• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hlíðarendi stóðst Skjálftann
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 15. júní 2010 13:02

inog2

Fjarri góðu gamni: Verðguðinn var ekki með Selfossi

UMF Selfoss með Gumma Ben í brúnni mætti á Hlíðarenda í fyrsta skipti sem var sennilega það helsta sem gat selt sófa Völsurum þessa lands að mæta á völlinn. Selfyssingar höfðu auðvitað eigin ástæður til að mæta en Gulli Jóns skildi Sunnlendinga eftir með óbragð í munni eftir að liðið hafði tryggt sér úrvalsdeildarsæti á síðustu leiktíð. 

Selfyssingar unnu dómarahlutkestið og kusu að treysta á veðurguðina og leika undan vindi í fyrri hálfleik. Þeir söknuðu þó forsvarsmanns samnefndrar hljómsveitar í framlínunni en Ingó var borgaralega klæddur á meðal áhorfenda upp í stúku. Eins var Sævar Þór Gíslason meiddur og munar um minna fyrir reynslulítið lið á fyrsta ári í efstudeild.

Fyrri hálfleikur var nokkuð barningslegur. Valsmenn snertu varla boltann fyrstu 10 mínútur leiksins en gestirnir sköpuðu engin færi að sama skapi. Eftir um 20 mínútur virtist Danni König ætla rjúfa markaleysið en honum voru mislagðir fætur og skömmu síðar skoraði Arnar Sveinn mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Frá stúku sjónarhorninu virtist línuvörðurinn hafa fullkomnlega löglegt mark af Val. Valsmenn komu boltanum aftur í netið stuttu síðar en Þorvaldur dómari sá eitthvað athugavert rétt áður og gaf Selfyssingum aukaspyrnu fyrir litlar sakir. 

saevarthor_gulli

Þegar allt lék í lyndi

Enn einu sinni hófst síðari hálfleikur með látum á Hlíðarenda og Valsmenn fengu blauta uppvakningar tusku í andlitið strax á fyrstu mínútu. Selfyssingar komnir yfir en forysta þeirra entist ekki lengi því Ian Jeffs jafnaði leikinn aðeins mínútu síðar. Áhorfendur sem voru enn að klára hálfleikskaffið komu að sömu dagskrá og í fyrri hálfleik þegar þeir settust í sæti sín.

Völsurum í stúkunni var létt yfir að liðið komst svo fljótt inn í leikinn en engu að síður vantaði upp á að leikmenn bættu auknun krafti í aðgerðir sínar. Sama miðjumoðið einkenndi leik liðsins eftir jöfnunarmarkið og hafði gert í fyrri hálfleik. Það var eins og menn væru eingöngu að gera nóg til að halda aftur af gestunum og hefðu litla orku til að taka yfirráðin í sínar hendur. Valsmenn voru vissulega líklegri enda ýmsir veikir hlekkir hjá nýliðunum en þó vantaði eitthvað upp á hjá liðinu upp á að skilja sig frá gestunum.

Eftir um 70 mínútna leik fékk Guðmundur Steinn Hafsteinsson tækifæri og hann var ekki lengi að stimpla sig. Glenn Ross krossaði boltann laglega yfir varnarmann Selfossliðsins og Guðmundur nýtti alla sentimetrana sína til að skalla boltann í laglegum boga yfir markvörð gestanna.

Valur kominn með forystu og heimamenn dauðfengir að losna við að horfa upp á mögulegar ergilegar lokamínútur. Fátt tíðindavert gerðist eftir sigurmark Guðmundar Steins nema helst að Viktor Unnar fékk að koma inn á. Eflaust má hann fá fleiri tækifæri á næstunni þó ekki væri nema til að setja ákveðna pressu á Danni König sem er farinn að virka full værukær með sína stöðu í liðinu. 


Guðmundur Steinn mætti eitursvalur

Selfoss liðið spilar oft á tíðum ágætis bolta en um leið komu kaflar þar sem augljós getumunur var á þeim og Valsliðinu. Hins vegar háir það Valsmönnum að stundum vantar örlítið upp á drápseðlið þegar andstæðingar sýna á sér veikleikamerki. Svipað var upp á teningnum gegn Aftureldingu og ÍBV fyrr í sumar en að sama skapi hafi menn jafnan keyrt á öllum strokkum gegn hærra skrifuðum liðum.

