• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hefur þú eitthvað að segja?
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 22. mars 2010 15:00
hst

Er eitthvað sem þér liggur á hjarta varðandi Knattspyrnufélagið Val sem fær ekki réttan farveg? Brennur þú innan í þér en ert kominn með leið á að hlusta á Eyþór Arnalds og Todmobile?

Valsarar.is leita að beittum pennum til að skrifa um kappleiki, menn, mýs og málefni sem tengjast Hlíðarendastórveldinu.

Áhugasamir hafið samband með því að senda póst á letrix hjá gmail punktur com.

Digg    Facebook   
 
Vill hann ekki Pepsi?
Höfundur: Valsarar.is   
Miðvikudagur, 09. desember 2009 19:52

 

gardargunn22
Nárameiðsli hafa plagað Garðar undanfarið

Garðar Gunnlaugsson var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Viðtalið er um margt áhugavert og hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni hér: http://www.fotbolti.net/05122009.mp3

Eiginmaður Ásdísar Rán ræddi meðal annars hugsanleg félagsskipti til Vals í þættinum. Af ummælum hans að dæma virðist kappinn ekkert alltof spenntur fyrir að koma heim og spila á Hlíðarenda en hugur hans virðist liggja alls staðar annars staðar en á Íslandi. Jafnvel Katar kemur til greina fremur en rokið á Klakanum.

Garðar segist vera með tilboð frá liði í sænsku B-deildinni en hann náði góðum árangri þar með IFK Norrköping og skoraði 30 mörk í 45 leikjum. Það er ekki nokkur spurning að Valur hefur þörf fyrir iðinn markaskorara en aftur á móti er spurning í hvaða ástandi Garðar er eftir vistina í Búlgaríu. Á meðan dvöl hans hjá CSKA Sofiu stóð lék hann ekki nema fimm leiki og glímdi við nárameiðsli nær allan sinn tíma á Balkanskaganum. Sigurvegari Herra Ísland keppninnar árið 2003 þarf að sanna getu sína á nýjan leik en spurningin er hvort það verður Pefsí-deildin eða Superrettan sem verður fyrir valinu.
Garðar Gunnlaugsson var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Viðtalið er um margt áhugavert og hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni hér: http://www.fotbolti.net/05122009.mp3
Eiginmaður Ásdísar Rán ræddi meðal annars hugsanleg félagsskipti til Vals í þættinum. Af ummælum hans að dæma virðist kappinn ekkert alltof spenntur fyrir að koma heim og spila á Hlíðarenda en hugur hans virðist liggja alls staðar annars staðar en á Íslandi. Jafnvel Katar kemur til greina fremur en rokið á Íslandi.
Garðar segist vera með tilboð frá liði í sænsku B-deildinni en hann náði góðum árangri þar með IFK Norrköping og skoraði 30 mörk í 45 leikjum. Það er ekki nokkur spurning að Valur hefur þörf fyrir iðinn markaskorara en aftur á móti er spurning í hvaða ástandi Garðar er eftir vistina í Búlgaríu. Á meðan dvöl hans hjá CSKA Sofiu stóð lék hann ekki nema fimm leiki og glímdi við nárameiðsli nær allan sinn tíma á Balkanskaganum. Menn lifa bara visst lengi á fornri frægð og ljóst er að sigurvegari Herra Ísland keppninnar árið 2003 þarf að sanna getu sína á nýjan leik.

 

Digg    Facebook   
 
Aftur tekur Eiður Börkinn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 04. desember 2009 16:53

babobeid2

Á dögunum ræddu Valsarar.is um það þegar Eiður Smári og Höddi Magg tóku Börkinn og tjáðu sig sitt á hvað um mál sem ansi fáir höfðu áhuga á. Eiður virðist ekki hafa farið eftir föðurlegum ráðleggingum síðunnar heldur er hann aftur farinn í fjölmiðla með mál sem hefði fjarað fljótt út ef Eiður hefði látið kyrrt liggja.  

