• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hvaða Þróttur mætir?
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 17. ágúst 2009 13:33
umf_throttur throttur_velaleiga throttur_drivers

throtturthrottur_neskaups

Valur heimsækir botnlið Þróttar í Pefsí deildinni í kvöld og fer leikurinn fram á Valbjarnarvelli. Þróttur hefur átt skrikkjóttu gengi að fagna í sumar og það er spurning hvort að þeir verði í svipuðu stuði og önnur lið úr neðri hlutanum sem mætt hafa Val undanfarið. Vonandi fyrir okkur þá sýna Þróttarar sitt rétta andlit og tapa stórt, helst 1-5. Valsliðið er þó ekki vant því að raða inn mörkum á andstæðinga sína svo bjartsýniskastið verður að bíða um sinn. Eftir hörmungar gengi í sumar er það vonandi að liðið girði sig í brók í kvöld og snúi við blaðinu. Leikar hefjast klukkan 19.15 og óskandi að stuðningsmenn Vals verði ekki heldur með allt niðrum sig.

Digg    Facebook   
 
Bjarni í útrás ?
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009 18:24
Nú berast af því tíðindi að fyrirliði Vals sé farinn á reynslu til Valerenga í Noregi og feti þar með í fótspor Árna Gauts Arasonar fyrrum landsliðsmarkvörðs Íslendinga.
Maður veit ekki alveg hvernig maður á að bregðast við þessum tíðindum, því að auðvitað vilji  maður að Bjarna gangi sem best, vonar maður þó að hann nái að ljúka tímabilinu með Valsliðinu enda er mikill missir að honum í varnarlínunni á Hlíðarenda.

Við óskum Bjarna góðs gengis í útrásinni, værum þó alveg til í að heyra hvað lesendum finnst um þetta.

Digg    Facebook   
 
Vinsamleg skilaboð
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 08:13
Eftirfarandi eru vinsamleg skilaboð til leikmanna meistaraflokks Vals í knattspyrnu, frá okkur á valsarar.is;  Get some nuts!


 



Finnið punginn á ykkur, plís !

Digg    Facebook   
 
Enn ein niðurlægingin
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 10. ágúst 2009 14:36
Valur mátti sætta sig við enn eitt tapið í sumar þegar Framarar mættu í heimsókn á Hlíðarenda. Fram sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna í sumar mætti kokhraust til leiks eins og flestir aðrir andstæðingar Vals undanfarið. Valsliðið gerði lítið til að lækka rostann í blástökkum sem fóru með sigur af hólmi á heimavelli Vals í fyrsta sinn síðan 1998.

Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn. Hvorugu liðanna tókst að skapa sér umtalsverð færi lengi framan af en Valsmenn voru eilítið óheppnari með sín færi. Marel átti skalla í slá og skömmu síðar björguðu Framarar á línu í tvígang. Fátt annað markvert átti sér stað í fyrri hálfleik og fóru liðin markalaus inn í búningsklefa. Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik ágætlega og uppskáru mark þegar Matthías Guðmundsson hafði átt gott skot að marki sem Hannes Halldórsson réð ekki við. Helgi Sigurðssonar var mættur eins og gammur í frákastið og kom Val yfir gegn sínum gömlu félögum. Liðið leit ágætlega út fram að markinu og Valsarar í stúkunni almennt bjartsýnir á framhaldið. En sú bjartsýni var jafn fljót að hverfa og jómfrú á Þjóðhátíð. Framarar jöfnuðu metin örfáum mínútum síðar og Valsliðið virkaði eftir það eins og flatur bjór, á Þjóðhátíð. Safamýrarpiltar sundurspiluðu heimamenn og skömmu síðar voru þeir komnir í forystu. Valsliðið leit aldrei út fyrir að geta jafnað leikinn þrátt fyrir að um 20 mínútur væru eftir af leiknum. Samspil gekk ákaflega illa og menn voru skrefi á eftir Frömurum líkt og gegn Fjölni, Fylki og KR í síðustu leikjum. Kraftleysið einkenndi liðið eins og svo oft áður og hreint ótrúlegt að sjá hversu lítið menn geta lokað svæðum og sett pressu á andstæðinga í þessari stöðu.