Mætingin var svo sem allt í lagi þannig séð eða um 1000 manns samkvæmt opinberum tölum. Selfyssingar mættu uppveðraðir eftir rútuferð yfir Hellisheiði og hvatningin hjá þeim var virkilega kraftmikil. Eitthvað ber á biturð í garð Ránfuglsins hjá einstaka mönnum. Var frekar ósmekklegt að horfa upp á ungmenni tuffa á Valsmerkið við enda vallarins í leikhléi þegar þau fóru að sækja sér auknar veigar í rútunni. Leiðindablettur á skemmtilegum stuðningsmannahóp.

Skjálftamenn gátu fagnað yfirburðasigri á pöllunum eftir leik en lið þeirra þarf að fara komast aftur af stað í stigasöfnun innan vallar ef þeir ætla að fá að koma í heimsókn á helstu vígi landsins á næsta ári. Sunnlendingarnir hafa sett skemmtilegan svip á úrvalsdeildina og flestir ættu að geta unað þeim að vera í henni áfram. 

Yfirleitt er óþarfi að væla undan dómurum eftir sigurleiki en þessi flautumeistari var helbert djók á báða kanta. Valur-Selfoss er ekki beint stærsti leikur sumarsins í Pefsí deildinni en þessum dreng tókst að taka vitlausar ákvarðanir vinstri hægri. Líklega hefði hann gott af því að ná sér í aukna reynslu í yngri flokkum, neðri deildum og kvennabolta þar sem hraðinn er minni og færri áhorfendur að rugla hann í ríminu.  

Næsti leikur er gegn Stjörnunni á hinu ógnvænlega gervigrasi Garðbæinga . Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Frelsarinn mætir á mánudag
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 13. júní 2010 20:56
gben22
Selfyssingar leita hefnda. Gummi Ben leiðir hópinn

Gummi Ben og lærisveinar hans á Selfossi mæta á Hlíðarenda á mánudaginn. Spurningin er hvort gróið hafi um heilt í herbúðum Selfyssinga eftir að Valur stal af þeim Gulla Jóns í þjálfaraembættið. Sunnlendingar telja sig eflaust hafa himin höndum tekið við að hafa fengið
Frelsara Vals til að leiða hefndaraðgerðirnar.


Arnar Steinn er maðurinn á bakvið Valur TV og spjallaði við Atla Svein fyrir leikinn. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og upphitun verður við Fjósið frá klukkan 18.00. Sjáumst þá.

Digg    Facebook   
 
Fjórða árið í röð í Frostaskjóli
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 09. júní 2010 18:28

kr_valur


Það tók Val 16 ár að brjóta ísinn í Frostaskjóli en síðan þá hafa þrjú stig runnið í stríðum straumi vestur yfir Læk á Hlíðarenda. Eftir að Valur hafði unnið vestur frá 2007, 2008 og 2009 (auk bikarsigra 2005 og 2007) var ekki laust við margir héldu að nú væri komið að KR en þeir verða að bíða í ár eftir deildarsigri gegn Val á heimavelli.

Leikurinn fór vel af stað og jafnræði var með liðunum framan af. Eftir tæpan 10 mínútna leik uppskáru Valsmenn aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Baldur Aðalsteins stillti sér og tókst að klína boltanum undir varnarvegg KR og í markhornið. Ágætis mark hjá Baldri sem jafnan sýnir sínar bestu hliðar gegn Vesturbæingum. 

Heimamenn spýttu heldur betur í lófana eftir markið og tóku að sækja linnulaust og komst Kjartan Henry í gott færi en mistókst hrapalega. Skömmu síðar fékk Danni König möguleika á að tvöfalda forystu Vals en varð fótaskortur á ögurstundu. KR tók að herða tökin á leiknum en jafnframt því að fór dómari leiksins að gerast æ skrautlegri.

Valsmenn fengu á sig ódýrar aukaspyrnur og spjöld fyrir litlar sakir en lítið var hægt að setja út aukaspyrnu sem Björgólfur Takefusa fiskaði rétt utan teigs eftir um 25 mínútur. Bjarni Guðjónsson sendi stuttan bolta á Óskar Örn Hauksson sem skoraði með hnitmiðuðu skoti neðst í hornið. Staðan jöfn og eftir þetta réðu heimamenn lögum og lofum á vellinum fram að hálfleik en Haukur Páll var þó ekki langt frá því að smygla inn einu marki rétt fyrir hálfleik. Valsarar voru flestir dauðfegnir að hafa haldið jöfnu þegar flautað var til hlés.

bjossi

Sigurbjörn sýndi sínar bestu hliðar

Í síðari hálfleik tóku fallvötnin að snúast á nýjan leik. KR-ingar héldu eflaust að þeir myndu halda áfram að stjórna af öryggi líkt og í fyrri hálfleik en það var allt annað Valslið sem mætti eftir hálfleiksræðu Gunnlaugs Jónssonar. Menn voru fastir fyrir og skipulagðir en um leið gátu nokkrir leikmenn ekki farið sér óðslega enda með spjöld á bakinu. Eins má segja að Magnús dómari hafi slakað aðeins á smámunaseminni sem einkenndi störf hans í fyrri hálfleik. 

