• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

43%
Höfundur: Ási Sveins   
Mánudagur, 22. september 2008 17:20
ImageValur hefur unnið 43% leikja í sumar og verður það að teljast slakur árángur. Hefði Valur verið með þetta hlutfall í 60-70 % og samt verið í 5. sæti þá hefði maður ekki getað sagt mikið en frammistaðan í sumar hefur engan vegin verið á pari. Við erum með miklu betra lið en það hefur sýnt og verður bara að segjast að alveg sama hvað kemur út úr tímabilinu þá geta Valsarar ekki verið ánægðir.....
Valur hefur unnið 43% leikja í sumar og verður það að teljast slakur árángur. Hefði Valur verið með þetta hlutfall í 60-70 % og samt verið í 5. sæti þá hefði maður ekki getað sagt mikið en frammistaðan í sumar hefur engan vegin verið á pari. Við erum með miklu betra lið en það hefur sýnt og verður bara að segjast að alveg sama hvað kemur út úr tímabilinu þá geta Valsarar ekki verið ánægðir. Þarna vil ég helst kenna leikmönnum um. Ekki fyrir að leggja sig ekki fram, heldur fyrir að hafa einfaldlega ekki mætt til leiks í sumar. Ég vona að þetta verði til þess að menn mæti miklu hungraðari, ákveðnari og öruggari á næsta tímabili.

Valur á eftir að vera að öllum líkindum með svolítið breytt lið næsta sumar og kemur til dæmis Kristján Hauksson inn í liðið þá. Einnig eigum við inni Dennis Bo Mortensen. Samningurinn hans rennur út eftir þetta tímabil en ég vona að Willum vilji hafa hann áfram en hann var að sýna virkilega flotta takta á undirbúningstímabilinu og var búinn að vera mjög heitur fyrir framan markið, grennri, hraðari og sýndi umfram allt gríðarlegt öruggi með boltann. Hann hefði eflaust verið okkur mikilvægur í sumar, jafnvel afgerandi en því miður lennti hann í Davíð Þór Viðarssyni sem slátraði honum eftirminnilega með ruddalegri tæklingu beint í hnéð (Dómarinn í þeim leik sá reyndar ekki ástæðu til þess að gefa honum nema gult spjald þegar að hann réttilega hefði átt að fá rautt og svo langt bann).
Steini hefur verið að sýna flotta takta í undanförnum leikjum og kemur vonandi sprækur inn í liðið á næsta tímabili. Gríðarlega öruggur á boltanum, marksækinn og umfram allt með alvöru Valshjarta.
Steinþór Gíslason er annar maður með Valshjarta og kemur hann eins og nýr maður inn í liðið enda ekki spilað í 2 ár. Mjög sterkur bakvörður og vona ég bara að hann nái að halda sér góðum og að hann eigi eftir að vera nokkurn vegin laus við meiðsli næstu árin.
Atli Sigurðsson kemur úr 2. flokki eftir þetta tímabil, en hann er búinn að skora grimmt í sumar. Vona að hann eigi eftir að sýna metnað og dugnað í að vera í baráttunni um sæti. Alveg ljóst samt að þarna er mikið efni á ferðinni.
Einar Marteinsson kemur úr 2. flokki einnig en hann er þó búinn að fá að spreyta sig soldið í sumar. Hann virkaði oft á tíðum óöruggur og klaufskur en átti þó mjög fína spretti inn á milli. Hann á klárlega eftir að koma meira og meira við sögu í liðinu vonandi strax næsta tímabil. Jafnvel í bakvörðinn.
Albert Brynjar bíður spenntur á bekknum og er hann enn eitt dæmið um að mikill hraði á eftir að koma inn í Valsliðið. Hann hefur virkað soldið óöruggur á boltanum í sumar en hefur engu síður verið duglegur að koma sér í stöðu og sýnt vilja til að skapa eitthvað. Þykir líklegt að hann verði byrjunarliðsmaður næsta sumar nema að eitthvað breytist. Eitt sem ég hef samt pælt með hann er hvort að það séi ekki hægt að spila honum á kanntinum.
Það má kannski verða pínu grófur og taka Baldur Aðalsteinss inn í þetta en það er ekki fjarri lagi að þarna séi nýr leikmaður með okkur næsta sumar. Hann hefur verið mikið meiddur í sumar og er enn að mér skilst. Þetta er klárlega einn besti leikmaður deildarinnar þegar að hann er heill og er lykilatriði að hann séi klár næsta sumar.

