• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Örpæling
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 17. júlí 2009 15:43
Eitt hefur undirritaður aldrei skilið, og það er þegar stuðningsmenn liða í þessu litla mót sem nú ber heitið Pefsí deldin, eru að agnúast útí það þegar nýjir menn koma til liðs við félagið sem þeir styðja.
Oft eru þung orð látin falla úr hópi stuðningsmanna vals, menn fyrifram verið taldir alveg ómögulegir fyrir klúbbinn vegna einhverra hversdagslegra smáatriða, en oftar en ekki hefur það átt við stuðningsmenn Vals a.m.k., að þeir hafa þurft að éta mestallt ofaní sig aftur.
Örfá dæmi um þetta á síðustu árum eru þeir Willum, Gummi Ben, Garðar Jó, Helgi Sig, Marel Balvins, Atli Eðvalds og nú síðast enginn annar en eldri bróðir Herra Íslands; Arnar Gunnlaugs, sem án efa er einn af 20 bestu knattspyrnumönnum í sögu Íslands.
Væri ekki skemmtilegra ef stuðningsmenn myndu heldur bjóða nýja leikmenn velkomna, og dæma þá heldur eftirá frekar en fyrirfram ?
Það myndi þá líka koma í veg fyrir að stuðningsmenn væru að eyða sumrinu í að éta orð sín ofaní sig aftur.
Eitt hefur undirritaður aldrei skilið, og það er þegar stuðningsmenn liða í þessu litla mót sem nú ber heitið Pefsí deldin, eru að agnúast útí það þegar nýjir menn koma til liðs við félagið sem þeir styðja.
Oft eru þung orð látin falla úr hópi stuðningsmanna vals, menn fyrifram verið taldir alveg ómögulegir fyrir klúbbinn vegna einhverra hversdagslegra smáatriða, en oftar en ekki hefur það átt við stuðningsmenn Vals a.m.k., að þeir hafa þurft að éta mestallt ofaní sig aftur.
 
Örfá dæmi um þetta á síðustu árum eru þeir Willum, Gummi Ben, Garðar Jó, Helgi Sig, Marel Balvins, Atli Eðvalds og nú síðast enginn annar en eldri bróðir Herra Íslands; Arnar Gunnlaugs, sem án efa er einn af 20 bestu knattspyrnumönnum í sögu Íslands.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
...It is
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 17. júlí 2009 15:18
Arnar Bergmann Gunnlaugsson semur við Val
Knattspyrnufélagið Valur og Arnar Bergmann Gunnlaugsson hafa gert með sér samkomulag um að Arnar leiki með Valsmönnum út þetta tímabil.
Miklar vonir eru bundnar við Arnar sem er einn reynslumesti og ástsælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu síðustu árin..

Arnar Bergmann Gunnlaugsson semur við Val
Knattspyrnufélagið Valur og Arnar Bergmann Gunnlaugsson hafa gert með sér samkomulag um að Arnar leiki með Valsmönnum út þetta tímabil.
Miklar vonir eru bundnar við Arnar sem er einn reynslumesti og ástsælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu síðustu árin.

Arnar_Gunnlaugsson_jpg_340x600_q95


Valsarar.is vilja bjóða eldri bróður Herra Íslands, hjartanlega velkominn í Val

 

Digg    Facebook   
 
Is it true?
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 16. júlí 2009 00:00

Is it true



Fögnum því ef rétt reynist, er það ekki ?

Digg    Facebook   
 
Valsaraquiz no. 1
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 15. júlí 2009 12:09
Þá er komið að nýjung hjá okkur á Völsurum.is; Valsaraquizzið.

