|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 29. september 2010 11:40 |
|

Íslandsmótinu í knattspyrnu 2010 er lokið. Valur endaði í 7. sæti á mótinu með 7 sigurleiki, 7 jafntefli og 8 tapleiki. Valur vann þrjá heimaleiki þetta árið en aldrei þessu vant lékum við 12 leiki á Vodafonevellinum. Velli sem hefur ekki verið aflasæll fyrir karlaliðið á meðan kvennaliðið landaði þar sínum þriðja Íslandsmeistaratitli. Þann leikvang þarf að gera að alvöru heimavelli ef menn ætla að stíga upp fyrir meðalmennskuna.
Aðrar helstu niðurstöður eru að Gunnlaugur Jónsson er horfinn á braut sem og stjórn knattspyrnudeildar með Börk Edvardsson í broddi fylkingar. Við þeirra hlutverkum hafa tekið þeir Kristján Guðmundsson með Frey Alexandersson til aðstoðar og Friðjón Friðjónsson verður væntanlega formaður knattspyrnudeildar. Er þeim óskað góðs gengis á komandi árum og vonandi tekst þeim að rífa karlaliðið upp úr þeirri lágdeyfð sem einkennt hefur það eftir að Íslandsmeistaratitillinn vannst.
Hvað þessa stuðningsmannasíðu varðar þá er komin ákveðin þreyta í þetta hjá okkur sem höfum sinnt henni. Vefsíðan hóf göngu sína á haustdögum 2002 á léninu valsarar.blogspot.com, varð síðar valsarar.tk, svo valsarar.net og loks valsarar.is með tilheyrandi útlitsbreytingum. Það hafa komið tímabil þar sem skrif hér hafa legið niðri en nú er líklega komið mál að linni.
Ef einhverjir hafa áhuga á að taka við léninu má hafa samband við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|
|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Föstudagur, 24. september 2010 13:39 |
|

Létt og nett Pub-Quiz eða Bar-Svar verður haldið í Fjósinu á Hlíðarenda fyrir heimaleik Hauka gegn Val. Þemað verður íslenskur fótbolti og því um að gera að hressa upp á gamlar heilasellur.
Fjósið opnar upp úr hádegi en stefnt er að byrja Bar-Svarið klukkan 13. Endilega komið og hitið upp fyrir lokaleik mótsins og ræðið helstu hitamál við aðra Valsara augliti til auglits. Léttar veitingar á boðstólum. Stuðningsmenn Hauka eru sérstaklega velkomnir, enda þeirra heimaleikur.
|
|
Fastir liðir eins og venjulega |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 20. september 2010 12:54 |
Það var kunnlegt stefið í leik Vals gegn Fram á sunnudaginn. Kvittað var út fyrir fínan fyrri hálfleik með slæmum seinni hálfleik og Framarar áttu ekki miklum vandræðum með að landa þremur stigum. Meira að segja í stöðunni 1-2 var Valsliðið gjörsamlega heillum horfið og hreinlega ótrúlegt til þess að hugsa að sama liðið hafi verið að leika báða þessa hálfleiki.
Eftir að hafa ráðið ferðinni í fyrri hálfleik þurfti Gunnlaugur að gera breytingu á Valsliðinu í leikhléi. Stefán Eggertsson meiddist og inn á kom Sigurbjörn Hreiðarsson. Rúnar Már var færður í vörnina en segja má að þessar hrókeringar hafi gefið sprækum leikmönnum Fram aukið rými til að ná tökum á miðjunni. Valsliðið sá varla til sólar það sem eftir lifði leiks og áttu erfitt með að ógna marki Fram.
Ljóst er að hlutskipti Vals þetta sumarið verður 6.-7. sæti og fyrirfram hefði það ekki komið á óvart. Hins vegar eru slæmu kaflarnir hjá liðinu búnir að vera of margir í sumar til að þessi árangur teljist ásættanlegur og ekki hægt að segja að liðið hafi nálgast toppliðin milli ára. Aðeins þrír heimaleikir hafa unnist í sumar og verður það að teljast verulegt áhyggjuefni hversu illa gengur að gera Vodafonevöllinn að almennilegu vígi.
