• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Jafntefli í Eyjum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 29. ágúst 2009 18:07
Valur náði jafntefli gegn ÍBV í dag þegar liðið mætti á Hásteinsvöll í dag. Ekki er hægt að segja að væntingarnar hafi verið  miklar miðað við gengið það sem af er þannig að stig á erfiðum útivelli er viss árangur, sérstaklega þar sem fyrirliðinn Bjarni Ólafur uppskar rautt spjald á 70. mínútu. Guðmundur Mete hlaut síðan gult spjald á lokamínútunum fyrir leiktöf samkvæmt textalýsingu Mbl.is en það voru víst Eyjamenn sem lögðu meira kapp á sigur í leiknum. Ljóst er að 10 af 11 andstæðingum hafa tekið stig af Valsliðinu í sumar. Makalaus tölfræði hjá liði sem ætlaði sér að vera í toppbaráttu þetta tímabilið en þetta er svo sem lýsandi fyrir allt annað.

Valsarar.is bíða eftir að hreinsunardeildin taki til starfa nú á komandi hausti enda orðið ljóst að svipað byrjunarlið er ekki boðlegt á næsta tímabili. Því miður hefur Atli Eðvaldsson ekki tekið af skarið í þessum efnum eftir að ljóst var að þetta Íslandsmót yrði hvorki fugl né fiskur. Á móti kemur þá þjónar það litlum tilgangi að henda efnilegum leikmönnum inn í byrjarnlið í þessu umhverfi þar sem andrúmsloftið virðist ekki upp á það besta. Ef eitthvað jákvætt er hægt að segja í dag að þá er varamannabekkurinn í það minsta mun meira spennandi en byrjunarliðið en tréverkið í dag skipuðu eftirfarandi:

Guðmundur Viðar Mete 2
alt
Einar Marteinsson 12
alt
Arnar Sveinn Geirsson 18
alt
Viktor Unnar Illugason 19
alt
Haraldur Björnsson 23
alt
Eðvarð Börkur Óttharsson 24
alt
Þórir Guðjónsson 27

Auk þessara þá var Guðmundur Steinn Hafsteinsson í byrjunarliði. Stuðningsmenn Vals binda eflaust miklar vonir við þessa leikmenn á komandi árum en aðstæður verða auðvitað að vera réttar til að þeir geti blómstrað á Hlíðarenda. Kynslóðaskipti eru óumflýjanleg og vonandi bera stjórnendur Vals gæfu til  að gera almennilegt lið úr þessum hópi á næstu árum.

Digg    Facebook   
 
Upplyftingarferð til Eyja
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 24. ágúst 2009 20:43

vmeyjar



Fyrir þá sem eru að springa úr reiði þessa dagana þá er rétt að benda á að Vestmannaeyjar hafa alltaf þótt tilvalinn staður til að tappa af spennu. Laus sæti eru með flugi Vals til Heimaeyjar á næsta laugardag og verðið fyrir flug fram og til baka auk miða á leikinn eru sléttar 13.000 krónur.

Áhugasamir geta haft samband við Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Digg    Facebook   
 
Framlag Vals til Menningarnætur
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 22. ágúst 2009 21:59

tannlaus



Vinatillboð Vals hélt á áfram Vodafonevellinum í dag. Breiðablik kom og hirti þrjú ódýr stig og enn ein bitlaus frammistaða hjá Valsliðinu í sumar staðreynd. Það stafaði álíka mikil hætta af leikmönnum liðsins og sjö ára smástelpu en þar endar samanburðurinn.Leikmenn Vals eru langt frá því að vera nándar nærri jafn krúttlegir.

Digg    Facebook   
 
Einn leik með þeim...
Höfundur: Valþór Druzin   
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009 17:54
Ég væri til í einn leik með þeim...

-- Garðar Gunnlaugs, í viðtali við Fótbolta.net, aðspurður hvort hann vildi ekki spila einn leik með bræðrum sínum áður en ferlinum lyki 

Digg    Facebook   
 
Allt er þá þrennt er ?
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 18:25

gardarSkv. þessu virðist allt eins líklegt að Hr. Ísland snúi heim til Íslands, a.m.k. um stundarsakir.

Spurningin er bara hvort heilög þrenning Gunnlaugssonsbræðra komi til með að spranga um Hlíðarenda síðsumars, sem væri síður en svo ónýtt.