Eins og þið sjáið þá er framtíðin björt en finnst samt að það verði að fara að huga að ungu Völsurunum. Þegar að maður lítur aðeins niður í flokkana þá er ákveðið áhyggjuefni að þeir séu ekki að standa sig betur. Mér finnst svolítið leiðinlegt hvað það eru fáir uppaldir Valsarar sem voru í liðinu í sumar en þeir eru einungis 2 eftir að Birkir fór út.

Við stuðningsmennirnir ætlum að mæta tvíelfdir í næsta tímabil með sterkara og skemmtilegra Stuðarastarf. Auka við félagsmenn og vinna nánar með félaginu að skemmtilegri stemningu á vellinum. Held að það séi algjör samstaða með það. Vil minna menn á að vera vakandi fyrir tilkynningu um aðalfund sem að kemur vonandi á morgunn, ALLIR AÐ MÆTA!

Endilega hraunið nú yfir mig og látið í ykkur heyra með hvað ykkur finnst um þennan pistil.

ÁFRAM VALUR !!

Digg    Facebook   
Besservisserar (9)add comment

Larry said:

...
Bestur í sumar, KR-ingurinn Gummi Ben án nokkurs vafa!!!
10:45 | 25 september | 2008

Tryggvi said:

...
Gummi Ben er einn af fjölmörgum norðlendingum í okkar liði. Þetta áttu nú að vita Larry og óþarfi að uppnefna menn með þessum hætti.
11:20 | 25 september | 2008 | url

Larry said:

...
Ef það er eitthvað sem allir eiga að vita þá er það staðreyndin "Einu sinni KR-ingur, Alltaf KR-ingur". Ekki hjálpar það mönnum að rækta þennan sjaldgæfa hjartasjúkdóm sem sumir kalla Valshjarta þegar þeir líta upp í stúku á þessa 500 sjúklinga sem sjá sér fært að mæta á völlinn hjá ykkur.
12:43 | 25 september | 2008

Tryggvi said:

...
Já þetta KR -heilkenni hefur nú heldur ekki beint farið vel með menn. Góðir spilarar verða að meðalmönnum og efnilegir spilarar fuðra upp fyrir augum fólks.
13:39 | 25 september | 2008 | url

Larry said:

...
Ekki allir sem þola pressu þannig er það nú bara.
14:21 | 25 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Eitt er ljóst að ekki kemur hún úr stúkuni í skítaskjóli...menn kannski aðeins of uppteknir að stinga upp í sig sætindum....veit allavega að ónefndur Takefusa hefur verið það =)
17:06 | 25 september | 2008

cantona said:

...
Hvað veist þú um það hvað gerist í stúkunni? Það er ekki eins og þú hafir verið þar eitthvað í sumar, hvað þá aðrir hjartasjúklingar! Sætin á leiðarenda eru rykfallinn.

ALLIR ELSKA KR!!!!!!!!!!!!!!!!
KR ERU BESTIR!!!!!!!!!!!!!!!!!!
23:19 | 25 september | 2008

BJ said:

...
Ég mæti með básúnu, verður ekki stemning strákar?
23:24 | 25 september | 2008

Ási Sveinss said:

...
Þessir litlu kringar þarna eru alveg lýsandi fyrir sinn sauðahóp....
10:58 | 26 september | 2008

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:00