson og söguna á bak við meiðslin. Gummi er ekki byrjaður að æfa en segist verða betri með hverjum deginum. Hvenær hann kemur aftur er þó óvíst.
Í leikskránni má einnig lesa pistil frá sjálfum Valla Valsara sem lætur menn svo sannarlega heyra það. Valli er þó ekki á því að grúfa sig í gras og byrja að gráta. Hann hefur sett saman kostulegan söngtexta við landsþekktan dægurlagaslagara, sem hann hvetur fólk til þess að leggja á minnið og syngja í stúkunni.
Meiðslalisti Valsliðsins og digurbarkalegar yfirlýsingar frá sjálfum Gilzenegger sem er mikill stuðningsmaður Breiðabliks eru einngi í skránni. Þar spáir Gillz 1:6 sigri Breiðabliks og reiknar fastlega með að Prinsinn setji þrennu. Lesendur komast einnig að því hvar Baldur Aðalsteinsson fer í klippingu en hann er kallaður “Embættismaðurinn” af liðsfélögum sínum. Láttu ekki leikskránna fram hjá þér fara á sunnudaginn.
Áfram Valur!
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:05 |
|
Baldur Ingimar Aðalsteinsson að verða klár! |
|
Innsendir pistlar
|
|
Höfundur: Ási Sveins
|
|
Laugardagur, 31. maí 2008 14:32 |
Það var ánægjulegt að sjá Baldur spila í 60 mínútur með 23 liði okkar Valsmanna gegn Blikum á fimmtudagskvöldið. Það eitt ætti að segja manni það að hann verður í hóp á Mánudaginn þegar við sækjum Handboltafélag Kópavogs heim. Leikurinn hjá 23 liðinu endaði 5-4 fyrir Blikum sem voru með mjög öflugt lið meðal annars spiluðu bæði Prince og Nenad með liðinu. Markaskorarar Vals voru Albert Inga,Habbó úr víti, Atli Sigurðsson (Bróðir Ingólfs Sig) vonarstjörnu Vals. Og Guðmundur Steinn skoraði eftir glæsilegan undirbúning Arnars Sveins Geirssonar (Sveinssonar) og Baldurs Þórólfssonar. Sem fékk að líta á rauða spjaldið í lok leiksins fyrir kjaftbrúk.. Aðrir sem spiluðu þennan leik voru Rasmus Hansen, Baldur Bett, Ellert Eiríksson bróðir Bjarna Ólafs, Kristinn Geir, Ágúst Garðar ásamt fullt af 2.flokks strákum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:07 |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 3 |