Digg    Facebook   
 
Heppnir!
Höfundur: Valþór Druzin   
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 02:15
Heppnir!
Það er ekki laust við að maður prísi sig sælan eftir leik Vals og Þróttar, okkar menn náðu að skora 1 mark og þar við sat í eiginlega fáránlega jöfnum leik.
Þegar ég segi fáránlega jöfnum leik, þá á ég við að fyrirfram hefði maður ekki búist við því að Valsmenn ættu að eiga í neinum vandræðum með Þróttara, og þegar ég segi fyrifram, þá meina ég auðvitað fyrir svona 2-3 mánuðum síðan.
Eftir kvöldið er maður eiginlega bara ótrúlega sáttur, að loksins skuli Valur ná að vinna leik, þó það sé gegn því liði sem augljóslega er það slakasta í Pefsídeildinni í ár ( sagt án þess að vilja styggja neinn ), og vonar maður að leikmenn Vals nái að taka sigurinn með sér sem vind í seglin, þó að augljóslega hefði verið skemmtilegra ef sigurinn hefði verið stærri og leikmenn valsliðsins komist almennilega á bragðið með það að skora mörk sem hefur verið akkilesarhæll liðsins í sumar.
Markið eina kom, og þrátt fyrir mýmörg tækifæri, duttu ekki fleiri mörk inn í þessum leik og veltir maður því fyrir sér að kannski séu valsmenn hreinlega orðnir afvanir markaskorun. En, svo getur þetta auðvitað líka bara verið gamla góða óheppnin.
Það var þó augljóst á byrjunarliðsskipan að Atli setti leikinn upp með það að mörk skyldu skoruð, og Pétur Markan sýndi það enn og aftur að hann á barasta að vera í byrjunarliðinu og ekkert múður, því að þó framherjar Vals séu hoknir af reynslu eru þeir ekki þeir sneggstu í bransanum og þurfa nauðsynlega á stuðningi að halda af köntunum sem Pétur augljóslega veitir, ásamt auðvitað nýfundna syninum Matta, sem var fjarri góðu gamni í kvöld.
Leikskilningur og sendingageta Marels nýtast einnig miklu mun betur þegar hann hefur spræka menn sér við hlið til þess að sendast upp kantana, enda var það úr einni af hans sendingum sem markið kom. Undirritaður er mikill aðdáandi Marels, og vonar svo sannarlega að það sem sást til hans í kvöld sé það sem koma skal, og það er engum blöðum um það að fletta að mínu mati a.m.k. að Marel á heima ofarlega á miðjunni að stjórna sóknarleik.
Valsmaður leiksins að mati Valsara.is var að öðrum ólöstuðum Kjartan Sturluson, sem átti sinn besta leik í sumar, og þarf jafnvel að fara enn lengra aftur en það til þess að finna leik þar sem hann hefur verið jafn öruggur. Enfremur virðist sem Kjartan sé búinn að vera að æfa útspörk, því að sendingar frá honum í kvöld (og reyndar í öðrum leikjum sumarsins), eru óþekkjanlegar frá þeim oft heldur pínlegu boltum sem hefur verið í því að senda síðustu tímabil.
Valsarar.is vona svo sannarlega að Kjartan sé kominn í sitt gamla form, enda héldu þeir mikið uppá "kraftaverkamanninn", en hann virtist eiga ansi erfitt uppdráttar eftir að hafa verið kallaður inní landsliðshóp Íslands í fyrrasumar, og merkilegt nokk virtist sjálfstrausti hans hafa farið aftur eftir þá reynslu. Með svipaðri frammistöðu og í kvöld ásamt þessum stórbættu sendingum gæti Kjartan aftur verið að rúlla inná stall bestu markvarða Íslands.
Það er ekkert annað en jákvætt.
Að öðru leiti er maður barasta sáttur, pressan af fallbáráttu sem hefði blasað við liðinu hefði þessi leikur tapast er létta af liðinu, og valsliðið getur einbeitt sér að því að bæta leik sinn og hafa gaman það það sem eftir lifir móts, og vonandi náð að skemmta okkur fýlupúkunum sem höfum verið að drattast á valsleiki í núna á þriðja áratug (þó ungir og spengilegir séum).
Takk fyrir okkkur, áfram Valur!
Það er ekki laust við að maður prísi sig sælan eftir leik Vals og Þróttar, okkar menn náðu að skora 1 mark og þar við sat í eiginlega fáránlega jöfnum leik.gladur
Þegar ég segi fáránlega jöfnum leik, þá á ég við að fyrirfram hefði maður ekki búist við því að Valsmenn ættu að eiga í neinum vandræðum með Þróttara, og þegar ég segi fyrifram, þá meina ég auðvitað fyrir svona 2-3 mánuðum síðan.