Út í hinum stóra heimi er talað um Barböru Streisand áhrifin þegar kemur að svona málum. Í stuttu máli þá útskýrast þessi áhrif á þann veg að ef reynt er að þagga niður vandræðalegar fréttir þá fá enn fleiri áhuga á þeim heldur en ef menn hefðu einfaldlega vit á að tjá sig ekki.

En Eiður Smári sem hefur verið með dýrasta spunameistara landsins, Eggert Skúlason, í vinnu fellur beint í gamalkunnar gildrur. Eflaust veldur það uppnámi að sjá slæma forsíðumynd af sér en þetta eru ekki flókin fræði. Svo vitnað sé í ritsjóra Morgunblaðsins: "Þegar þú ert kominn ofan í holu, hættu þá að moka."

 

Digg    Facebook   
 
Við skammdegis þunglyndi
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 01. desember 2009 13:37

spkerti2


Í tilefni af því að desember er kominn er ekki úr vegi að minna okkur á að bráðum tekur við betri tíð með hækkandi sólu. Ef einhverjir Valsarar eru að tapa sér í skammdeginu þá er ekki úr vegi að rifja upp ánægjulegri tíma heldur en síðasta leikár í fótboltanum. Eftirfarandi eru myndbönd af mbl.is þegar Valur var að tryggja sér titilinn 2007. Njótið.


Viðtöl eftir leik FH og Vals í 17. umferð árið 2007

Viðtöl eftir leik Vals og HK í 18. umferð árið 2007.

Digg    Facebook   
 
Brottför hjá Baldri?
Höfundur: Valsarar.is   
Laugardagur, 28. nóvember 2009 15:28
Brottför hjá Baldri?
Einn helsti lykilleikmaður Vals á síðustu árum, Baldur Ingimar Aðalsteinsson er kominn með lausan samning í enn eitt skiptið. Frá því Baldur gekk til liðs við okkur í 1. deildinni fyrir tímabilið 2004 hefur hann jafnan gert saming til tveggja ára.
Eftir titil tímabilin 2005 (þar sem Baldur skoraði sigurmark bikarkeppninnar) og 2007 (þar sem Baldur skoraði fyrra markið gegn FH í 17. umferð) má segja að Húsvíkingurinn hafi verið í topp samningsaðstöðu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Meiðsli hafa þó plagað kappann allar götur síðan og má telja næsta öruggt að Valur geti ekki boðið honum sambærileg laun nú og á haustdögum 2007.
Baldur er samningsbundinn hjá Val til áramóta en lítið virðist þokast í rétt átt í viðræðum við Val um þessar mundir. Orðið á götunni er að mörg lið horfi hýru auga til Baldurs og eru þá Suðurnesjaliðin helst nefnd í því sambandi. Kvótagreifarnir í Grindavík eru aftur komnir með veskin á loft en sterkari er orðrómurinn um að Willum Þór Þórsson leggi ofurkapp á að fá Baldur til sín til Keflavíkur. Baldur býr og starfar í Reykjavík og því er það helst spurning hvort hann leggi daglegar ferðir um Reykjanesbrautina fyrir sig.
Stjórn Vals gerði vel á sínum tíma í að ná í þennan öfluga leikmann sem spilaði stórt hlutverk hjá sigursælu liði ÍA og ekki síður stærra hlutverk eftir að Valur komst í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Eftir misheppnað eyðslufyllerí fyrir þetta tímabil og brotthvarf helstu styrktaraðila félagsins er ljóst að menn þurfa að brýna niðurskurðarhnífinn þennan vetur.
Eins er óljóst hversu mikla áherslu Gunnlaugur Jónsson leggur á að halda Baldri en hann hefur bætt við ungum miðjumönnum í Valsliðið undafarið sem eru augljóslega nokkrum launaflokkum neðar en þeir sem Valur hefur samið við á síðustu árum. Það gæti því verið komið að kveðjustund fyrir Baldur.
Einn helsti lykilleikmaður Vals á síðustu árum, Baldur Ingimar Aðalsteinsson er kominn með lausan samning í þriðja skiptið frá því að hann gekk til liðs við Val árið 2003. Baldur hefur jafnan gert samning til tveggja ára við Val sem kom sér vel fyrir leikmanninn við samnings endurnýjun í síðustu tvö skipti. En skjótt skipast veður í lofti og ljóst að annað umhverfi blasir við í dag.

baldur2
Eltir Baldur Willum til Keflavíkur?

