• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Þetta er dagurinn
Höfundur: Valli Valsari   
Fimmtudagur, 10. júlí 2008 14:02
ImageÞegar Valli vaknaði í morgun var það fyrsta sem hann hugsaði: “Þetta er dagurinn”. Eftirvæntingin er mikil enda ekki á hverjum degi sem kr og Valur mætast á grasinu. Upp úr hádegi flaug Valli yfir Frostaskjólið og mætti honum þá megn mykjulykt. Í logninu í vesturbænum leið honum eins og í fjósi í kjósinni. Það hefur lengi verið orðrómur um að Frostaskjólið sé fullt af skít, miðað við mykjulyktina þar í hádeginu er sá orðrómur á rökum reistum.

Þrátt fyrir mykjuna er spenningur í Valla fyrir kvöldinu. Síðasti leikur “Vindsins” og löppin á Gumma virðist hanga inni. Einnig verður spennandi að sjá hvort Húsvíkingurinn númer 16 sýni sömu takta og í skjólinu í fyrra. Frammistaða Balla Q-ta síðasta sumar fer í bækurnar sem sú allra besta. Vesturbæingar voru með grasgrænu á rassinum eftir lipra takta Baldurs. kr liðið í ár virðist samt eiga lítið skylt með frammistöðu liðsins á síðasta tímabili. Snoðklipptur Takefusa sem minnir á Olgu Færseth í framlínunni hefur potað inn nokkrum mörkum, og sebrahesturinn er traustur í miðverðinum ásamt sérfræðingnum úr em stofunni. Stuðningsmannahópur kr-inga sem kallar sig, miðjan, er samansafn af mestu hrokagikkum landsins. Á spjallborði sínu halda þeir uppi digurbarkalegum yfirlýsingum um að dagurinn sé þeirra, og það sé nánast formsatriði fyrir Stórveldið að leggja Íslandsmeistarana af velli. Valli hefur hinsvegar alltaf haldið sig á jörðinni þegar kemur að yfirlýsingum. Það getur allt gerst og vissulega hafa kr-ingar verið að spila vel. En með toppleik okkar manna ættum við að hafa betur í baráttunni um borgina. Montkórinn í miðjunni virðist ekki fá leið á því að láta aðra klúbba vita hversu margir þeir séru, hversu góðir þeir séu, og hvað þeir hafa unnið marga titla. En þegar Jóhannes Valgeirsson blæs í flautuna og leikurinn byrjar skiptir það engu máli. Það eina sem skiptir máli er hjartað, og viljinn til þess að leggja hrokagikkina af velli. Og hjá Valla Valsara, þá er þetta dagurinn.

Áfram Valur!

Digg    Facebook   
Besservisserar (8)add comment

BJ said:

...
þakka stuðninginn! áfram fylkir
16:01 | 11 júlí | 2008 | url

TobbZ said:

...
Já flottir, vonandi tökum við Fylkismenn FH, áfram Fylkir. Nettir vonandi að þetta kveiki í okkar mönnum
16:38 | 11 júlí | 2008

TobbZ said:

...
Þess má líka geta að við styðjum okkar mann 100% hann Leif, Fylkir kemur með gott come-back í næstu leikjum
16:47 | 11 júlí | 2008

TryggviMB said:

...
Mikið rosalega er þessi mynd að virka vel. Legg til að hún verði fjarlægð af vefnum sem fyrst og notuð í algerri neyð t.d. þegar Fylkir mætir Keflavík, Fjölni, eða kr
01:09 | 14 júlí | 2008 | url

BJ said:

...
þetta svínvirkaði, kærar þakkir! áfram svona og áfram fylkir smilies/smiley.gif

kveðja úr árbæ!
08:20 | 14 júlí | 2008 | url

Tryggvi said:

...
Já var ekki Gaui Þórðar að leita að einhverjum svartagaldurslækni? Spurning með að fara photoshopa hann líka.
12:59 | 14 júlí | 2008 | url

Stjáni said:

...
Neinei algjör óþarfi að fara að veita skagamönnum eitthverja lækningu smilies/wink.gif er þetta ekki bara fínt eins og þetta er ?
23:03 | 14 júlí | 2008 | url

Frelsarinn said:

...
Hvernig væri að birta þessa mynd einu sinni enn fyrir Fylkir-Keflavík á mánudaginn?
17:48 | 25 júlí | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:05