Hugmyndin er að hafa þetta aðra hverja viku, og jafnvel oftar ef þáttaka er góð. Sigurvegarar eru birtir á sunnudögum, en aðeins er hægt að taka þátt einusinni pr. netfang. Sá þáttakandi sem hefur flest rétt svör, og er fyrstur með þau, vinnur.
Smelltu á Nánar hnappinn hér að neðan til að skoða / taka þátt í quizzinu.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Frægðarför í Frostaskjól
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 13. júlí 2009 20:27
Frægðarför í Frostaskjól.
Valsarar.is kunna sífellt betur við sig í Vesturbæ Reykjavíkur (þrátt fyrir að það sé skítapleis, með einni búð og JL-Húsi), enda hefur Valsliðið ekki tapað þar leik síðan 2005, og tvisvar unnið þar bikarleiki á þessu sama tímabili.
Á laugardaginn var hefðinni fram haldið þegar að því er virtist glænýtt Valslið spilaði á móti kr í Frostaskjólinu og hafði betur eins og svo oft áður.
Atli Eðvalds setti liðið upp fremur hefðbundið, hafði þó Habbó í byrjunarliðinu sem reyndar átti eftir að haltra útaf strax í byrjun fyrri hálfleiks, ásamt Marel Baldvins og þá fór nú um margan valsarann. Sá ótti átti hinsvegar eftir að reynast þarflaus, enda var leikurinn sá skemmtilegasti sem sést hefur í Pefsí deildinni í sumar, og rúsínan í pylsuendanum var auðvitað sú staðreynd að sigur skyldi vinnast á erkifjendunum í vesturbæ.
Það er að bera í bakkafullan lækinn að fara efnislega yfir atriði í leiknum, en það verður að segja vestubæjingum til hróss að þeir eru að tefla fram sennilega skemmtilegasta kr-liði sem undirritaður hefur séð í mörg ár, og á Logi 5aur heiður skilið fyrir það. Augljóst er að sóknarspilinu hjá þeim hefur farið mikið fram með tilkomu Hr.Benediktssonar. Eins var áberandi að sjá að kr-ingarnir spiluðu talsvert þannig að Bjarni Guðjóns var að krossa boltanum frá miðju, eða aftan við hana, yfir á sóknarmann á hinum kantinum og byggja sóknarspilið þannig upp. Það var verulega skemmtilegt á að horfa og sennilega atriði sem þyrfti að gæta að varðandi það að gefa Bjarna ekki of mikinn tíma með boltann í næstu 2 leikjum liðanna í sumar.
Hvað varðar Valsliðið þá má eiginlega segja að það hafi verið soldið eins og díselvél, voru ekki nógu snöggir í gang, en eftir c.a. 20 mínútur þá var liðið loksins orðið gríðarskemmtilegt á að horfa, og þá sérlega eftir að Markan var kominn í hlaupagírinn. Það má eiginlega segja að Markan hafi sett tóninn fyrir aðra leikmenn Vals í seinnihluta fyrri hálfleiks með ákaflega snyrtilegri tæklingu á sóknarmanni kr-inga, hirðandi af honum boltann og skiljandi enga inneign eftir, en þangað til höfðu Valsmenn verið full góðir við kr-ingana og leyft þeim að hanga á boltanum von úr viti. Markan fékk a.m.k. 3 prik í kladdann fyrir þetta múf, og svo önnur 7 fyrir markið og frammistöðuna í leiknum öllum.
Halli markvörður átti líkan góðan dag, eins og svo oft áður, og áður en sumarið er úti er nokkuð ljóst að á milli stanga Vals mun standa sterkasti markvörður deildarinnar. Halli er gríðarlega öruggur í staðsetningum, úthlaupum og útspörkum og virðist alveg laus við þann leiða sið margra markmanna að vera s.k. kameruskutlarar. Það er að auki alveg kristaltært að hjartað er á hárréttum stað í drengnum, stóð sína pligt eins og hetja eftir gúmorren-inn frá Hr.Benediktssyni.
Viktor tók svo af allan vafa um hvort hann eigi heima í byrjunarliði Vals, var sífellt ógnandi ásamt Helga og virkuðu þeir flottir saman, unglingurinn og ellismellurinn. Mark Viktors úr þröngu færi var líka sérstaklega glæsilegt og ekki margir í íslensku deildinni sem hefðu getað sett hann í hlaupinu úr þessum vinkli. Þumallinn upp fyrir það.
Að öðru leyti var holningin á Valsliðinu allt önnur en í síðustu deildarleikjum, en vörnin þarf augljóslega meiri tíma til að spila sig saman, menn að læra inná hvorn annan og slíkt. Það er þó alltaf jákvætt að menn séu að spila í sínum 'natural' stöðum, og þetta vonandi smellur endanlega saman í næsta leik.
Fyrir rest er nú ekki úr vegi að gefa stuðningsmönnum klapp á bakið fyrir gott mót í vesturbænum, en laugardagurinn var sá langlíflegast í sumar meðal stuðningsmanna Vals. Nú er bara að vona að hópurinn sem hafði sig hvað mest í frammi á laugardaginn haldi uppteknum hætti, planti sér ofarlega í stúkuna á Hlíðarenda svo allir heyri, og botnkeyri stuðninginn. Ég lofa a.m.k. að ég mun taka undir, það er á hreinu.
Rokk og ról, áfram Valur!
JL HúsiðValsarar.is kunna sífellt betur við sig í Vesturbæ Reykjavíkur (þrátt fyrir að það sé skítapleis, með einni búð og JL-Húsi [líkt og segir í vísunni góðu]), enda hefur Valsliðið ekki tapað þar leik síðan 2005, og tvisvar unnið þar bikarleiki á þessu sama tímabili.