Eftir titil tímabilin 2005 (þar sem Baldur skoraði sigurmark bikarkeppninnar) og 2007 (þar sem Baldur skoraði fyrra markið gegn FH í 17. umferð) má segja að Húsvíkingurinn hafi verið í drauma samningsaðstöðu við Val. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og ýmis smávægileg meiðsli plagað kappann í nær tvö ár þannig að hann hefur verið inni og út úr liðinu sitt á hvað nær allan þennan tíma. Öruggt er að Valur geti ekki boðið honum sambærileg laun nú og á haustdögum 2007 auk þess er óljóst hvernig Baldur kemur undan þessari strjálu spilamennsku.

Baldur er samningsbundinn hjá Val til áramóta en lítið virðist þokast í rétt átt í viðræðum við Val um þessar mundir samkvæmt heimildum Valsara.is. Orðið á götunni er að mörg lið horfi hýru auga til Baldurs og eru þá Suðurnesjaliðin helst nefnd í því sambandi. Kvótagreifarnir í Grindavík eru aftur komnir með veskin á loft en sterkari er orðrómurinn um að Willum Þór Þórsson leggi ofurkapp á að fá Baldur til sín til Keflavíkur. Baldur býr og starfar í Reykjavík og því er það helst spurning hvort hann leggi daglegar ferðir um Reykjanesbrautina fyrir sig. Síendurtekin meiðsli Baldurs setja eflaust líka strik í reikninginn og dregur eflaust úr áhuga einhverra liða.

Stjórn Vals gerði vel á sínum tíma í að ná í þennan öfluga leikmann sem spilaði stórt hlutverk hjá sigursælu liði ÍA og ekki síður stærra hlutverk með Val eftir að félagið komst í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Ef ekki væri fyrir þrálát meiðsli hefði Baldur líklega getað átt prýðilegan feril í Skandinavíu líkt og margir aðrir frambærilegir íslenskir knattspyrnumenn. Þess í stað hafa ÍA og Valur notið hæfileika hans. 

Eftir misheppnað eyðslufyllerí fyrir þetta tímabil og brotthvarf helstu styrktaraðila félagsins er ljóst að menn þurfa að brýna niðurskurðarhnífinn þennan vetur. Eins er óljóst hversu mikla áherslu Gunnlaugur Jónsson leggur á að halda Baldri en hann hefur bætt við ungum miðjumönnum í Valsliðið undafarið sem eru augljóslega nokkrum launaflokkum neðar en þeir sem Valur hefur samið við á síðustu árum. Það gæti því verið komið að kveðjustund hjá Baldri.




*[mynd af fótbolti.net]

Digg    Facebook   
 
Að taka Börkinn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 15. nóvember 2009 15:48

 