Einn leikur er eftir af Íslandsmótinu og verða Haukar í hlutverki gestgjafans á Hlíðarenda. Nánar að því síðar.
|
|
Eitt inn á fimm stjörnu sýningu |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 13. september 2010 13:38 |
Fulltrúar Valsara.is voru fjarri góðu gamni í gær þegar Valsmenn röðuðu inn fimm mörkum á værukæra Stjörnumenn en hleyptu inn einu marki svona rétt til að leyfa gestunum að vera með skemmtiatriði. Hinir heimsfrægu Garðbæingar létu hins vegar Valsmönnum eftir sviðið og sýndu fádæma hógværð. Bæði lið svamla um miðja deild og greinilegt á tölum leiksins að stemmningin sem einkennt hefur Stjörnuna var Vals megin í þessum leik.
Helstu tíðindin leiksins er aftur á móti þau að KRistinn Jakobsson undirstrikaði að hann er hættur að vera KR-ingur. Víti og rautt spjald á andstæðinga Vals, skilaboðin verða ekki mikið skýrari til samsærisjúklinganna í Vesturbænum.
Næsti leikur er gegn Keflavík klukkan 17.15 á fimmtudaginn. Á tíma sem sér til að enginn vinnandi maður kemst með góðu móti.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 30. ágúst 2010 23:43 |
|

Stjórnarbani? Gunnlaugur gleðst hér með stjórn Selfoss
Valsmenn gerðu góða ferð á Selfoss á mánudagskvöldið eftir mikla dramatík í kjölfar háðulegrar útreiðar gegn KR fyrir viku síðan. Mörk frá Jóni Vilhelm, Arnari Sveini og Guðmundi Steini nægðu til að halda Selfyssingum í hæfilegri fjarlægð. Valsliðið fór upp fyrir Keflavík og Stjörnuna með þessum sigri og er stigi á eftir Fram.
Eftir það sem á undan er gengið var ánægjulegt að sjá liðið taka þrjú stig á útivelli en um leið má segja að Selfoss var ekki beint martraðar andstæðingur í þessari stöðu. Valsliðið stjórnaði leiknum að mestu og eftir að hafa náð 0-2 forystu var fátt sem benti til að heimamenn gætu komist inn í leikinn að nýju.
Gjafavörudeildin, eins og varnarlína Vals hefur gjarnan verið nefnd hér í sumar, sá þó um sína og Greg Ross rétti Sunnlendingum líflínu þegar hann líkti eftir símastaur og varði bakfallsspyrnu Sævar Þórs Gíslasonar. Vítaspyrna var ekki umflúin og má jafnvel velta fyrir sér hvort Gunnar Jarl hefði getað rekið Ross út af. Hinn ungi ofurdómari var þó skynsamur og lét gult spjald nægja. Valsmaðurinn Viktor Unnar steig á punktinn og skoraði af öryggi.
 Gunnar Jarl alltaf hress
Valsarar í stúkunni fóru að búa sig undir enn einn rússíbanann en Guðmundur Steinn gerði nánast út um leikinn skömmu síðar með þriðja marki Vals eftir laglega gegnum sendingu frá Baldri Aðalsteins. Selfyssingar voru ekki alveg af baki dottnir og minnkaði Sævar Þór muninn á ný um 10 mínútum fyrir leikslok en lengra komust lærisveinar Frelsarans ekki og Valsmenn lokuðu leiknum af öryggi.
Valsliðið leit þokkalega vel út í leiknum en sama skapi verður að athuga að andstæðingurinn var ekki beint sterkasta knattspyrnulið deildarinnar þótt leikmenn þess hafi látið finna vel fyrir sér. Sóknin gekk ágætlega á köflum en eftir að Arnar Sveinn varð fyrir hnjaski í lok fyrri hálfleiks skorti möguleikan á að sækja hratt upp völlinn. Haukur Páll var í fantaformi og eins var Martin Petersen ansi drjúgur en virtist þó spila Selfyssinga réttstæða í öðru markinu þeirra.
