• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Nokkur vel valin ummæli...
Höfundur: Valþór Druzin   
Miðvikudagur, 07. október 2009 11:15
Áfram Valur, aldrei átt eins erfitt með kjósa besta leikmanninn, engin átti það skilið.
Það var frekar erfitt að velja Valsmann mótsins, besta leikmanninn og svo þann sem sýndi mestu framfarirnar því mér þótti eiginlega enginn í þessu liði vera að standa sig í sumar. Arnar Sveinn var svona eins og  þingmaður sem kemur nýr inn á þing í miðju hruni - stóð sig ekkert áberandi vel, en það er ekki hægt að kenna honum um hrunið.
Burt með þessa menn. Nýtt lið takk.
Hommar!
Áfram Víkingur
Allt við þetta sumar var ömurlegt...nema þegar Matti kom aftur!
It can't get any worse then t
Það vantar tilfinnanlega Atla Eðvalds sem valkost.  Hann er tvímælalaust mestu vonbrigðin og skúrkur sumarsins.
Það hefði mátt hafa þjálfara með í kjörinu ;)
vill meina að hetja sumarsins eru stuðningsmenn  sem mætu á leiki liðsins með þá vitneskju að ekkert gengi hjá því. Skúrkar sumarsins er Stjórninn sem er búin að klúðra alverulega uppbyggingu liðsins.
Það er ekki hægt að velja 1 leikmann sem skúrk sumarsins, liðið í heild er skúrkur sumarsins. Vals kveðja Sigurður
Áfram Valur
Það vantar möguleikann á geta sleppt því að velja leikmann og svo Atla Eðvalds í skúrk sumarsins
Að neðan má finna nokkur vel valin ummæli sem kjósendur létu flakka með atkvæðum sínum í könnuninni okkar hér að neðan. Ljóst þykir að margir stuðningsmanna Vals eru ansi bitrir yfir árangri liðsins, og aðal umkvörtunarefni þeirra sem athugasemd gerðu, var að ekki væri hægt að velja fleiri en einn í ýmsum flokkum og að þjálfarinn væri ekki með. Ojæja, kannski verður það næst.  

Úrslit úr kjörinu koma hinsvegar seinnipartinn.

"Áfram Valur, aldrei átt eins erfitt með kjósa besta leikmanninn, engin átti það skilið."

"Það var frekar erfitt að velja Valsmann mótsins, besta leikmanninn og svo þann sem sýndi mestu framfarirnar því mér þótti eiginlega enginn í þessu liði vera að standa sig í sumar.
Arnar Sveinn var svona eins og  þingmaður sem kemur nýr inn á þing í miðju hruni - stóð sig ekkert áberandi vel, en það er ekki hægt að kenna honum um hrunið."

"Burt með þessa menn. Nýtt lið takk."

"Hommar!"  *

"Allt við þetta sumar var ömurlegt...nema þegar Matti kom aftur!"

"It can't get any worse then this"

"Það hefði mátt hafa þjálfara með í kjörinu ;)"

"Vill meina að hetja sumarsins eru stuðningsmenn  sem mætu á leiki liðsins með þá vitneskju að ekkert gengi hjá því. Skúrkar sumarsins er Stjórninn sem er búin að klúðra alverulega uppbyggingu liðsins."

"Það er ekki hægt að velja 1 leikmann sem skúrk sumarsins, liðið í heild er skúrkur sumarsins..."

*[Innsk. Valsara.is: Ekki er ljóst hverjum þetta innslag var ætlað,]

Digg    Facebook   
 
Markamaskínan kveður
Höfundur: Valþór Druzin   
Mánudagur, 05. október 2009 20:54

Fyrir stuttu síðan barst sú tilkynning að gamla brýnið, markamaskínan Helgi Sigurðsson, sé hættur knattspyrnuiðkun með Val.

Knattspyrnufélagið Valur og leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu, Helgi Sigurðsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Helga Sigurðssonar hjá félaginu. 

Helgi hefur spilað þrjú ár á Hlíðarenda og á þeim tíma er hann markahæsti leikmaður félagsins. Helgi átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitli félagsins árið 2007 og hefur í alla staði reynst frábær liðsmaður á Hlíðarenda. 

Knattspyrnufélagið Valur vill þakka Helga fyrir tímann á Hlíðarenda og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Við Valsarar.is viljum gefa manninum sem átti stóran þátt í því að færa okkur titilinn 2007, rafrænt klapp á bakið og þakka honum kærlega fyrir góðar stundir á Hlíðarenda. 
Án Helga hefði sennilega enginn Íslandsmeistaratitill náðst í hús fyrir 2 árum, enda var hann sennilega besti maður mótsins það árið.

Við á valsarar.is óskum Helga enfremur góðs gengis á nýjum stað.

Digg    Facebook   
 
Gróa segir
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 01. október 2009 10:54

hlerad

Gróa er á fullu þessa dagana og laumaði eftirfarandi að okkur;

Ólýginn sagði mér, en hafðu mig samt ekki fyrir því blessaður, að Valur á í viðræðum við nokkra leikmenn um þessar mundir. Skagamennirnir Jón Vilhelm Ákason og Hafþór Ægir Vilhjálmsson munu skrifa undir hjá Val á næstu dögum. Jón Vilhelm er að renna út á samning við ÍA og Hafþór sem er samningslaus fær annað tækifæri til að sanna sig hjá Val. Einnig er verið að reyna að fá Alfreð Finnbogason hjá Breiðablik en líklegast mun hann fara erlendis í haust. Verði hann hér heima er Valur vænlegasti kosturinn. Svo er það Viktor Bjarki Arnarson sem ætlar að láta gamlan draum rætast og leika með Val næsta sumar en hann er við það að klára samning sinn hjá Lilleström í Noregi. Fleira var það ekki í bili. 

