• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

2 Fyrir 1
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 23. júlí 2009 16:32
Arnar og Bjarki

Valsarar.is bjóða Bjarka, stórabróður nr.2 , kærlega velkominn í Val.

Digg    Facebook   
 
Ljónið er Valsari!
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 23. júlí 2009 16:27

Frá Gesti...
Ljónið
...Ljónið er Valsari

Digg    Facebook   
 
Óli Þórðar, vinir og skyldmenni í heimsókn
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 21. júlí 2009 18:34
Leikmenn Fylkis mættu í gær á Hlíðarenda með Ólaf Þórðar á Hliðarlínunni og móðurbróður hans inná vellinum, og afrakstruinn varð sennilega einn allra
leiðinlegasti leikur sumarsins, svo ekki sé meira sagt. Það voru e-n veginn allir alveg sultuslakir innanvallar sem á áhorfendabekkjum, fyrir utan nokkra stuðningsmenn Fylkis sem stoppuðu sennilega við á Blásteini fyrir leik.
Hápunktar fyrri hálfleiksins voru þeir að Bjössi fékk verðlaun fyrir að hafa náð þeim markverða árangri að verða leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi ( og hlýtur að launum þrefalt húrrahróp frá þeim sem þetta skrifar), og að Reynir Leóss fékk boltann í punginn.
Seinni hálfleikurinn var örlítið hressari og þóttust Valsarar.is sjá að augljóst uppbyggingarstarf á spilamennsku liðsins er hafið. Það er farið að örla fyrir því að Valsliðið sé byrjað að spila boltanum í stað kýlinginna sem einkennandi hafa verið fyrir liðið fyrripart móts, en eftir að hafa horft á þennan leik virðist nokkuð ljóst að liðið sárvantar skapandi miðjumenn sem geta stjórnað spili og tengt betur milli varnar og sóknar. Nú þegar Arnar Gunnlaugs (a.k.a. Stóribróðir) er kominn í Valsbúningin, þá væri nú heldur betur ekki ónýtt að sjá hann á miðjunni ásamt Marel Baldvins þegar sá kappi stígur uppúr meiðslum. Það ætti með réttu að geta reynst ein öflugasta sóknarmiðja deildarinnar.
Talandi um stórabróður, þá var svo sannarlega ekki að sjá að Arnar væri elsti maður vallarins, enda virkaði hann í þrusuformi, og var oftar en ekki fyrsti maður til að taka varnarhlaupin til baka, og það er spurning hvort að yngri leikmenn Vals sjá sér ekki hvatningu í því að reyna að stinga kallinn af.
Þess má geta að sumir leikmanna Vals voru rétt að hefja grunnskólagöngu, og sumir jafnvel ekki byrjaðir á leikskóla, þegar Stóribróðir var að hefja sinn atvinnumannsferil. Arnar fær a.m.k. þumalinn upp, og vel það, frá undirruðum.
Annars var maður nokkuð hissa á því að sjá að Markan ekki í byrjunarliði eftir að hann hafði átt fantagóðan leik gegn KR, og verður að segjast að sprettirnir sem hann getur tekið veita sóknarlínu Vals alveg aðra vídd.
Annars fór sem fór, og algjörlega grátlegt og í raun óafsakanlegt af varnarmönnum Vals að hafa ekki haft rænu á því að koma í veg fyrir að Fylkismenn næðu frákasti vítaspyrnunnar sem Halli varði. Svonalagað á bara ekkert að sjást, og er aukinheldur algjör vanvirðing við störf markmannsins.
Halli þarf reyndar að kyngja því að þessi vítaspyrnugjöf var ansi klaufaleg, en hann náði þó að bæta fyrir hana. Markið hlýtur að skrifast á varnarmennina sem hefðu átt að gera betur.
Eins og áður segir, þá var leikurinn alls ekki e-r eyðimerkurganga og eitthvað virðist vera að birta yfir leikstíl Valsliðsins, og er vonandi að leiðinn liggi uppávið.
Það þarf líka að telja stuðningsmönnum það til tekna að skila fínni mætingu, þó að menn hefðu verið full slakir í settinu, og undirritaður alls ekkert undanskilinn.
Næst er það Fjölnir, strax ekki á morgun heldur hinn, og þá verður spennandi að sjá hvort hópurinn stígi ekki uppúr þessum leiðindum sem einkenndu leikinn í gær, og maður vill helst gleyma sem fyrst.
Málning þornarLeikmenn Fylkis mættu í gær á Hlíðarenda með Óla Þórðar á hliðarlínunni og móðurbróður hans inná vellinum, og afrakstruinn varð sennilega einn allra leiðinlegasti leikur sumarsins, svo ekki sé meira sagt. Það voru e-n veginn allir alveg sultuslakir innanvallar sem á áhorfendabekkjum, fyrir utan nokkra stuðningsmenn Fylkis sem stoppuðu sennilega við á Blásteini fyrir leik.

Hápunktar fyrri hálfleiksins voru þeir að Bjössi fékk verðlaun fyrir að hafa náð þeim markverða árangri að verða leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi ( og hlýtur að launum þrefalt húrrahróp frá þeim sem þetta skrifar), og að Reynir Leóss fékk boltann í punginn.