Talsverð stöðubarátta var á miðju vallarins og KR-ingar virkuðu ívið betri. Sigurbjörn Hreiðarsson var ekki á þeim buxunum að láta það hafa áhrif á sig og á 56. mínútu átti hann gullfallega sendingu inn fyrir KR vörnina sem Arnar Sveinn færði sér í nyt. Arnar tímasetti hlaup sitt fullkomnlega og stakk af Guðmund Reyni bakvörð KR og afgreiddi færi sitt af stakri snilld með hnitmiðuðu skoti yfir norskan markvörð KR. 

Valsliðið dróg sig aftar á völlinn við þetta mark og leyfði KR-ingum að liggja talsvert á boltanum en lítið kom út úr spili Vesturbæinga sem hafa raðað hverri stjörnunni á fætur annari í lið sitt fyrir þetta tímabil. Engin þeirra virðist hafa það sem til þarf þegar brjót þarf upp stífa vörn og þunglamalegir miðjumenn þeirra hentuðu Bjössa og félögum á miðju Vals fullkomnlega. Leikurinn fjaraði út án þess að KR-ingar næðu að ógna Val að neinu marki og þrjú stig í Frostaskjóli féllu í skaut Vals enn eitt árið. 

maggi_colina

Maggi Þóris deildi sviðsljósinu en skyggði ekki á úrslitin

Magnús Þórissons stjórnaði flautleiknum og var hann vægast sagt kaflaskiptur. Í fyrri hálfleik dreifði hann ódýrum spjöldum á Valsmenn og var ekki langt frá því að reka Ian Jeffs af velli fyrir glæfralega tæklingu. Jeffs hafði aftur á móti fengið gult spjald skömmu áður fyrir nánast engar sakir sem væntanlega hefur orðið til þess að Magnús sá að sér en KR-ingar voru vitnalega ekki sáttir.

Eins hlaut Martin Pedersen gult spjald fyrir mótmæli en þetta er annað spjaldið sem Pedersen fær fyrir mótmæli hjá Magnúsi og í bæði skiptin var um að ræða minniháttar pirring að hálfu Danans. Magnús sleppti nokkuð augljósri vítaspyrnu á KR þegar Atla Sveini var ýtt og eins hefði Grétar Sigfinnur mátt fá í það minnsta tiltal eftir að hann hnakkreifst við Arnar Svein á lokamínútunum að tilefnislausu. Sannarlega ekki til fyrirmyndar hjá fyrrum fyrirliða KR liðsins. 

Ágætis stemmning var á leiknum og Valsarar í stúkunni fögnuðu að sjálfsögðu innilega að leik loknum. Miðjan eyddi fyrirsjáanlegu púðri í að lýsa yfir hatri sínu á Val en undir lokin fóru að heyrast gól um Guðjón Þórðar. Verði þeim að góðu. Næsti leikur Vals er gegn Selfossi á mánudag. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Aðdáandi Shelbourne eftirlýstur
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 08. júní 2010 01:50

 


Sást síðast rífa kjaft við Valsara eftir árlegan sigur Hlíðarendaliðsins í Frostaskjóli að loknum leik 2009. Ekkert bólaði á honum í kvöld. Fjögur ár í röð. Read em and weep!

 

Digg    Facebook   
 
Hesthúsið Frostaskjóli
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 07. júní 2010 14:54

zebra

KR - Valur í kvöld klukkan 20.00. Þarf að segja meira? Upphitun á Hlíðarenda frá klukkan 18.00 og síðan rúta vestur yfir Læk. 

