• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Valur-Fylkir háljós
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 03. júní 2010 17:39

Digg    Facebook   
 
Þremur stigum landað
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:48
sun_falcon2
Orange klúbburinn réð ekki við fálka klúbbinn

Langþráður heimasigur varð loks að veruleika á Hlíðarenda þegar Fylkir mætti í heimsókn. Valsarar voru sannarlega búnir að bíða lengi eftir þessum sigri sem var jafnframt stærsti sigur liðsins frá því að Vodafonevöllurinn var vígður. 5-2 voru lokatölurnar sem voru einmitt þær sömu og í leik Vals og Fylkis 1996. Eins gott fyrir gestina að ekki séu falin jarðteign í þeim tölum en það ár féll Fylkir síðast. En hvað sem því líður voru Árbæingar ekki eins og þeir eiga að sér að vera í öftustu víglínu. Valsliðið náði að galopna vörn þeirra nokkuð oft og áttu menn í minnstu vandræðum með að stinga sér á milli varnarmanna og finna lausa menn inn á miðjum vítateig. Varla hefur verið leiðinlegt að vera fluga á vegg í búningsklefa Óla Þórðar eftir leik en sennilega eru fáir sem venjast því jafn illa að tapa og Skagatrukkurinn.

Nokkuð jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins en Valsmenn byrjuðu líkt og síðustu leikjum að setja ákveðna pressu á andstæðinga sína. Eftir rétt tæpar 11. mínútur leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Martin Pedersen tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelming sem Danni Köning fann endann á átti fastan skalla í markið. Reyndar virtist boltinn hafa viðkomu í öðrum leikmann á leiðinni inn en danski markvarðahrellirinn er vel að því kominn að fá það skráð á sig. Segja má að gestirnir hafi tekið sig saman í andlitinu við þetta mark en þeir hófu að sækja af miklum móð eftir markið. Valsmenn voru í mestu vandræðum með kantspil Fylkismanna sem komust full auðveldlega upp að endamörkum í nokkur skipti og aðeins virtist tímaspursmál hvenær vörn Vals myndi bresta.


danni

Marka Köning

Þegar um hálftími var liðinn af leiktímanum slapp einn Fylkismaðurinn inn fyrir, lék á Kjartan Sturlu sem sýndi af hverju hann er betri í beita höndunum heldur en fótunum þegar hann skutlar sér. Vítaspyrna óumflýjanleg en menn göntuðust með að nærvera Kristins Jakobssonar sem fjórða dómara hefði þessi áhrif. Líklega hefur umræða um rauð spjöld á markmenn undanfarið hjálpað Kjartani að hanga inn á en varnarmaður Vals var þó kominn á marklínuna. Albert Brynjar Ingason fyrrum Valsmaður steig á punktinn en Kjartan gerði vel að verja frá pilti. Frákastið fór því miður beint fyrir fætur Árbæingsins sem kláraði færið gegn fjölskyldufélaginu. Valsmenn komnir með mark á sig eins og í öllum hinum leikjum mótsins en líkt og gegn Grindavík á dögunum lögðu menn ekki árar í bát.

Tæpum fimm mínútum eftir jöfnunarmark Fylkis fékk Valur aukaspyrnu á miðjum vallarhelming og líkt og í opnunarmarkinu tók Pedersen hana. Í þetta skipti fann Daninn kollinn á Hauki Páli sem skoraði þar sitt fyrsta mark fyrir Val. Menn sannarlega sáttir enda hafa föstu leikatriðin verið eins og heit kartefla í höndum Valsliðsins það sem af er móts. Segja má að Valsarar hafi verið óheppnir að bæta ekki við þriðja markinu fyrir leikhlé. Í fyrra skiptið þegar Arnar Sveinn komst á auðan sjó en fékk á sig dæmda ósanngjarna rangstöðu. Í síðara skiptið fékk Köning síðan frían skalla inn í vítateig en Fjalar Þorgeirsson varði glæsilega krafmikla kollspyrnuna. 2-1 í hálfleik og flestir sáttir þrátt fyrir að þriðja markið hefði verið vel þegið.

oranges

Vörn gestanna var í algjörri klessu

Síðari hálfleikur hófst með látum og margir vallargestir enn að koma sér fyrir þegar Baldur Ingimar kom Val í 3-1. Fylkismenn æfir og mátti heyra ýmis ógreinileg öskur koma frá varamannaskýli þeirra. Þrátt fyrir brekkuna framundan gáfust gestirnir síður en svo upp og héldu boltanum vel innan liðsins og pressuðu duglega.

