• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Matthías snýr aftur!
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 29. júlí 2009 23:23

matti_goal


Matthías Guðmundsson er aftur orðinn leikmaður Vals. Hann mun færa sig yfir á Hlíðarenda í skiptum fyrir Ólaf Pál Snorrason. Frábærar fréttir sem allir Valsarar hljóta að taka fagnandi! Þetta geta valsarar.is tilkynnt fyrstir miðla.


Digg    Facebook   
 
Svekkjandi jafntefli
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 28. júlí 2009 13:27
Valsmenn tóku á móti Keflvíkingum í 14. umferð Íslandsmótsins á mánudagskvöld. Fyrir leikinn var ekki alveg ljóst við hverju var hægt að búast af Valsliðinu. Skellir á móti Fylki og Fjölni í síðustu leikjum á undan gáfu ekki góð fyrirheit auk þess flestir minnugir háðulegrar útreiðar sem Valur fékk snemma móts í Keflavík. 

Upphafsmínúturnar voru fjörugar í meira lagi. Þrjú mörk litu dagsins ljós á fyrsta korterinu auk fjölda annara færa og voru Valsmenn ívið sterkari. Pétur Markan skoraði snemma leiks en menn voru ekki alveg komnir niður á jörðina þegar Haukur Ingi jafnaði með helst til ódýru marki. Reynir Leósson hafði reynt að spila Hauk rangstæðan sem mislukkaðist og úthlaupið hjá Kjartani var heldur ekki nægilega gott. Valsliðið var fljótt að ná sér af þessu áfalli og kom Helgi Sig liðinu yfir á nýjan leik skömmu síðar. Við tók síðan góður leikkafli hjá liðinu fram að hálfleik og alveg fram að jöfnunarmarki Keflavíkur í seinni hálfeik. Satt að segja var grátlegt að ekki hafi tekist að ganga frá sigrinum á þessum leikkafla því Keflvíkingar áttu sért vart viðreisnarvon. Hvert færið leit annað hjá Val en alltaf vantaði upp á smiðshöggið. Helgi átti bæði möguleika á að skora og leggja upp mörk og eins virtist rangstöðudómur á Pétur Georg vafasamur úr stúkunni þegar hinn sprettharði sóknarmaður skoraði eftir góðan leik Baldur Ingimars. Baldur var einnig við það að sleppa í gegn í eitt skipti en var togaður niður og hinn ávallt ofmetni Kristinn Jakobsson gaf aðeins gult spjald á Keflvíkinginn. En að öllu gamni slepptu var Kristinn prýðilegur á flautunni í gær. 

Baldur IngimarÍ gær mátti sjá heilmikil batamerki á Valsliðinu. Ian Jeffs var kominn aftur á miðjuna með Sigurbjörn sér við hlið og framan af leik sýndu þeir mun betri takta en oftast áður í sumar. Einnig munaði heilmikið um að fá Baldur Aðalsteinsson inn í liðið sem setti ávallt mikla pressu á varnarmenn Keflavíkur, hvort sem hann var að sækja eða verjast. Eina sem vantaði upp á hjá Baldri var síðasta sending á framherja í nokkur skipti en hún hlýtur að koma með leikforminu. Viktor Unnar var ekki alveg jafn ógnandi á vinstri kantinum og líklega nýtur hann sín betur í framlínunni. Helgi var góður framan af leik en Atli hefði betur skipt honum út af frekar en Viktori þegar Marel var settur inn á. Eins dróg af Sigurbirni í seinni hluta leiksins og var hann oft full langt frá andstæðingunum og skilaði boltanum seint og illa frá sér eftir að hafa staðið sig vel með Jeffs á miðjunni lengi vel í leiknum. 

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Þetta veist þú um Keflavík!
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 28. júlí 2009 13:57
Úrslit Keflavíkurgetraunarinnar liggja ljós fyrir, glænýr handhafi titilsins 'Maðurinn' liggur fyrir, og sannast hér augljóslega hið fornkveðna, að konur eru líka menn;

NafnRétt svörTímasetning
Helga Birkisdóttir 11/11 27-07-2009 00:58:52 Cool Maðurinn!
Haukur 11/11 27-07-2009 09:35:11
Gunnar Þór Jónsson 10/11 27-07-2009 00:40:07
Björn Kristinsson 10/11 27-07-2009 16:54:52
Sigurður Markús Grétarsson 9/11 27-07-2009 10:48:31

Til lukku Helga.

Rétt svör eru hér að neðan...

Digg    Facebook   
Nánar...
 
AT-hyg-LI-sverð ummæli
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 28. júlí 2009 00:44
Jafntefli gegn Bítlabæjarliðinu var niðurstaðan í kvöld. Nánari umfjöllun um leikinn kemur á morgun en þangað til er eitt og annað vert að skoða nánar.

Atli Eðvaldsson virðist ósáttur við ýmsa hluti hjá Valsliðinu og skyldi engan undra.