Að taka Börkinn
Valsarar.is eru sérlegir aðdáendur fjölmiðla fíaskóa af öllum stærðum og gerðum. Okkar kappsami formaður knattspyrnudeildar, Börkur Edvardsson hefur runnið um ófá bananaskinnin á vígvelli fjölmiðlanna í gegnum tíðina og gæti jafnvel átt heima í orðabók til frekari útskýringar eða sem víti til varnaðar.
Skemmst er að minnast upphlaupsins frá því í vor þegar Valur Fannar var píndur til afsökunarbeiðni á (ó)viðeigandi orðum sínum eða þegar blaðamenn rifjuðu upp ummæli formannsins frá því að skrifað var undir fjögurra ára samning við Willum Þór og hann svo látinn taka poka sinn einu sumri síðar. Fleiri óborganleg mál sem gaman er að skoða eru viðræður Vals við Prince Rajcomar (sem aldrei fóru fram, eða voru óformlegar...),  meint símtal við Atla Jóhannsson þáverandi leikmann ÍBV (hvaða Atla? (hóst)) og Stóra Bó málið frá 2005 verður seint full toppað.
Eða hvað? Tveir stórbeinóttir framherjar (sem báðir hafa komið við sögu hjá Val vel að merkja) hafa núna tekið Börkinn og runnið hvor um annan þveran og það á sama bananahýðinu. Gunnlaugur Jónsson nýbakaður þjálfari Vals prísar sig eflaust sælan að hafa ekki fallið um þá báða og fær því hlutverk statistans í þessari leiksýningu fáránleikans.
Að Eiður Smári Guðjohnsen skuli elta ólar við eitthvað sem Höddi Magg lætur út úr sér er óskiljanlegt en Skinkan gerir þó Evrópumeistaranum þann greiða að bíta höfuðið af skömminni. Eftir að Eiður kallaði Hörð feitabollu sem aldrei hefur spilað alvöru fótbolta var samúðin klárlega með Hödda kallinum. Alveg þangað til að Hafnfirska tæknitröllið fór í hlutverk fórnarlambsins:
“Ég er búinn að vera íþróttafréttamaður í tíu ár og þar áður var ég knattspyrnumaður og reyndar landsliðsmaður í fótbolta. Ég var bara að gefa mitt álit og það var ekkert annað sem bjó þar að baki.”
Landsliðsmaðurinn Hörður spilað heila níu A-landsleiki þar af sex vináttuleiki og skoraði  magnað mark gegn Ungverjum. Restin af landsliðsferli Harðar (ef feril má kalla) fór ekki í sögubækurnar og þrátt fyrir fjölda markakóngstitla hér heima þá þurfti enginn landsliðsþjálfari nokkurn tímann að réttlæta fjarveru hans úr liðinu. Þetta landliðstal Harðar telst honum því tæplega til tekna.
“Ég get sagt að þar sem hann segir að ég sé bara áhugamaður um fótbolta og sitji og horfi á leiki og annað. Ég er náttúrulega íþróttafréttamaður. Ég sit ekki bara og horfi á leikina, ég er að lýsa þeim og fjalla um í fréttum og leikgreina.”
Já hver kann ekki að meta þennan viskubrunn knattspyrnunnar sem Doktor Hörður er, hans stórkostlega innsæi og tilfinningaþrungin öskur þegar við á.
“Svo geta menn verið sammála eða ósammála því sem ég segi, allt gott og blessað ef menn eru málefnalegir. Ég get líkt þessu við það að margir frábærir þjálfarar í fótboltaheiminum gátu ekkert í fótbolta. Eiga þeir þá að vera að þjálfa liðið? Eru þeir ekki bara einhverjir áhugamenn? Þetta fellur svolítið um sjálft sig."
Hvert Hörður er að fara með þessu er ekki alveg ljóst, hins vegar fellur Afstæðiskenning Einsteins nánast svolítið um sjálfa sig í þessari rökleiðslu.
Eða hvað? Yfirleitt er einfaldlega best að segja sem minnst fremur en að bjóða upp á tækifæri til afbakanna og útúrsnúninga. Sakleysisleg ummæli manna í fjölmiðlum er oft auðvelt að blása út og gera sér mat úr því sem ekkert er. Börkur getur eflaust sagt mönnum það.
borkur2


Valsarar.is eru sérlegir aðdáendur fjölmiðla fíaskóa af öllum stærðum og gerðum. Okkar kappsami formaður knattspyrnudeildar, Börkur Edvardsson hefur runnið um ófá bananaskinnin á vígvelli fjölmiðlanna í gegnum tíðina og gæti jafnvel átt heima í orðabók til frekari útskýringar eða sem víti til varnaðar.