Á laugardaginn var hefðinni fram haldið þegar að því er virtist glænýtt Valslið spilaði á móti kr í Frostaskjólinu og hafði betur eins og svo oft áður.
Atli Eðvalds setti liðið upp fremur hefðbundið, hafði þó Habbó í byrjunarliðinu sem reyndar átti eftir að haltra útaf strax í byrjun fyrri hálfleiks, ásamt Marel Baldvins og þá fór nú um margan valsarann. Sá ótti átti hinsvegar eftir að reynast þarflaus, enda var leikurinn sá skemmtilegasti sem sést hefur í Pefsí deildinni í sumar, og rúsínan í pylsuendanum var auðvitað sú staðreynd að sigur skyldi vinnast á erkifjendunum í vesturbæ.
Til viðbótar kom sú skemmtilega staðreynd í ljós að hið s.k.Rauða Ljón þeirra vesturbæinga er í raun stuðningsmaður Vals, og sýndi sýna sönnu liti fyrir framan stuðningsmenn Vals á kr-leiknum. Ef einhver lesandi slysaðist til að ná af þessu mynd, má hann gjarnan senda okkur hana á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , annahvort með emaili eða sem mms-skeyti. 

Það er að bera í bakkafullan lækinn að fara efnislega yfir atriði í leiknum, en það verður að segja vestubæjingum til hróss að þeir eru að tefla fram sennilega skemmtilegasta kr-liði sem undirritaður hefur séð í mörg ár, og á Logi 5aur heiður skilið fyrir það. Augljóst er að sóknarspilinu hjá þeim hefur farið mikið fram með tilkomu Hr.Benediktssonar. Eins var áberandi að sjá að kr-ingarnir spiluðu talsvert þannig að Bjarni Guðjóns var að krossa boltanum frá miðju, eða aftan við hana, yfir á sóknarmann á hinum kantinum og byggja sóknarspilið þannig upp. Það var verulega skemmtilegt á að horfa og sennilega atriði sem huga þyrfti að í næstu 2 leikjum liðanna í sumar, þ.e. að gefa Bjarna ekki of mikinn tíma á boltanum, jafnvel svona aftarlega á vellinum.
 

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Fótósjoppari óskast
Höfundur: valsarar.is   
Mánudagur, 13. júlí 2009 20:46

Valsarar.is auglýsa eftir snjöllum fótósjoppara til þess að smíða falleg Vals-skjáveggfóður. Engum launum heitið, öðrum en klappi á bakið.
Áhugasamir meldi sig, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 16 af 22