Digg    Facebook   
 
Afturkreistingur
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 03. júní 2010 21:17

 

cptpinar

 

Valur rétt kreisti fram sigur í kvöld gegn Aftureldingu úr Mosfellsbæ í leik sem minnti um margt á síðasta tímabil. Mörk frá Hauki Páli og Viktori Unnari nægðu eftir að gestirnir höfðu náð forystu í fyrri hálfleik. Vítaspyrna fimm mínútum fyrir leikslok gerði gæfumuninn fyrir Valsliðið sem var í óendanlegum vandræðum með Mosfellinga. Aftureldingarmenn sem eru einhverjum 20 sætum fyrir neðan okkur í deildarkeppninni mega vera svekktir að hafa ekki lifað út í framlengingu en Valsmenn þurfa heldur betur að girða sig í brók áður en þeir mæta undirsátum Loga Ólafssonar í Frostaskjóli. Hafnfirski brandarakarlinn var á meðal áhorfenda í kvöld og hefur eflaust séð ýmsa veika hlekki á Valsliðinu. 


Leikurinn byrjaði alveg þokkalega og Viktor Unnar sem kom inn í byrjunarliðið átti m.a. tvö skot í tréverkið. Ef piltur væri í aðeins betra leikformi hefði lokafrágangurinn eflaust verið aðeins vandaðri. Framan af virtist vera gríðarlegur getumunur á liðunum en Valsmenn voru þó full værukærir þegar fór að nálgast markið. Þessi mikli munur sem sýndi sig framan af virtist gera það að verkum að Hlíðarendapiltar slökuðu full mikið á í sýnum aðgerðum. Þegar um 25 mínútur voru liðnar af leiknum fengu gestirnir sínar fyrstu hornspyrnu en eflaust hafa menn lagt áherslu á æfingasvæðinu að ná einhverju úr föstum leikatriðum. Það gekk heldur betur eftir þegar Kjartan Sturluson missti boltann yfir sig beint fyrir fætur Aftureldingarmanns sem potaði boltanum yfir línuna af stuttu færi.

Valsliðið vaknaði við þennan kinnhest og rétt tæpum þremur mínútum síðar jafnaði Haukur Páll Sigurðsson metin. Glæsilegt mark hjá Hauki sem lagði boltann snyrtilega í hornið með skoti rétt utan vítateigs. Staðan 1-1 og flestir á því að Mosfellingar væru búnir með sýna sólarglætu. Svo reyndist ekki. 

afturelding


Gestirnir stóðu furðu vel í okkar mönnum og það er visst áhyggjuefni þegar leikmenn Vals hafa ekki það sem þarf til að ganga frá leikjum sem þessum fljótt og örugglega. Markaþurrðin var farin að pirra Gunnlaug sem skipti inn á Danni König til að bjarga málunum þegar um 20 mínútur voru eftir. König hleypti nýju lífi í sóknarleikinn en segja má að Valsmenn geti verið fegnir því að ekki voru beittari menn í fremstu víglínu gestanna sem fengu sín færi til að komast yfir að nýju. 

Það tókst sem betur fer ekki. Þess í stað náði Danni König að stinga sig inn fyrir vörn Mosfellsbæinga og fiska víti þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Viktor Unnar steig á punktinn og kláraði snyrtilega öðrum Völsurum á Hlíðarenda til mikils léttis. 

Stemmningin var eins og búast mátti við í bikarleik milli tveggja ójafnra liða. Gestirnir sungu hástöfum en heimafólk lét fara vel um sig og bjó sig undir þægilegan sigur. Einstaka áhorfendur gerðust nokkuð óþreyjufullir eftir því sem á leið en sigur hafðist þó undir lokin. Mætingin var með slappasta móti og mun minni hjá gestunum en í fyrra þegar annar hver íbúi Álftanes gerði sér ferð á Hlíðarenda til að hvetja sitt lið. Dómari leiksins stóð sig með prýði, leyfði mátulega mikla hörku, hafði spjöldin djúpt í vasa sér og gerði rétt í lokin þegar Valur fékk víti þó svo að Daði Dervic og félagar hafi látið í sér heyra.  

Valur stillti upp sterku liði gegn Aftureldingu og ekki nema tveir til þrír leikmenn sem ekki teljast til hefðbundinni byrjunarliðsmanna. Eflaust hefur verið lagt upp með að klára leikinn sem fyrst til að menn gætu tekið það tiltölulega rólega fyrir KR leikinn á mánudag. Sú áætlun gekk þó ekki eftir og menn þurftu að nota full mikla orku við að slá út neðrideildarlið Aftureldingar. 

Næst er það KR í Frostaskjóli og þá mæta vonandi allir með rétt hugarfar. Nánar að því síðar. 

 

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 22