Á Vísir.is segir Atli: "Liðið er brotið og vantar leiðtoga og við erum að reyna að finna hann. Ég, í jakkafötunum, hefði getað hreinsað boltanum í burtu. Þetta mark sýnir ástandið á liðinu, það er enginn sem tekur af skarið"

Á fótbolta.net segir Atli: "Seinni hálfleik að þá hættum við að spila boltanum og förum í þessar kýlingar og aftur kýlingar. Það sýnir bara sálarástandið á liðinu, þeir eru hræddir um að tapa einhverju sem þeir finnst þeir hafa og vonandi næ ég að breyta þessu"

Við Ríkissjónvarpið segir Atli síðan: "Við erum ekki komnir í fullan styrk við að trúa á sigra.... Ég tek við liði sem er gjörsamlega í molum, bæði andlega og líkamlega...það er ekki auðvelt að byggja upp sjálfstraust þegar allt er farið."

Það er ekki laust við að það megi lesa ýmislegt á milli línanna og virðist því meira og minna vera beint til forvera Atla í starfi. Liðinu vantar leiðtoga, er brothætt og hættir til að detta í kýlingar og aftur kýlingar. Liðið er andlega niðurbrotið og í lélegu formi.

Í raun er mjög auðvelt að kvitta upp á þetta allt saman og vonandi hið besta mál að hlutirnir séu ræddir tæpitungulaust. Atli má þó vita að hann getur bara kennt Willumi um slæmt ástand liðsins í þetta eina skipti og það er þannig séð ágætt að því sé lokið að hans hálfu.

Það er greinilegt að Atli vill ná ákveðnu léttleikandi spili og góðum anda í hópinn og best færi á því að stuðningsmenn Vals gefi honum tíma til þess. Ekki er hægt að búast við einhverjum einnar nætur kraftaverkum í þeim efnum en eitt og annað bendir til að liðið sé á réttri braut. Eflaust mun það taka einhvern tíma að ná Kick-and-Run skjálftanum úr mörgum leikmönnum en það var aðferð sem virtist innprentuð í of marga Valsmenn undir stjórn Willums. Atli vill spila fótbolta upp á klassíska mátann og vonandi geta flestir stuðningsmenn Vals fellt sig við það.

Digg    Facebook   
 
Hvað veist þú um Keflavík ?
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 26. júlí 2009 23:20

KefÍ tilefni af leik Vals og Keflavíkur á Hlíðarenda á morgun, er hér 10 11 spurninga keppni, með Keflavíkurþema. Sömu reglur og áður, sá þáttakandi sem er fyrstur að svara flestum spurningum rétt, vinnur titilinn 'Þú ert Maðurinn', handahafi hvers er nú Gunnar Þór Jónsson.

ATHUGIÐ: Að gefnu tilefni viljum við biðja keppendur vinsamlegast að nota EKKI uppflettirit líkt og bækur Víðis Sigurðsson, Íslensk knattspyrna, eða leitarvél á borð við Google þegar spurningum er svarað. Þeir sem verða uppvísir að slíku verða að eiga það við samvisku sína hvort þeir geti á annað borð tekið við titlinum Þú ert Maðurinn þegar slíkrar hjálpar er þörf!

