|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 04. júní 2009 13:58 |
 Valur dróst gegn Álftanesi í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í ár. Þetta ætti að geta orðið nokkuð þægilegur leikur fyrir okkar menn en Álftanes afrekaði að slá út 1. deildar lið ÍR í síðustu umferð. Knattspyrnufélagið Valur hefur ekki unnið bikarkeppnina síðan 2005 og er löngu kominn tími á 10 bikarinn á afrekaskrá meistaraflokks karla.
|
|
|
Fyrsta Lúkasarmál sumarsins |
|
Fimmtudagur, 04. júní 2009 12:27 |
 Hinn árvissi viðburður knattspyrnusumarsins er þegar einhver stuðningsmannahópur fær skömm í hattinn. Nú hefur þessi viðburður átt sér stað. Á internetinu logar allt í fólki sem móðgast sárlega fyrir hönd Hauks Inga og Ragnhildar Steinunnar. Allt vegna þess að einhverjar Garðabæjargelgjur voru að reyna að vera fyndnar á fótboltaleik. Eftir að hafa heyrt textann er ég ekki alveg að skilja hvar stóri skandallinn liggur. Kíkjum á þetta:
|
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 02. júní 2009 10:43 |
|
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að sjá sína menn taka á móti Þrótturum. Fyrir leikinn voru Valsmenn með sjö stig en Þróttarar með tvö. Leikurinn var síðasti leikurinn í hraðmótinu, eins og fyrstu umferðir Íslandsmótsins eru oft kallaðar, áður en landsleikjahléið skellur á og mikilvægt að fara inní það með sigri.
|
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 02. júní 2009 00:08 |
|
Valur vann mikilvægan 2-1 sigur gegn 10 leikmönnum Þróttar í kvöld. Segja má að Valsmenn rétt hangi inni í kapphlaupinu við FH sem byrja mótið með stæl enn eitt árið. Umfjöllun um leikinn kemur um hádegisbilið en þangað til er lesendum frjálst að skrá inn athugasemdir.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 01. júní 2009 13:11 |
 Í kvöld mæta Reykjavíkur Þróttarar í heimsókn á Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en Valsarar eru hvattir til að mæta í upphitun frá klukkan 18.00 í partý tjaldinu okkar sem er staðsett á bakvið fjósið. Þróttur bíður enn eftir sínum fyrsta sigri en Valur þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda til að missa ekki af toppbaráttunni þetta sumarið.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 31. maí 2009 14:48 |
 Valsarar.is komu inn á mál Péturs Georgs Markan á dögunum eftir að hinn framsækni leikmaður lét ginna sig í tvö viðtöl. Líkt og Valsarar.is bentu á var Pétur sæmilega ósáttur í viðtali við Hafliða Breiðfjörð en hjá Henrý Birgi var ekki annað að lesa en að verulega þungur tónn væri í Valsmanninum. Eðlilega var Pétur tekinn á teppið hjá Willum en samkvæmt heimildum Valsara.is ku Pétur ekki vera par sáttur við æsifréttamennskuna sem var undirliggjandi í grein Fréttablaðsins. Reyndar segir sagan að Pétur kannist bara alls ekki við þetta viðtal og sé meira en sáttur hjá Val hvað svo sem íþróttafréttamönnum dettur í hug að skrifa. Það er sem sagt ekkert að Markan.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 21 af 22 |