Seinni hálfleikurinn var örlítið hressari og þóttust Valsarar.is sjá að augljóst uppbyggingarstarf á spilamennsku liðsins er hafið. Það er farið að örla fyrir því að
Arnar
Valsliðið sé byrjað að spila boltanum í stað kýlinginna sem einkennandi hafa verið fyrir liðið fyrripart móts, en eftir að hafa horft á þennan leik virðist nokkuð ljóst að liðið sárvantar skapandi miðjumenn sem geta stjórnað spili og tengt betur milli varnar og sóknar. Nú þegar Arnar Gunnlaugs (a.k.a. Stóribróðir) er kominn í Valsbúningin, þá væri nú heldur betur ekki ónýtt að sjá hann á miðjunni ásamt Marel Baldvins þegar sá kappi stígur uppúr meiðslum. Það ætti með réttu að geta reynst ein öflugasta sóknarmiðja deildarinnar.
Talandi um stórabróður, þá var svo sannarlega ekki að sjá að Arnar væri elsti maður vallarins, enda virkaði hann í þrusuformi, og var oftar en ekki fyrsti maður til að taka varnarhlaupin til baka, ogþað er spurning hvort að yngri leikmenn Vals sjá sér ekki hvatningu í því að reyna að stinga kallinn af.
Þess má geta að sumir leikmanna Vals voru rétt að hefja grunnskólagöngu, og sumir jafnvel ekki byrjaðir á leikskóla, þegar Stóribróðir var að hefja sinn atvinnumannsferil. Arnar fær a.m.k. þumalinn upp, og vel það, frá undirruðum.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Þetta veist þú um Fylki
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 21. júlí 2009 17:54

Þáttakan í 'Hvað veist þú um Fylki' spurningakeppnini var framúr vonum góð, en aðeins voru 2 með öll svörin rétt. En hérna er topp5 listi yfir svarendur ;

Nafn Rétt svör Tímasetning
Gunnar Þór Jónsson 10 / 10 18-07-2009 22:12:14 * maðurinn !Cool
Kristján Gylfi 10 / 10 19-07-2009 15:51:51
Gunnar Egill 9 / 10 19-07-2009 12:41:27
Elvar Már Svansson 9 / 10 19-07-2009 16:52:57
Björgvin Gylfason 9 / 10 19-07-2009 16:53:03

Til lukku!

Rétt svör hér að neðan :

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Hvað veist þú um Fylki ?
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 18. júlí 2009 16:27
Í tilefni af næsta heimaleik okkar Valsara og góðum undirtektum við fyrsta quizzinu, langar okkur að leyfa stuðningsmönnum beggja liða á að reyna fyrir sér um almennan Fylkisfróðleik sinn.

Vinningshafi verður tilkynntur daginn eftir leikinn. Sigurvegarinn hlýtur nafnbótina "Þú ert Maðurinn" og ber hana fram yfir næstu keppni :

Spurt er, hvað veist þú um Fylki ?Fylkislogo

Uppfært: Réttmæt ábending um villu í spurningakeppnini barst, og hefur keppnin verið uppfærð til þess að endurspegla það. Biðjumst forláts á þessu! Þeir sem hafa tekið þátt, geta nú tekið þátt aftur, ef þeir vilja.

No active competition found

Digg    Facebook   
 
Úrslit í Valsararquizzi nr. 1

Höfundur: Valþór Druzin   
Laugardagur, 18. júlí 2009 16:13
Jæja, það er s.s. er ljóst, sigurvegari í Valsaraquizzi nr. 1 er Bárður I. Helgason, en Báður var sá eini sem var með 13 rétta, en þónokkrir reyndust með 12 rétta.
Þáttaka var annars mjög góð, en svona leit Top5 listinn út:


Nafn Rétt svör Tímasetning svara
Bárður I. Helgason 13 / 13 15-07-2009 23:11:31
Sveinn 12 / 13 15-07-2009 14:13:39
Gunnar Þór Jónsson 12 / 13 15-07-2009 15:03:18
Björgvin Ármannsson 12 / 13 15-07-2009 15:20:07

Uppfært: Vegna villu í spurningunum, breyttist röð efstu manna talsvert og fjöldi þeirra með 13 rétta jókst gríðarlega. Rétt svar við 3ja leikjahæsta leikmanni Vals, er Magni Blöndal, en ekki Jón Grétar eins og fram var haldið. Sigurvegari keppninar er í raun leynifígúran 'Valsari', en Topp 5 listinn lítur nú svona út :
Nafn Rétt svör Tímasetning svara
Valsarinn 13 / 13 15-07-2009 14:15:21
Gunnar Þór Jónsson 13 / 13 15-07-2009 15:03:18
Björgvin Ármannsson 13 / 13 15-07-2009 15:20:07
Jóhann Gunnarsson 13 / 13 15-07-2009 16:11:37
Ingólfur Ástmarsson 12 / 13 15-07-2009 13:55:26


Hér að neðan má svo sjá rétt svör við spurningunum

Digg    Facebook   
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 15 af 22