Það virtist ætla að bera árangur þegar knötturinn virtist vera nánast kominn inn í markið en Atli Sveinn náði á ótrúlegan hátt að bjarga. Boltinn barst út á Glenn Ross sem skóflaði honum fram og þar náði Danni Köning að flikka tuðrunni á Arnar Svein. Arnar náði góðu starti og stakk sér upp kantinn og Köning stefndi með honum upp í vítateig. Varnarmenn Fylkis virtust ekki hafa hugmynd um hver ætti hvaða hlutverk og Arnar Sveinn átti fyrirgjöf beint úr Beckham handbókinni á kollinn á Köning sem veitti Fylki algjört rothögg.

Leikmenn Fylkis hafa eflaust haft lítinn áhuga á að verða helstu skotspónar Óla Þórðar að undanskildum Andresi Má Jóhannessyni sem lét reka sig af velli fyrir háðsglósur til línuvarðar. Frekar ódýr brottvísun en gulu spjöldin í leiknum voru einnig fyrir litlar sakir á meðan aðrar hættulegar tæklingar voru látnar lítt átaldar. Það er vonandi að lærisveinar trukkabílstjórans fari nú ekki að stórslasa menn í sumar með ákafa sínum. Ian Jeffs sem kom inn á fyrir markaskorara síðasta leiks, Jón Vilhelm Ákason, rak síðan smiðshöggið á sigurinn þegar hann skallaði fyrirgjöf frá téðum Arnari. Pape Mamadou Faye klóraði í bakkann fræga en að öðru leyti var Fylkisliðinu kaffært.

fylkis2

Stuðningsmenn Fylkis voru varla upplitsdjarfir að leik loknum

Ef menn geta svekkt sig á einhverju eftir jafn öruggan sigur á hátt skrifuðu liði Fylkis þá er það helst að mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri, sérstaklega eftir að gestirnir urðu manni færri. Vörn Fylkismanna var meira og minna út á þekju. Kannski er helst hægt að skrifa það á markagræðgi einstakra leikmanna á lokamínútunum þegar þeir tóku heldur skot en að senda boltann í upplögðum færum. Danni Köning var sjóðandi heitur og hefði auðveldlega getað skorað fleiri en Fjalar gerði einnig vel að verja gegn honum. Sóknarmenn þrífast á sjálfstrausti og samherjarnir hefðu mátt hjálpa Köning meira við að ná þrennunni en það er þó ekkert til að erfa við neinn enda var sigurinn löngu orðinn öruggur.

Þokkaleg stemmning var Vals megin í stúkunni í gær en eitthvað fór lítið fyrir stuðningsmönnum Fylkis sem hafa yfirleitt verið öflugir. Samkvæmt áhorfendatölum í Mogganum voru um 1100 manns mættir en eitthvað var þó af lausum sætum í hinni 1200 manna stúku. Einar Örn Daníelsson dæmdi leikinn og þarf ekki að svara til saka fyrir nein afglöp af sinn hálfu og flestir voru eflaust fegnir að Kristinn Jakobsson var í hlutverki eftirlitsmanns, sem hann sinnti með sóma vel að merkja.

Næsti leikur liðsins er í bikarkeppninni gegn Aftureldingu úr Mosfellsbæ á fimmtudagin klukkan 19.15 á Vodafonevellinum. Mikið uppbyggingarstarf bíður forkólfa Aftureldingar en félagið er sem stendur í 10. sæti í 2. deild. Nánar að þeim leik síðar.

