|
Fyrsti úti sigur tímabilsins |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 23:45 |
|
Valur gerði góða ferð í Laugardalinn í kvöld og lagði að velli flökkufélagið Fram með mörkum frá besta framherja deildarinnar og besta bakverði deildarinnar. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun en þangað til mega menn endilega bauna inn skoðunum á leiknum.
|
|
|
Annar Valsari Evrópumeistari |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 31. maí 2009 18:01 |
 Ólafur Stefánsson tryggði í dag liði sínu Ciudad Real sigur í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Fyrir nokkrum dögum vann einmitt Eiður Smári einnig Meistaradeildartitil í knattspyrnu með Barcelona. Heldur betur góður árangur hjá þessum gömlu Valsmönnum á alþjóðavettvangi á innan við viku. Enn og aftur kemur ljós hversu mikilvægt veganestið vill oft reynast sem menn fá á Hlíðarenda.
|
|
Föstudagur, 29. maí 2009 00:38 |
 Valsarar voru mættir í Laugardalinn á leik tveggja Reykjavíkurstórvelda Fram og Vals í kvöld. Bæði lið höfðu staðið sig töluvert undir væntingum og uppskera beggja liða fyrir leikinn voru mögur fjögur stig. Því var um sannkallaðan sex stiga leik að ræða og tækifæri fyrir liðin að rétta skipið aðeins af.
|
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 11:36 |
 Í kvöld sækir meistaraflokkur karla heim erkifjendur okkar í Fram á Þjóðarleikvangnum, enda á Fram ekki heimavöll eins og allir vita. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og ljóst er að allt annað en þrjú stig í kvöld hækkar hitastigið undir stól þjálfarans enn frekar.
|
|
Fyrsti Valsarinn til að verða Evrópumeistari |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 28. maí 2009 00:49 |
 Eiður Smári Guðjohnsen sem hóf meistaraflokks feril sinn árið 1994 með Knattspyrnufélaginu Val varð í kvöld fyrstur leikmanna Vals til að verða Evrópumeistari og það í Meistaradeildinni sjálfri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Eiður braut ísinn með meistaraflokki Vals á sínum tíma og gekk svo til liðs við PSV Eindhoven. Nú hefur hann náð hæsta tindi eftir margar lægðir en botninum var án efa náð þegar hann var í hlutverki feitabollu í KR. Valsmaðurinn Guðni Bergsson hjálpaði til við að draga Eið Smára af upp af botninum á sínum tíma og restin er hluti af sagnfræðinni. Glæsilegt Eiður!
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 27. maí 2009 13:41 |
 Pétur Georg Markan er ekki par sáttur þessa dagana. Í viðtali við Hafliða Breiðfjörð á fótbolta.net virkar Pétur temmilega óánægður með að fá ekki tækifæri en í viðtali við Henrý Birgi virðist hann vera að ganga af göflunum. Hér er viðtalið við Pétur á fótbolta.net: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=76395 og síðan við Fréttablaðið: http://visir.is/article/20090527/IDROTTIR0101/346739834 Það er því spurning hvort að Pétur sé að fylgja í kjölfar þeirra Alberts Ingasonar og Kristjáns Haukssonar sem yfirgáfu Val nú á vordögum. Pétur hefur ýmislegt til síns máls og ótrúlegt að þjálfarinn skuli ekki nýta þá hraðamöguleika sem hann hefur fram yfir marga aðra leikmenn liðsins.
|
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 22 af 22 |