Tónlistin sem spiluð voru í hátalarakerfi Vodafonevallarins fyrir leik og í leikhléi voru með heiðurslistamanni Vals, Stefáni Hilmarssyni. Lögin Sódóma Reykjavík og Hvar er draumurinn? á fullu blasti var kannski Freudísk leið vallarþular til að endurspegla skoðun hans á ástandi liðsins. Kannski að Cry me a river verði bætt á lagalistann fyrir næsta leik. En hvað er annað hægt að segja um þetta blessaða lið okkar þessa dagna? Það hvorki gengur né rekur. Vissulega er Atli Eðvaldsson búinn að sýna jákvæða viðleitni í að fá liðið til að spila knattspyrnu en allt kemur fyrir ekki. Leikmannablandan er ekki að virka.

Eitt það versta við liðið er hversu margir byrjunarliðsmenn eru komnir á síðasta snúning á ferlinum og erfitt að sjá þá ætla að gera betur á næsta ári. Þessu tímabili virðist í fljótu bragði vera lokið. Vissulega er ekki langt í 4. sætið í deildinni sem gæti gefið sæti í Evrópukeppni en það er varla raunhæft að búast við því miðað við það sem á undan er gengið. Liðin sem Valur hefur mætt undanfarið eru búin að eiga misjöfnu gengi að fagna en þau hafa engu að síður átt í litlum vandræðum með ráðalaust Valsliðið. Undir stjórn Willums var ætlunin að liðið yrði virkilega þétt á velli og gæfi á sér fá færi. Því miður var þetta frekar gloppótt aðferð þegar best lét. Sigrarnir sem unnust voru meira eins og hjá liði í fallbaráttu sem kemst yfir í leikjum og minnti lítið á lið sem ætlaði að vera í toppbaráttu. Menn klíndu inn einu marki og tjölduðu síðan í eigin vítateig og vildu helst halda sig þar.

Þetta hefur einnig einkennt liðið hjá Atla þegar það kemst yfir en helsti munurinn fram að því eru menn að reyna að gera eitthvað af viti. Atli Sveinn er til að mynda hættur að dúndra boltanum fram á Marel í hvert skipti sem hann fær boltann og Sigurbjörn er farinn að sýna betri takta með boltann oft á tíðum heldur en undir Willum. Mistökin er þó alltof mörg og liðinu virðist fyrirmunað að snúa leik sér í vil ef það lendir undir, sem reyndar hefur einkennt það í langan tíma.

Stjórn Vals var umsvifamikil á leikmannamarkaðnum í vetur og var Valur nánast eina félagið sem gat leyft sér að bjóða 2007 samninga. Það er ljóst að menn fóru í þessi kaup af meira kappi en forsjá. Enginn þeirra leikmanna sem fenginn var til liðsins er búinn að bæta það að neinu marki. Þetta eru þung orð en stundum er sannleikurinn sagna bestur. Valur á ákveðna sjóði vegna lóðarsölu á Hlíðarenda en þeir peningar verða fljótir að klárast ef menn halda áfram á þeirri fjárfestingarbraut sem fetuð hefur verið undanfarið. Ljóst er að miklar hreinsanir þurfa að eiga sér stað að loknu þessu tímabili því stuðningsmenn Vals munu ekki hafa áhuga á að fylkja sér á bakvið lið sem er uppfullt af aðkomumönnum sem hafa lítið fram að færa annað en að hirða síðustu launatékkana á ferlinum.

Digg    Facebook   
 
Bilanir
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 10. ágúst 2009 12:30
Vegna bilanna á heimasíðunni hefur ekki tekist að uppfæra hana undanfarið. Mönnum er því hlíft við umfjöllunum um KR og Grindavíkur leikina.

Digg    Facebook   
 
Askoti fúlt
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 02. ágúst 2009 22:27
Síðasti möguleiki Vals á  að gera þetta sumar eftirminnilegt fór í vaskinn í kvöld þegar KR-ingar slógu okkur úr bikarkeppninni. Ýmislegt vantar upp á leik Valsliðsins þetta tímabilið og ekki bætti úr skák að hafa taugahrúgu á flautunni í stórveldaslagnum. Nánari umfjöllun dettur inn á morgun en þangað til er orðið laust.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 13 af 22