Digg    Facebook   
 
Valur-Fylkir viðtöl
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:45


Arnar Steinn er með Valur TV og tók þessi viðtöl eftir Fylkisleikinn 

Digg    Facebook   
 
Fyrsti heimasigurinn
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 00:57
Flottur sigur á Fylki í kvöld og jafnframt fyrsti heimasigurinn frá því gegn ÍBV í fyrra. Sá leikur gegn Eyjamönnum var jafnframt síðasti leikurinn sem Valsliðið hélt hreinu á heimavelli. Mörk frá Danni Köning, Hauki Páli, Baldri Ingimar og Ian Jeffs gerðu gæfumunninn. Valssonurinn Albert Ingason skoraði fyrir Fylki ásamt Pape Faye sem klóraði í bakkann á lokamínútunum. Nánari umfjöllun dettur inn á morgun. 

Digg    Facebook   
 
Valur trois points
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 26. maí 2010 14:09

hera

Hera trekkir meira en Grindavík

Loksins hafðist það. Gunnlaugur Jónsson er búinn að draga sinn fyrsta sigur í hús en það mátti varla á tæpara standa. Tvö mörk dugðu gegn stigalausum heimamönnum í Grindavík sem hefðu vel getað stolið stigi á lokamínútnum. Um 700 áhorfendur mættu samkvæmt fjölmiðlum og alveg allt í lagi mæting hjá Völsurum. Illar tungur vildu meina að einhverjir væru að láta forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva þvælast fyrir sér. Það verður látið liggja á milli hluta enda aðal málið að ná í sem flest stig í boltanum sem öðrum keppnum.

Það var rjómablíða í Grindavík í gær og stúkan góða sá áhorfendum fyrir skjóli frá hinni þrálátu golu sem einkennir Suðurnesin. Draumaaðstæður fyrir aðkomulið þótt heimamenn séu því eflaust ósammála og sennilega einhverjir gamlir Skagamenn í herbúðum Vals. Gunnlaugur stokkaði liðið upp frá síðasta leik en Martin Pederesen var færður í stöðu Hauks Páls á miðjunni og í stað Martins kom Glenn Ross í bakvörðinn og stóð sig með prýði. Jón Vilhelm var síðan settur í stöðu Ian Jeffs og gekk nokkuð vel.

Valsmenn léku undan vindi í fyrri hálfleik en færðu sér veðrið ekkert sérstaklega í nyt. Talsverð stöðubarátta var milli liðanna og hvorugt þeirra náði neinum sérstökum tökum á boltanum en okkar menn voru kannski skömminni skárri en heimamenn. Valsliðið átti í hefðbundum erfiðleikum við að koma boltanum frá varnarmönnum og upp vallarhelming andstæðinganna en Grindjánar gáfu okkar mönnum lítinn tíma á boltann. Fyrri hálfleikur var þó tíðindalítill fyrir utan þegar Rúnar Már Sigurjónsson, Skagfirðingurinn í liði Vals, átti góðan sprett, lék framhjá varnarmönnum Grindavíkur og átti síðan skot sem hristi netmöskvana. Valsarar í stúkunni voru ekki alveg vissir hvort þeir ættu að fagna eður ei en boltinn fór aðeins í hliðarnetið og liðin skildu því jöfn þegar bláisð var til leikhlés.

jon_gulli_habbo

Skagamenn kunna vel við sig hjá Val. Jón Vilhelm nýtti tækifærið í gær

Reynir Leósson fór meiddur út af í hálfleik og Gunnlaugur skipti inn á hinum aldna leiðtoga Sigurbirni Hreiðarssyni og færði Martin Pedersen í miðvarðarstöðuna. Bjössi virkar ferskur í ár og kom með nýja vinkla inn í leik liðsins. Valsmenn héldu áfram að vera með undirtökin en án þess að stjórna lögum og lofum á vellinum. Eftir um 60 mínútna leik gaf Grindavíkurvörnin sig þegar Danni Köning skoraði ódýrt mark af stutt færi eftir sendingu frá Baldri Aðalsteins. Svo virtist sem að varnarmenn heimamanna hafi treyst á að markvörður þeirra myndi afgreiða lausa sendingu Baldurs en þess í stað stóð Köning einn á auðum sjó inn í markteignum. Sennilega mun hann ekki skora auðveldara mark í sumar.

