|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Baldur Ingimar Aðalsteinsson að verða klár! |
| Innsendir pistlar | ||||
| Höfundur: Ási Sveins | ||||
| Laugardagur, 31. maí 2008 14:32 | ||||
|
Það var ánægjulegt að sjá Baldur spila í 60 mínútur með 23 liði okkar Valsmanna gegn Blikum á fimmtudagskvöldið. Það eitt ætti að segja manni það að hann verður í hóp á Mánudaginn þegar við sækjum Handboltafélag Kópavogs heim. Leikurinn hjá 23 liðinu endaði 5-4 fyrir Blikum sem voru með mjög öflugt lið meðal annars spiluðu bæði Prince og Nenad með liðinu. Markaskorarar Vals voru Albert Inga,Habbó úr víti, Atli Sigurðsson (Bróðir Ingólfs Sig) vonarstjörnu Vals. Og Guðmundur Steinn skoraði eftir glæsilegan undirbúning Arnars Sveins Geirssonar (Sveinssonar) og Baldurs Þórólfssonar. Sem fékk að líta á rauða spjaldið í lok leiksins fyrir kjaftbrúk.. Aðrir sem spiluðu þennan leik voru Rasmus Hansen, Baldur Bett, Ellert Eiríksson bróðir Bjarna Ólafs, Kristinn Geir, Ágúst Garðar ásamt fullt af 2.flokks strákum. Besservisserar (2)
![]()
Beggita
said:
|
|
... Eftir leikinn í kvöld held ég að liðið okkar þurfi að taka sig hressilega saman í andlitinu og bæði liðsmenn og þjálfari að spyrja sig og svara HREINSKILNISLEGA: Hvað er það sem LIÐIÐ ætlar að fá út úr þessu Landsbankamóti í sumar? Hvað ætla Valsmenn sér? Er það að verja titilinn og sýna þannig og sanna að Hlíðarendatröllin séu komin til að vera þar, eða á bara að láta þetta ráðast....? HVAR ER LEIKGLEÐIN...? HVAR ER LIÐSANDINN...? BARÁTTAN? HVAR ER SKEMMTILEGA SAMSPILIÐ OG SAMHELDNIN sem við sáum í fyrra og eins núna í vor? Varla bara hjá Gumma Ben? Auðvitað er margt búið að ganga á afturfótunum og margir lykilmenn meiddir...en státa ekki Valsmenn af því að eiga NÆGAN mannskap til að spila? Hvað er málið? Frá áhorfendabekkjunum séð virkar eins og liðið sé algjörlega viljalaust, sendingarnar eru ómarkvissar og kýlingarnar endalausr, loftboltarnir eru ekki að gera neitt fyrir spilið og menn eru ekki einu sinni meðvitaðir um stað og stund! Mér fannst pínlegt að heyra stuðningsmenn HK syngja: Meistari Valur, Meistari Valur Sefur þú? Sefur þú? Við hirðum stigin! við hirðum stigin! Eitt, tvö, þrjú! Eitt, tvö. þrjú! En...kannski höfðu þeir eitthvað til síns máls? KOMA SVO VALSMENN! UPP MEÐ BARÁTTUNA! HÖFUM GAMAN!!!! OG svo eitt enn: Það var LÉLEG mæting hjá okkar stuðningsmönnum í dag...það mættu alls 910 á Kópavogsvöll og þar af voru HK menn örugglega 800..... |
|
... Var að koma frá Liverpool seint í kvöld sá ekki leikinn. Hvurslags er þetta eiginlega? 2-4 tap á móti HK í kjölfar taps gegn Fylki að maður tali ekki um strögglið á móti Fjölni! Gott væri ef einhver kæmi með vitræna analýsu á leik og stöðu Valsmanna í upphafi þessa Íslandsmóts. Eru menn ekki tilbúnir í þennan slag? Var um að ræða heiftarlegt ofmat á okkar liði hjá forsvarsmönnum félaganna í vor. Hvað er í gangi? |