• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Titillinn í andlitið
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 21. september 2009 00:12
Segja má að væntingavísitalan hafi ekki verið neitt sérlega há þegar haldið var í Kaplakrikann í dag. Það er skrítið til þess að hugsa að ekki eru nema tvö ár síðan að Valur eyðilagði fyrirhugaða sigurhátíð FH á þessum stað og hirti síðan Íslandsmeistaratitilinn viku síðar. Í dag var möguleiki á að skemma partýið en himinn og haf aðskilur Valsmenn frá toppbaráttunni þetta árið. Við virtumst vera með þetta allt á hreinu fyrir 24 mánuðum en í ár og í fyrra var þvílíkur klassamunur á þessum liðum. „Hvar í fjandanum fór allt til fjandans hjá Val?“ flaug í gegnum kollinn á síðuskrifara þó nokkrum sinnum á meðan leik stóð líkt og svo oft áður í sumar.

Stundum fara hlutir hreinlega til fjandans hjá liðum. Við erum svo sem ekkert einir í því í ár og vorum það ekki heldur í fyrra, líkt og Skagamenn máttu reyna. Ekki er heldur langt síðan KR féll úr því að vera meistari í að vera ýmist fallkandídatar eða miðjumoðarar  í ein fimm tímabil. Keflavík var við borðbrún Íslandsbikarsins síðasta haust en í ár fór allt í vaskinn þótt fjölmiðlar pæli lítið í því. Kannski er það vegna höfuðborgar dekri  blaðamanna eða kannski  af því að Valur er búinn að vera svo áberandi lélegur að allir aðrir falla í skuggann af Hlíðarenda hlunkunum.

Valsliðið veitti alveg þokkalega mótspyrnu í dag fram að hálfleik. Í stöðunni 1-0 fyrir Íslandsmeistarana átti Helgi Sigurðsson tvö ágætis færi en voru mislagðir fætur.  Hinum megin fengu FH-ingar sinn skammt af sénsum líkt og aðrir andstæðingar Vals þetta tímabil. Á lokamínútunni kom Atli Guðnason FH í 2-0 með sínu öðru marki og þar með var Valurinn lagður. Seinni hálfleikur var að mestu tíðinda lítill og FH-ingar lönduðu titlinum í höfn af þeirri yfirvegun og öryggi sem einkennt hefur spilamennsku liðsins síðustu árin. Stöðugleiki FH er áðdáunarverður og svo virðist sem heildarsýn og stefna félagsins sé mun markvissari heldur en víðast hvar annars staðar og ljóst að við Valsmenn getum lært mikið af þeim í þessum efnum.

Í enn eitt skiptið í sumar var miðja Vals, borin uppi af Ian Jeffs, Sigurbirni og Baldri Bett, gjörsamlega  yfirspiluð.  Sigurbjörn virtist vera að ganga úr skaptinu á Íslandsmeistara ári Vals 2007 en stóð upp úr í ömurlegu liði síðasta árs. Þetta tímabilið virðist greinilegt að ellikerling er mætt í bæjarhlaðið og heimtar sitt. Hinir tveir eiga einhver ár upp á að hlaupa og hafa svo sem möguleika á að ná sér á strik á nýjan leik án þess að það sé margt sem bendi til þess miðað við þetta tímabil.

Vörnin var gloppótt eins og alltaf, menn misstu annað hvort boltann á hættusvæði, hlupu út úr stöðum eða voru of seinir í tæklingar. Allt er þetta orðið að kunnulegu stefi. Baldri Aðalsteins var þrykkt í hægri bakvörðin og kom það lítið á óvart þegar hann gleymdi því hlutverki og datt í sína náttúrulegu stöðu uppi á kantinum í nokkur skipti.  Það er með ólíkindum að það séu ekki til leikmenn úr 2. flokk félagsins sem geta fengið sína eldskírn og fyllt í þessar bakvarðastöður, sérstaklega þegar Valur hefur að nákvæmlega engu að keppa. Engu!

Sóknin með þá Helga Sig, Matthías og Arnar Svein átti lítið erindi enda ekki mikil hjálp í restinni af liðinu.  Menn náðu svo sem að komast í nokkur færi en það var aldrei nein veruleg ógnun í þessu tríói.

Ef það er þess virði að týna til einhverja ljósa punkta í leiknum í dag eru það helst hraustlegar tæklingar hjá Arnari "Geir Sveinssyni" í fyrri hálfleik og hins vegar Viktori Unnari Illugasyni undir lok leiks.  Sá síðarnefndi var tæklaður klunnalega af Davíð Þór Viðarssyni  sem komst upp með brot sitt eins og svo oft áður. Viktor var ekki sáttur, beið færis og straujaði fyrirliða FH á karlmannlegan hátt skömmu síðar. Klárlega besta augnablik Vals í leiknum og hefðu aðrir leikmenn vel mátt klára sinn spjalda kvóta með álíka tilburðum.