Skemmst er að minnast upphlaupsins frá því í vor og þegar Valur Fannar var síðan píndur til afsökunarbeiðni á (ó)viðeigandi orðum sínum eða þegar blaðamenn rifjuðu upp ummæli formannsins frá því að skrifað var undir fjögurra ára samning við Willum Þór og hann svo látinn taka poka sinn einu sumri síðar. Fleiri óborganleg mál sem gaman er að skoða eru viðræður Vals við Prince Rajcomar (sem aldrei fóru fram, eða voru óformlegar...),  meint símtal við Atla Jóhannsson þáverandi leikmann ÍBV (hvaða Atla? (hóst)) og Stóra Bó málið frá 2005 verður seint full toppað.

bohenriksen


Eða hvað? Tveir stórbeinóttir framherjar (sem báðir hafa komið við sögu hjá Val vel að merkja) hafa núna tekið Börkinn og runnið hvor um annan þveran og það á sama bananahýðinu. Gunnlaugur Jónsson nýbakaður þjálfari Vals prísar sig eflaust sælan að hafa ekki fallið um þá báða og fær því hlutverk statistans í þessari leiksýningu fáránleikans.

Að Eiður Smári Guðjohnsen skuli elta ólar við eitthvað sem Höddi Magg lætur út úr sér er óskiljanlegt en Skinkan gerir þó Evrópumeistaranum þann greiða að bíta höfuðið af skömminni. Eftir að Eiður kallaði Hörð feitabollu sem aldrei hefur spilað alvöru fótbolta var samúðin klárlega með Hödda kallinum. Alveg þangað til að Hafnfirska tæknitröllið fór í hlutverk fórnarlambsins:


"Ég er búinn að vera íþróttafréttamaður í tíu ár og þar áður var ég knattspyrnumaður og reyndar
landsliðsmaður í fótbolta. Ég var bara að gefa mitt álit og það var ekkert annað sem bjó þar að baki." 

skinkan



Landsliðsmaðurinn Hörður spilað heila níu A-landsleiki þar af sex vináttuleiki og skoraði magnað mark gegn Ungverjum. Restin af landsliðsferli Harðar (ef feril má kalla) fór ekki í sögubækurnar og þrátt fyrir fjölda markakóngstitla hér heima þá þurfti enginn landsliðsþjálfari nokkurn tímann að réttlæta fjarveru hans úr liðinu. Þetta landsliðstal Harðar telst honum því tæplega til tekna.

“Ég get sagt að þar sem hann segir að ég sé bara áhugamaður um fótbolta og sitji og horfi á leiki og annað. Ég er náttúrulega íþróttafréttamaður. Ég sit ekki bara og horfi á leikina, ég er að lýsa þeim og fjalla um í fréttum og leikgreina.”

Já hver kann ekki að meta þennan viskubrunn knattspyrnunnar sem Hörður er, hans stórkostlega innsæi eða tilfinningaþrungin öskur þegar við á.

"Svo geta menn verið sammála eða ósammála því sem ég segi, allt gott og blessað ef menn eru málefnalegir. Ég get líkt þessu við það að margir frábærir þjálfarar í fótboltaheiminum gátu ekkert í fótbolta. Eiga þeir þá að vera að þjálfa liðið? Eru þeir ekki bara einhverjir áhugamenn? Þetta fellur svolítið um sjálft sig."

Hvert Hörður er að fara með þessu er ekki alveg ljóst. Afstæðiskenning Einsteins fellur nánast svolítið um sjálfa sig í þessari rökleiðslu.

Eða hvað? Yfirleitt er einfaldlega best að segja sem minnst fremur en að bjóða upp á tækifæri til afbakanna og útúrsnúninga. Eftir því sem menn tjá sig meira um óþægileg mál þeim mun dýpra ofan í holuna ná þeir að grafa sig. Sakleysisleg ummæli við fjölmiðla er oft auðvelt að blása út og gera mat úr því sem ekkert er. Börkur getur eflaust sagt mönnum það.

 

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 22