|
Fleiri námskeið fyrir Willum |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 22. júní 2009 22:58 |
 Þorgrímur Þráins lagði línurnar í kvöld og það var ekki að sökum að spyrja. Pétur Georg Markan sýndi að það er ekkert sem amar að honum og gaf tóninn eftir 7-8 sekúndur. Það er þá nákvæmlega ekkert AÐ Markan eftir allt saman, a.m.k á meðan ákveðinn maður er utan landhelgi. Ólafur Páll klýndi öðru marki eftir 10. mínútna leik og þar við sat. 2-0 sigur hjá Val og við skríðum hægt og rólega upp töfluna. Umfjöllun um leikinn kemur inn á morgun en þangað til er orðið laust fyrir lesendur.
|
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 21. júní 2009 22:12 |
 Eyjamenn mæta á Hlíðarenda nú á mánudagskvöldið. Partýtjaldið góða er enn á sínum stað við Fjósið. Gaman væri að sjá helstu úrtölumenn spjallborðsins mæta og létta af hjarta sínu um þær skoðanir sem þeir hafa liðinu og öðru sem tengist félaginu í góðum selskap. Léttiefni fæst á staðnum í fljótandi formi. Menn geta spáð um úrslit hér í athugasemdunum og heimt einn Grænan eftir leik rambi viðkomandi á réttar tölur.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 18. júní 2009 12:35 |
 Gæsirnar á Álftanesi munu mæta Valnum frá Hlíðarenda í kvöld. Gera má ráð fyrir ójöfnum leik en menn geta spáð um úrslit í athugasemdakerfinu hér að neðan. Sá sem giskar á rétt úrslit vinnur sér einn léttan og getur vitjað vinningsins í Stuðaratjaldinu á næsta leik gegn ÍBV.
|
|
Þriðjudagur, 16. júní 2009 12:22 |
 Ætli sófa Valsararnir hafi horft allan tímann? Valsarar voru mættir á Kópavogsvöll á mánudagskvöldið að sjá sína menn etja kappi við Breiðablik. Tölfræðin hefur ekki verið okkur í hag á heimavelli Blika síðustu árin en það virðist vera að snúast við og unnu Valsmenn útileik liðanna annað árið í röð. Skemmtanagildið var ekki upp á marga fiska en líkt og Willum Þór hefur talað um undanfarið þá er sígandi lukka best. Eða eitthvað svoleiðis.
|
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 15. júní 2009 22:35 |
|
Lélegur sóknarleikur, léleg miðja, lélegt samspil, léleg vinnsla en góður sigur. Valsmenn voru ekki að heilla stúkuna í kvöld en gáfu á móti fá færi á sér. 0-1 sigur og þrjú stig á einum erfiðasta útivelli Vals eru vel þegin sama þótt að fagurfræðin hafi ekki verið með í för. Nánari umfjöllun um leikinn dettur inn um hádegisbilið en þangað til er orðið laust.
Ps. Valsarar mættu bara nokkuð vel í stúkuna þó svo að valsarar.is hafi gert ráð fyrir öðru. Gunnar Birgisson var þó löglega afsakaður í kvöld á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna í Kópavogi..
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 14. júní 2009 21:51 |
 Mætir þessi? Næsti leikur meistaraflokks karla er á martraðarvelli Vals -Kópavogsvelli. Blikar taka á móti okkur en þess ber að geta að Valsmenn náðu langþráðum deildar sigri gegn Breiðabliki á síðasta tímabili. Aftur á móti töpuðum við fyrir HK og einnig slógu Blikar okkur úr bikarnum á vellinum alræmda. Leikar hefjast klukkan 20.00 og hinir vafasömu sófa Valsarar vita líklegast að leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Menn verða því löglega afsakaðir með að mæta ekki í Kópavoginn, þótt það sé auðvitað með öllu siðlaust og viðkomandi til háborinnar skammar. En annað eins gengur nú á í Vogi kópsins um þessar mundir þannig að léleg mæting að hálfu Valsara mun fljótt falla í gleymsku. Vonandi.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 20 af 22 |