Eftir kvöldið er maður eiginlega bara ótrúlega sáttur, að loksins skuli Valur ná að vinna leik, þó það sé gegn því liði sem augljóslega er það slakasta í Pefsídeildinni í ár ( sagt án þess að vilja styggja neinn ), og vonar maður að leikmenn Vals nái að taka sigurinn með sér sem vind í seglin, þó að augljóslega hefði verið skemmtilegra ef sigurinn hefði verið stærri og leikmenn valsliðsins komist almennilega á bragðið með það að skora mörk sem hefur verið akkilesarhæll liðsins í sumar.
Markið eina kom, og þrátt fyrir mýmörg tækifæri, duttu ekki fleiri mörk inn í þessum leik og veltir maður því fyrir sér að kannski séu valsmenn hreinlega orðnir afvanir markaskorun. En, svo getur þetta auðvitað líka bara verið gamla góða óheppnin.
Það var þó augljóst á byrjunarliðsskipan að Atli setti leikinn upp með það að mörk skyldu skoruð, og Pétur Markan sýndi það enn og aftur að hann á barasta að vera í byrjunarliðinu og ekkert múður, því að þó framherjar Vals séu hoknir af reynslu eru þeir ekki þeir sneggstu í bransanum og þurfa nauðsynlega á stuðningi að halda af köntunum sem Pétur augljóslega veitir, ásamt auðvitað nýfundna syninum Matta, sem var fjarri góðu gamni í kvöld.

baldvinssonLeikskilningur og sendingageta Marels nýtast einnig miklu mun betur þegar hann hefur spræka menn sér við hlið til þess að sendast upp kantana, enda var það úr einni af hans sendingum sem markið kom. Undirritaður er mikill aðdáandi Marels, og vonar svo sannarlega að það sem sást til hans í kvöld sé það sem koma skal, og það er engum blöðum um það að fletta að mínu mati a.m.k. að Marel á heima ofarlega á miðjunni að stjórna sóknarleik Valsliðsins.

KjartanValsmaður leiksins að mati Valsara.is var að öðrum ólöstuðum Kjartan Sturluson, sem átti sinn besta leik í sumar, og þarf jafnvel að fara enn lengra aftur en það til þess að finna leik þar sem
hann hefur verið jafn öruggur. Enfremur virðist sem Kjartan sé búinn að vera að æfa útspörk, því að sendingar frá honum í kvöld (og reyndar í öðrum leikjum sumarsins), eru óþekkjanlegar frá þeim oft heldur pínlegu boltum sem hefur verið í því að senda síðustu tímabil.
Valsarar.is vona svo sannarlega að Kjartan sé kominn í sitt gamla form, enda héldu þeir mikið uppá "kraftaverkamanninn", en hann virtist eiga ansi erfitt uppdráttar eftir að hafa verið kallaður inní landsliðshóp Íslands í fyrrasumar, og merkilegt nokk virtist sjálfstrausti hans hafa farið aftur eftir þá reynslu. Með svipaðri frammistöðu og í kvöld ásamt þessum stórbættu sendingum gæti Kjartan aftur verið að rúlla inná stall bestu markvarða Íslands.
Það er ekkert annað en jákvætt.


Að öðru leiti er maður barasta sáttur, pressan af fallbáráttu sem hefði blasað við liðinu hefði þessi leikur tapast er létta af liðinu, og valsliðið getur einbeitt sér að því að bæta leik sinn og hafa gaman það það sem eftir lifir móts, og vonandi náð að skemmta okkur fýlupúkunum sem höfum verið að drattast á valsleiki í núna á þriðja áratug (þó ungir og spengilegir séum).

Takk fyrir okkkur, áfram Valur!

Annars er orðið laust...

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 12 af 22