Scott

Scott Ramsey sló á létta strengi 

0-1 fyrir Val og næstu mínútur lofuðu góðu. Valsmenn héldu áfram að sækja og tæpum 10 mínútum eftir fyrsta markið brá Atli Sveinn sér í sóknina þegar Valur átti innkast rétt við hornfánann. Atla var ætlað skalla boltanum aftur fyrir sig eins og sést hefur nokkrum sinnum í sumar en áhorfendur voru mishrifnir af þessari taktík. Aftarlega í stúkunni heyrðist einn efasemdamaður segja: "Af hverju er alltaf verið að senda hann Atla fram í þessum innköstum? Hvenær á þessari sögu að ljúka?" - "Þetta er framhaldssaga! " svaraði Óttar Felix Hauksson að bragði með sinni hvellu og auðþekkjanlegu rödd. Aðrir Valsarar glottu við fót en fáum var þó hlátur í hug nokkrum sekúndum síðar. Grindvíkingar unnu boltann eftir innkastið og geystust fram. Giles Ondo komst inn fyrir Valsvörnina sem einhverja hluta vegna vantaði einn burðarstólpann og lagði boltann snyrtilega framhjá Kjartani. Sannarlega var fussað og sveijað yfir þessari taktík Valsliðsins en menn þurftu þó ekki að svekkja sig of lengi.

Valsarar hófu leik að nýju og eftir smá barning á miðjunni vann Danni Köning boltann og sendi út á hægri kantinn á Sigurbjörn. Bjössi losaði sig við varnarmann Grindavíkur og lék boltanum í átt að endalínu og átti síðan hárfína fyrirgjöf á fjærstöngina. Boltinn sveif yfir vörn og markvörð Grindvíkinga og þar var mættur Akurnesingurinn Jón Vilhelm Ákason og skallaði knöttinn í autt markið. Valur kominn aftur yfir eftir að hafa fengið á sig ódýrt jöfnunarmark og áhorfendur gátu tekið gleði sína á ný.

Um 20 mínútur voru enn eftir af leiknum og Valsarar með ágætis tök á spilinu. Munurinn var þó ekki nema eitt mark og hefur það sjaldan kunnað góðri lukku að stýra að leggjast í vörn of snemma. Þriðja markið lét hins vegar á sér standa og eftir því sem á leið færðist örlítið meiri þungi í sókn Grindavíkur, án þess þó að þeir væru að vaða í færum. Sigurbjörn var mögulega heppinn að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar hann virtist fara aftan í Scott Ramsey en Gunnar Jarl dómari sá ekkert athugavert við atvikið. Þegar skammt var eftir átti skoska tækniundirð skot í innanverða stöngina, frákastið barst síðan út á Ray Jónsson sem náði ekki að leggja boltann nægjanlega vel fyrir sig en Kjartan Sturluson var jafnframt vel staðsettur og lokaði markinu.

Kostic_steini
Þorsteinn Gunnarsson og félagar ráku Luka Kostic eftir úrslit gærkvöldsins 

Eftir þetta var mest allur vindur farinn úr Ramsey og félögum og Valsmenn fögnuðu innilega þegar Gunnar Jarl ágætur dómari leiksins flautaði til leiksloka. Gunnar Jarl hefur átt skjótan frama í dómarafaginu en stöku sinnum var eins og skorti upp á örlítið meiri reynslu hjá honum. Hins vegar var leikurinn þess eðlis að erfitt var að gera skandala á flautunni.  Næsti leikur hjá okkur verður gegn Fylki í sunnudagsþynnku eftir aðalkeppni Eurovision og kosningavöku. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Grindavík-Valur upphitun
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 25. maí 2010 13:08

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 22