 

Digg    Facebook   
 
Hvað fannst þér um sumarið 2009
Höfundur: Valþór Druzin   
Miðvikudagur, 30. september 2009 19:36
Núna gefst stuðningsmönnum kostur á að gefa sitt álit á leikmönnum liðsins í sumar. Bestu / verstu, bjartasta / dimmasta vonin o.s.frv.
Gilt netfang er skilyrði fyrir þáttöku, en annars er könnunin nafnlaus.

Niðurstöður verða kynntar eftir rétta viku, go nuts !

No active form found

Digg    Facebook   
 
Bölvun Murphys
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 28. september 2009 13:32

 

 

375818-voodoo_large

 

Vorið kom með væntingar og sumarið með svör orti Bjartmar Guðlaugsson fyrir einhverjum 20 árum síðan. Væntingarnar voru óljósar fyrir þetta tímabil þrátt fyrir að Valur tefldi fram dýru liði. Dýrasta liði Íslandssögunnar sögðu sumir og miðað við árferði þá var sú fullyrðing ekki fjarri lagi. Stjórnin bætti við mönnum sem voru með þokkalegustu ferilskrár en á móti kom að aðeins tveir þessara leikmanna gátu talist vera ungir menn á uppleið. Restin af viðbótunum voru menn í ljósaskiptum á sínum ferli.

Fyrir Íslandsmótið var því enn mörgum spurningum ósvarað og undirbúningstímabilið gaf mönnum tilefni til að vera tvístígandi yfir því sem var í vændum. Hér á Valsarar.is voru þessar hugleiðingar meðal annars ritaðar:

Tilvitnun hefst:


Mikið er gert úr hinum klisjukennda X-factor hjá liðum fyrir Íslandsmót. Til að Valsarar.is dýfi fætinum í þann fúla pytt má nefna að helsti X-factor Valsliðsins er sá hversu margir X-factorarnir eru núna rétt fyrir mót. Mun Kjartan halda stöðu sinni? Munu Atli Sveinn og Reynir ná saman? Verður eitthvað bit í miðjunni? Hverjir verða sóknar – parið/tríóið? Klárast hugmyndabanki Willums eins og hjá KR og Þrótti?  

Það er því eins gott að örlög Valsliðsins verði ekki sett undir hæl
Lögmáls Murphy’s : „Ef eitthvað getur farið úrskeiðis, mun það gera það.“

Tilvitnun lýkur
(Sjá nánar:  http://valsarar.is/p-lingar/logmal-murphys )

 

fallandi

 

Svo þessum spurningum sé svarað nú að móti loknu þá er niðurstaðan á þessa leið:

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Síðasti naglinn
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 27. september 2009 17:54

takefuss


Það er ekki mörgu við að bæta við lýsingu á leiknum í gær sem ekki er hægt að copy / paste-a úr öðrum leiklýsingum í sumar. Í þetta skipti fékk Björgólfur Takefusa að leika lausum hala innan um lánlaust lið Vals og niðulæging tímabilsins hreinlega algjör. Frammistaða Takefusa var eins og að horfa á Jackie Chan mynd með aðeins þybbnari gaur í aðalhlutverki. Björgólfur tók Valsliðið og gjörsamlega buffaði það án þess að þurfa svitna mikið. Fimm mörk frá einum og sama gæjanum og í raun hefði þau vel getað verið fleiri.

Valsmenn virtust aðeins ætla að bíta frá sér í seinni hálfleik en Þóroddur Hjaltalín ákvað að eyðileggja þá möguleika með því að gefa Guðmundi Stein tvö gul spjöld fyrir nákvæmlega engar sakir. Það er með ólíkinum hvað dómgæslu fer hrakandi á Íslandi og er Þóroddur gott dæmi um vita vonlausan dómara. Hvernig maðurinn gat refsað Guðmundi með rauðu spjald fyrir tvö smá bort en ekki gefið markverði KR rautt spjald þegar hann tók Marel Baldvinsson niður í fyrri hálfleik er ekki hægt að útskýra nema með því að segja að hann er hreinlega ekki með starf sitt á hreinu. KR-ingar högnuðust klárlega á brotinu sem er einmitt það sem á ekki að gerast. Valsmenn virtust einnig gera tilkall til þriðju vítaspyrnunnar þegar boltinn virtist fara í upprétta hönd varnarmanns KR en slíku var ekki til að skipta. 

Hvað sem öðru líður þá voru leikmenn Vals rassskelltir í gær í 11 sinn í deildinni í sumar. Félagið var stórtækt á leikmannamarkaðnum fyrir tímabilð en uppskeran er ein sú skammarlegasta í sögu þess. Getum við þakkað fyrir að fjölgun í deildinni á síðasta ári þýddi að liðið var ekki í fallslag í lokaumferðinni. Aðeins Þróttur og ÍBV náðu ekki að sigra Val í sumar og segir það heilmikla sögu.  

Frekara hraun um ný afstaðið tímabil er væntanlegt á næstu dögum.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 22