Sem betur fer er þessu tímabili næstum því lokið. Bara möguleg rassskelling gegn KR eftir. Valsarar.is eru búnir að út tuða sig fyrir allan peninginn í ár og taka út fyrirfram skammt fyrir næstu þrjú tímabil í það minnsta. Héðan í frá verður haldið kjafti eða skrifaðar tómar lofgreinar.

Digg    Facebook   
 
Hvað skal gera...
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 18. september 2009 14:00
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR.  Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.
Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valslðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar.
Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.
Karlalið Vals er í einkennilegri stöðu fyri komandi leiki gegn FH og KR.  Það er nefninlega svo, að Valsmenn hafa úrslit Íslandsmótsins nánast í hendi sér, því með sigri á FH setja þeir KR í færi við titilinn, en tapi þeir í Kaplakrika þá eru FH-ingar sjálfkrafa Íslandsmeistarar. Leikar vandast ennþá meira þegar horft er til þess að lokaleikur Vals í vonbrigðamótinu 2009 er einmitt gegn KR á Hlíðarenda.

Það er því súr kostur á báða bóga, því fátt vekur Völsurum jafn mikla ógleði og sá möguleiki að KR landi Íslandsmeistaratitli ( þá er nú skömminni skárra að spútniklið FH taki þetta ), en á hinn bóginn er það líka ansi biturt að láta fagna meistaratitli framaní sig í Kaplakrika.
piss
Sigur í báðum eftirlifandi leikjum væri auðvitað ákjósanlegast; það myndi nefninlega þýða að Valsliðið myndi pissa a skrúðgöngu FH-inga, vekja KR-ingum falskar vonir og gera ekkert úr þeim vonum viku síðar.  

If you can't be good, be bad !

Tveir sigrar á toppliðum deildarinnar yrðu aukinheldur fínt veganesti fyrir leikmenn og stuðningsmenn inní veturinn.

En, hvernig sem þetta nú annars spilast; áfram Valur!

Digg    Facebook   
 
Hallærislegt röfl
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 17. september 2009 00:04

gretsky

 

Grétar Sigfinnur Sigurðsson fyrirliði KR gerði sekan í kvöld um að detta í leiðinda sálfræði 103 pakka fyrir leik FH og Vals í komandi umferð. Væntanlega hefur þetta verið að undirlagi Tóta trúðs, þjáfara KR. Tilgangurinn á víst að helga meðalið í þessum efnum en einhvern veginn hljómar þetta bara eins og skrípa læti í skólastofu og sorglegt að sjá þennan fyrrum leikmann Vals detta niður á þetta slor plan. Ef Valur vinnur þá getur Grétar tekið "sjáið hvað ég var klár" frasann og ef Valur tapar stigum þá er "djöfull vissi ég það" lumman í hinum vasanum. Trikk sem hefur verið gert milljón sinnum áður og ekkert lengur töff við svona bull.

Digg    Facebook   
 
Köflótt
Höfundur: Ásgeir Tryggvason   
Mánudagur, 14. september 2009 18:27

Valsarar voru mættir á  Hlíðarenda í gær til að horfa á sína menn taka á móti Stjörnumönnum.  Kjartan var sem fyrr í markinu en í vörninni voru Atli og Reynir og Einar Marteinsson og Baldur Ingimar sáu um bakvarðarstöðurnar að þessu sinni.  Á  miðjunni voru Bett og Sigurbjörn og vængjunum voru Matti og Markan.  Frammi var Helgi Sig og Arnar Geirsson.

Formúlu 1 keppnin á  Ítalíu og snókermót í Sjænghæ töfðu mig nægilega mikið þannig að fyrsta markið fór framhjá mér.  Ég hef líklega verið á leiðinni upp tröppurnar og inní salinn þegar markið kom.  Staðan 1-0 núll fyrir Stjörnunni eftir þrjár mínútur.  Eftir þetta var eins gott að fylgjast vel með því ómögulegt var að reiða sig á batteríið sem á að telja mörkin þarna því það skiptir ansi oft um skoðun.  

