• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Herra Ísland á heimleið!
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 16:58
Herra Ísland!Orðið á götum Hlíðahverfis, er að þær fabúleringar sem við á völsurum.is vorum með fyrr á árinu varðandi endurkomu Hr. Íslands, séu mögulega að verða að veruleika. 
Garðar Gunnlaugsson ku vera í viðræðum við Val, og fari allt að óskum getur vel farið svo að Garðar spóki sig í Valsbúningi næsta sumar.

Við munum að sjálfsögðu fylgjast með framvindunni, en mundu að þú last þetta fyrst á valsarar.is


Digg    Facebook   
 
Fundur með Gulla
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 22. október 2009 17:22
Samkvæmt spjallborði hins opinbera ætlar nýr þjálfari meistarflokks karla í knattspyrnu að halda fund með stuðningsmönnum þann 3ja nóvember n.k. 20.30, þar sem Gulli ætlar að fara yfir það sem koma skal hjá meistarflokki á næstu misserum.
Meðlimir úr stjórn knattspyrnudeildar verða líka á staðnum.

gulli_jons


Við á Valsarar.is fögnum þessu framtaki, enda er ekki vanþörf á að minnka bilið á milli liðs og stuðningsmanna hjá félaginu, og hvetjum við sem flesta til að mæta, og mæla líka með því að fólk undirbúi jafnvel spurningar sem það vill punda á Gulla og félaga.

Þau ykkar sem eigið erfitt með að muna allt mögulegt (og hin ykkar líka), getið sótt ykkur  áminningarfærslu í Outlook með því að hægrismella hér og gera Save-As... vista skránna og tvísmella á hana. Þetta útbjuggum við alveg séstaklega fyrir ykkur af einskærum almennilegheitum.  Svona erum við góðir gæjar.


Digg    Facebook   
 
Getraunin...
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 22. október 2009 06:42
Glöggur lesandi síðunnar fær mikið hrós, lof og prís ef hann getur lesið í og túlkað rétt myndina hér að neðan, sem lýsir ansi áhugaverðri þróun sem er að eiga sér stað í ákveðnu mengi talna hérlendis.

throun

Getiði nú !

Digg    Facebook   
 
Frjáls eins og fuglinn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 16. október 2009 12:25

frjalsi1



Þeir sem mætt hafa á handboltaleiki Vals í karla- og kvennaflokki hafa eflaust tekið eftir því að keppnisbúningar félagsins bera ekki neinar auglýsingar. Ef einhver var að vonast eftir að Valur væri að taka Barcelona á þetta og sleppa því að hafa aðalstyrktaraðila þá þarf sá draumur líklega að bíða um sinn.

Frjálsi fjárfestingabankinn sem auglýst hefur á öllum keppnistreyjum Vals frá árinu 2006 er hættur að styrkja félagið. Samkvæmt heimildum valsara.is hefur bankinn ekki borgað fyrir auglýsingar frá því í mars eða þegar Fjármálaeftirlitið yfirtók SPRON. Síðan þá hefur Frjálsa verið stjórnað af slitastjórn sem hefur það eitt að markmiði að hámarka eignir hans.

Samningur Vals við Frjálsa var gerður þegar góðærið var við það að ná háflóði eða í maí 2006. Í tilefni samningsins kom eftirfarandi fréttatilkynning á valur.is:

Tilvitnun hefst:

Frjálsi fjárfestingabankinn aðal styrktaraðili Vals
Frjálsi fjárfestingabankinn og Knattspyrnufélagið Valur hafa undirritað samning um að Frjálsi fjárfestingabankinn verður aðal styrktaraðili félagsins til næstu fimm ára. Mun vörumerki Frjálsa fjárfestingabankans prýða keppnistreyjur allra keppnisflokka Vals í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik bæði meistaraflokka og yngri flokka karla og kvenna. Styrktarsamningurinn er að verðmæti rúmlega 50 milljónir króna og gerir Val kleift að halda úti enn öflugra starfi í harðri baráttu um titla á komandi leiktímabilum í meistaradeildum karla og kvenna. Jafnframt verður lögð enn ríkari áhersla á uppbyggingarstarf yngri flokka félagsins.

Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingabankans:
”Það er mikilvægt fyrir Frjálsa fjárfestingabankann að tengjast svo öflugu íþrótta og uppeldisstarfi sem Valur starfrækir. Við erum stolt af því að tengja nafn okkar fyrirtækis við þetta rótgróna félag. Frjálsi fjárfestingabankinn væntir mikils af þessu samstarfi.”

Grímur Sæmundsen formaður Vals:
”Fyrir Val er þetta ómetanlegur stuðningur. Við fáum nauðsynlegt fjármagn og ekki síður mikilvægan stuðning sem bein tenging við öflugt fyrirtæki veitir íþróttafélagi. Við munum sjá til þess að samningurinn nýtist báðum aðilum vel. Hjá Val eru miklir uppbyggingartímar framundan bæði í mannvirkjagerð og félagsstarfi”

Tilvitnun lýkur.

batur2



Kristinn Bjarnason fyrrverandi framkvæmdastjóri bankans var aðal maðurinn á bakvið samninginn en hann hætti störfum hjá Frjálsa í maí síðastliðnum.Ómetanlegur stuðningur sagði þáverandi formaður Vals, Grímur Sæmundsen, en samningurinn nam 10 milljónum króna á ári og því er ljóst að Valur er að missa stóran spón úr aski sínum.

Á aðalfundi Vals síðastliðið vor var greinilegt að kostnaðarliðir félagsins eru stórir og ófáir. Allar áhættufjárfestingar knattspyrnudeildar í kringum síðasta tímabili eiga það sameiginlegt að hafa skilað engu til baka en við þær bætast starfslokasamningar við Willum Þór og Helga Sigurðsson. Ekki verða neinar tekjur af þátttöku í Evrópukepnni til að brúa bilið og fátt bendir til að einhverjir Valsmenn séu að stökkva í atvinnumennsku á næstunni.

Stjórnenda á Hlíðarenda bíður því ærlegt verkefni að galdra fram álika upphæðir í reksturinn á næstunni ef ekki næst að skera hressilega niður en fleiri styrktaraðilar Vals hafa dregið saman seglin eða hreinlega farið á hliðina á undanförnum misserum.
eiga það sameignlegat að

Digg    Facebook   
 
Velkomnir
Höfundur: Valþór Druzin   
Fimmtudagur, 08. október 2009 14:09
Við á Valsarar.is viljum bjóða litla bróður úr Hafnafirði velkominn á Hlíðarenda á komandi tímabili, enda ljóst að krafa KSÍ / UEFA að hver einasti íþróttaklúbbur landsins (sem langflestir eru skítblankir) neyðist til þess byggja sér rándýra stúku til þess eins að fá að spila fótbolta í efstu deild er fáránleg á litla Íslandi, sérstaklega litla Íslandi kreppunnar.

welcome_mat


Vonum svo að það komi peningar í Valsbudduna með þessu.

Digg    Facebook   
 
Þetta fannst þér um sumarið 2009
Höfundur: Valsarar.is   
Miðvikudagur, 07. október 2009 14:33
Neðangreindar eru niðurstöður úr könnunninni okkar hér að neðan, og við þökkum kærlega þeim sem tóku þáttu. Efstu 3 eru birtir fyrir hverja spurningu, en kosning í 1sta sæti var ansi afgerandi í flestum spurningum.
Það þýðir svo ekkert að grenja yfir niðurstöðunni, þetta er bara það sem fólki fannst.

Valsmaður mótsins: Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Matthías Guðmundsson
Atli Sveinn Þórarinsson
Besti leikmaðurinn: Marel Jóhann Baldvinsson
Pétur Georg Markan
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Versti leikmaðurinn:

Bjarki Bergmann Gunnlaugsson
Reynir Leósson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Mestu framfarirnar: Arnar Sveinn Geirsson
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Haraldur Björnsson
Mesta afturförin: Helgi Sigurðsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Reynir Leósson
Bjartasta vonin Arnar Sveinn Geirsson
Haraldur Björnsson
Viktor Unnar Illugason og
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Mestu vonbrigðin Marel Jóhann Baldvinsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Reynir Leósson
Hetja sumarsins Matthías Guðmundsson
Pétur Georg Markan
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Skúrkur sumarsins Ólafur Páll Snorrason
Arnar Bergmann Gunnlaugsson
Kjartan Sturluson /
Reynir Leósson /
Bjarni Ólafur Eiríksson
Mestu framfarirnar

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 22