Heimavöllur Selfyssinga gæti orðið skemmtileg gryfja þegar fram líða stundir en hálfkláruð stúkan hafði af mér Fanta Lemon flösku. Það verður geymt en ekki gleymt.
Valur er kominn í sæti um miðja deild en Evrópusæti þarf ekki að vera það óraunhæft ef úrslit í innbyrðis viðureignum toppliðanna falla með okkur. Svo þarf Valur víst líka að taka ágætis sigurleikja hrinu í lok móts til að sá fjarlægi draumur rætist.
Landsleikjahlé er framundan og næst leikur Vals verður gegn Stjörnunni á Hlíðarenda þann 12. september. Nánar að því síðar.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 12:30 |
|
Enn einn skellurinn leit dagsins ljós hjá Val á Vodafonevellinum þegar KR-ingar komu í heimsókn á sinn eftirlætis útivöll. Aðeins Haukar hafa náð að taka stig af KR á nýja vellinum en Valur hefur tapað öllum sínum fjórum leikjum gegn KR og það sannfærandi í hvert einasta skipti. Engin breyting varð á því í gær og 1-4 tap hefði hæglega getað orðið mun stærra ef KR-ingar hefðu ekki slakað á klónni eftir að hafa náð öruggri forystu.
Eftir bærilegan fyrri hálfleik þar sem Valsmenn fengu þó nokkur færi til komast yfir kom að slæma kaflanum í seinni hálfleik hjá liði Gunnlaugs Jónssonar og þá var ekki að sökum að spyrja. Leikmenn Vals litu út eins og fallbyssufóðrið í nýjustu Stallone myndinni og áttu ekkert í Vesturbæinga.
Í fyrri leik liðanna tókst Valsmönnum að stöðva allt flæði í leik KR-inga en í gær var málum öfugt farið. Vængmenn KR sprengdu upp Valsvörnina hvað eftir annað og ljóst er að Rúnar Már Sigurjónsson verður líklega aldrei góður bakvörður þótt hann sé efni í prýðilegan miðjumann. Eins verður aðallega að setja spurningamerki við liðsval þjálfarans sem ákvað að nota Martin Petersen sem miðvörð fremur en bakvörð gegn liði sem er með sprækustu kantmenn deildarinnar.
Hinu megin átti Stefán í miklum vandræðum með Óskar Örn og hefði Arnar Sveinn mátt vera vakandi fyrir að hjálpa til í varnarvinnunni. Arnar sýnir oft lipra spretti en er enn frekar óheflaður og þarf greinilega meiri tíma til að verða að þeim öfluga leikmanni sem efni standa til. Ekki er úr vegi að spyrja sig hvort ekki megi nota Arnar Svein í framlínunni fremur en formlausan Íra og hafa Baldur Aðalsteinsson í sinni náttúrulegu stöðu á hægri kantinum.
Lítið hefur komið út úr Húsvíkingnum á vinstri helmingi vallarins en kannski á að láta hann spila þar þangað til að það virkar. Ljóst er að sóknarleikurinn er engu minni höfuðverkur en varnarleikurinn en einnig er það einkennandi fyrir Valsliðið hvað menn missa trú á verkefninu við að lenda marki undir. Kannski ekki að furða þegar sóknin er jafn bitlítil en Valsliðið þarf yfirleitt að hafa mikið fyrir hverju marki sem það skorar.
Það er jafn leiðinlegt að tapa fyrir KR og það er gaman að vinna það en mestu vonbrigðin er þau að hversu lítið erkifjendurnir virtust hafa fyrir sigrinum eftir fyrsta markið. Líkt og í öðrum tapleikjum Vals í sumar var liðið ágætlega inn í leiknum þar til að það lenti undir. Þessi úrslit koma ekki mikið á óvart miðað við það sem á undan er gengið á Íslandsmótinu en þegar andstæðingar Vals finna veiku blettina á liðinu þarf ekki að spyrja að leikslokum. Því miður hefur þjálfarinn ekki náð að stoppa í götin enn sem komið er og hreinlega farin að verða spurning hvort honum vinnist tími til þess.
Næsti leikur Vals fer fram á Selfossi klukkan 18 á mánudegi. Nánar að því síðar.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 22 |