Hvað um það.  Valsmenn voru nú búnir að bretta upp olnbogana og setja í gír.  Helgi Sig jafnaði með góðum skalla eftir níu mínútur og sóknarmenn Vals áttu satt að segja frekar auðvelt um vik þarna.  Arnar Geirsson var mjög hættulegur og komst inní sendingu tilbaka á Stjörnumarkmanninn.  Hann lék á markmanninn en skotið fór hins vegar framhjá.  Arnar var ekki lengi að bæta upp fyrir þetta og skoraði gott mark.  Hans fyrsta mark fyrir Val og eitthvað sem hann hefur beðið eftir síðan hann var fimm ára.   

2-1 fyrir Val í hálfleik og Valsmenn klárlega skárri aðilinn í leik sem skipti litlu sem engu máli.  Ég setti fram spá við vin minn í hléinu að þetta liti út fyrir að vera leikur þar sem Markan yrði skipt útaf á 59. mínútu.  Hann kinkaði kolli.  Nánar að því síðar.

Í hálfleik fór kallinn að fá sér kaffi.  Eitthvað hefur bruggunin klikkað því að ekkert kaffi var til.  Það var beðið í nokkrar mínútur og þá kom kaffið og gerði alla glaða.  Samt verður þetta að teljast frekar mikil afturför að vera ekki með kaffið á hreinu í hléi, sérstaklega þegar litið er til þess að ársmiðakaffið er ekki lengur til staðar.  Já, menn sakna ársmiðakaffisins.

Seinni hálfleikur.  Valsmenn yfir, Markan, Matti og Arnar með góð hlaup reglulega.  Spilið hins vegar fór minnkandi.  Stjörnumenn voru alltaf að verða hættulegri og hættulegri en lánleysi virtist ætla verða þeirra banabiti þarna.  Reglulega voru þeir í sjensum sem áttu að geta gefið eitthvað en ýmist gáfu menn þegar þeir áttu að skjóta, skutu þegar þeir áttu að gefa hann eða gerðu hvorugt.  Á fimm mínútna kafla fékk Stjarnan þrjár aukaspyrnur við teig Valsmanna en þær voru hverri annarri lélegri.   

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Smábæjarblús
Höfundur: Valþór Druzin   
Laugardagur, 12. september 2009 19:50
Sjaldan hefur undirritaður heyrt annan eins barlóm og minnimáttarkenndarvæl eins og nú berst að austan, n.t.t. frá Selfossi vegna frétta þess efnis að Gunnlaugur Jónsson hefur ákveðið að stíga skref uppávið á sínum starfsferli og taka við þjálfun hins sögufrægaliðs Vals.

Yfirlýsingagleði leikmanna Selfoss ríður ekki við enteyming, og vanda þeir hvorki fráfarandi þjálfar sínum, né knattspyrnufélaginu Val kveðjurnar.tissue
Undirritaður gerir ráð fyrir því að þessi franskbrauð sem spila í Selfosstreyjunum, hljóti að sitja allir saman í félagsheimili Selfossbæjar og hamist við að skrifa lesendabréf í Morgunblaðið, milli þess sem þeir liggja á línunni í þjóðarsál Rásar 2, óvitandi að hún hefur verið lögð niður, enda berast fréttir oft seint í sveitina.

"Þetta er bara skítlegt"...
"...ég er mjög ósáttur við vinnubrögðin"
"...svo koma hrægammarnir úr Reykjavík og liggja á honum"
"Valur er alltaf skítaklúbbur í mínum huga eftir þetta"
"...ömurlegt, hvort sem það er hjá Val eða Gulla"
"...bara ömurlegt"
"...ömurlegt hjá Valsmönnum"

-- valdar tilvitnanir úr viðtölum við leikmenn Selfoss á Fótbolta.net


gulli_jons


Við hér á Valsarar.is viljum hinsvegar bjóða Gunnlaug velkominn á Hlíðarenda og vonum að hann nái að rífa liðið upp á næsta ári, og koma því á þann stall sem því ber. 

Velkominn Gulli, velkominn!


Eins vonum við að Selfyssingar jafni sig fljótt á þessu, og einbeiti sér að því sem þeir gera best; að pússa Hondurnar sínar.

Digg    Facebook   
 
Kaldar kveðjur
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 07. september 2009 10:54

Þetta hljóta að vera allra köldustu kveðjur sem nokkrir stuðningsmenn hafa sent leikmanni eigin liðs, nokkurntímann, nokkursstaðar.
Tekið skal fram, að þessi upptaka er frá því um mitt sumar, þegar kr-ingar heimsóttu Basel í Sviss, og Prince Rajcomar var ennþá leikmaður kr.

Það hlýtur að vera meiriháttar gaman að vera leikmaður í vesturbænum, eigandi von á svona svakalegum pillum frá sínum eigin stuðningsmönnum.

 

 

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 11 af 22