No active competition found

Digg    Facebook   
 
Útúrkú í úthverfi
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 24. júlí 2009 13:35
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).
"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn Hreiðarsson
Þetta voru þeirra orð eftir leikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.
Eftir að Valsmenn fengu á sig fyrra markið, virtust þeir þyngjast um c.a. 5 kíló á staðnum, og leikur liðsins sem fram að því hafði lofað ágætu, drabbaðist niður og allt bit fór úr honum.
Út úr sóknarvængspili liðsins kom ekkert í gær, nákvæmlega ekkert, og virtust vörn og markvörður Fjölnis, sem fyrir leikinn höfðu fengið á sig næstflest mörk allra liða í deildinni, lítið hafa fyrir að loka á sóknartilburði Valsmanna af köntunum.
Ef frá er talinn Stóribróðir, þá var miðjuspilið ekki gott í gær, þá sérstaklega eftir að fyrsta markið hafði dottið á Valsmenn. Bjössi og Bett, sem hvor um sig eru fínir leikmenn, eru bara ekki að fúnkera nógu vel saman, þvímiður. Bett er fremur hægur varnarsinnaður miðjumaður og fínn í djúpri stöðu en Bjössi sem er auðvitað local hero á Hlíðarenda, og skilað ótrúlega góðu starfi fyrir Val í gegnum tíðina, virðist þvímiður hafa tapað niður hraðanum sem hann áður hafði. Saman eru þeir ekki að vega hvorn annan nógu vel upp, reynsla Bjössa sem gæti mögulega nýst með sneggri miðjumanni er ekki að gera það með Baldri Bett. Baldur er sömuleiðis leikmaður sem þyrfti að hafa snöggan og skapandi miðjumann með sér til þess að þessar einföldu færslur sem hann leysir mjög vel, væru að nýtast Valsliðinu betur.
Uppi á toppi eru Valsmenn ennþá að kljást við sama hugmyndaleysið og áður, enda segir markatala liðsins allt um það, 15 skoruð mörk í 13 leikjum er vægast sagt slakur árangur. Aðeins eitt lið í deildinni sem hefur skorað færri mörk en Valsliðið; ÍBV, enda er það lið í fallsæti.
Það er kannski augljóst mörgum, en það er bara eitt grundvallaratriði sem þarf að uppfylla í hverjum fótboltaleik til þess að sigur náist, en það er að skora a.m.k. 1 mark. Það hefur Valsliðinu mistekist í 6 af 13 deildarleikjum sumarsins, sem er auðvitað vægast sagt ömurlegur árangur og ef einhversstaðar er hrópandi í eyðimörkinni þá er það þarna. Liðið er bara ekki að skora mörk og sóknarleikurinn álíka beitt og gömul trésleif.
Bitleysið í sókninni er að einhverju leyti því að kenna að miðjuspil Vals hefur verið slakt og frekar hægt.
Það er svo auðvelt að færa fyrir því rök að þegar bitleysið er svona mikið framá við, þá þarf vörnin að puða tvöfalt meira fyrir vikið, enda virðast andstæðingar Vals hafa verið lítið hræddir við að halda sig bara á vallarhelmingi Vals í sumar, enda lítillar refsingar að vænta á móti.
Það verður þó að segjast að varnarmenn Vals ullu verulegum vonbrigðum í gær, þá sérstaklega þau mistök Bjarna Ólafs að fylgja ekki sóknarmanni Fjölnis eftir alla leið niður að endalínu í fyrra markinu. Bjarni Ólafur hefur raunar ekki verið svipur hjá sjón í sumar, m.v. hversu öflugur hann er í raun og veru. Valsarar.is vona að Bjarni nái að stíga uppúr þeim öldudal sem hann hefur verið í og sýni sitt rétta andlit, hann getur miklu betur og veit það sjálfur.
Eins hefði Halli, sem valsarar.is hafa mært mikið hingað til, átt að gera betur í fyrra markinu, svona skot á aldrei að leka inn hjá klassa markverði.
Reynir Leóss átti að auki ekki góðan dag, var á hælunum og alls ekki nógu meðvitaður til þess að geta spilað rangstöðutaktík, ef það var þá pælingin í dag.
Nú er hinsvegar leikið nokkuð þétt í deildinni, og það ætti að vera jákvætt fyrir lið sem er að reyna að byggja upp nýtt spil, auk þess sem ákveðinn gálgafrestur gefst þá á bikarleikinn gegn KR. Keflvíkingar koma í heimsókn á mánudaginn og ef ekki á að stefna í stórslys í þeim leik, er eins gott að leikmenn gyrði sig í brók og þjappi sér saman.
Það er alveg klárt mál, að sofandaháttur og andvaraleysi eins og var í gangi í úthverfinu í gær gengur ekki gegn neinu liði í deildinni og leikmannahópur Vals á að vera betri en þetta. Það er einfaldlega óþolandi að tapa svona illa fyrir liði í fallbaráttu, liði sem er ekki betra en Fjölnisliðið er.
Upp með helv*** sokkana, fjandakornið!
Það er fátt hægt að segja um leik eins og þann sem fram fór í Grafarvoginum í gær, án þess að missa sig í bölmóð og pirring.
Það er þá kannski úr vegi að hefja þennan pistil á því að tiltaka það sem jákvætt var í leiknum, sem var annarsvegar það að kick and run fótboltinn sem Valsliðið hefur stundað uppá síðkastið er á hröðu undanhaldi fyrir mun skemmtilegri leikstíl þar sem menn eru mun betur staðsettir á vellinum og spila boltanum sín á milli, og svo hinsvegar að Halli varð vítaspyrnu (og frákast hennar).

"..skammarlegt að við tökum ekki frákastið" --Atli Sveinn
"Að tapa frákasti eftir víti er bara verulega dapurt, sorglegt bara" --Sigurbjörn
Þetta voru þeirra orð eftir Fylkisleikinn á mánudaginn, en svo virtist sem þau væru gleymd og grafin í gær, og raunar alveg stórmerkilegt að lið, sem fær á sig mark úr frákasti vítaspyrnu í leiknum á undan, skuli ekki getað hundskast til þess að gyrða fyrir það einfalda atriði að andstæðingurinn nái frákasti aftur í þessum leik. Þessi orð Atla og Bjössa virtust m.a.s. svo svakalega vel gleymd að enginn Valsmaður gerði svo mikið sem tilraun til þess að sækja frákast vítaspyrnunnar sem Hlgi Sig klikkaði á. Það er kannski ekki rétt að dvelja of lengi við þetta, en þó eru þetta grundvallaratriði sem þarf barasta að vera í lagi og ekkert rugl.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 14 af 22