• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Reykspólað yfir Valsliðið
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 01:18

 

legend_burn_out
Græni Mustanginn skildi Valsmenn eftir í reykskýi

5-0 tap gegn Breiðabliki eru eftirköst verslunarmannahelgarinnar fyrir Valsara. Þetta er einn af þessum leikjum sem þarf ekki að segja frá í löngu máli því markataflan segir í raun allt sem segja þarf. 

Undanfarin misseri hafa undirsátar Gunnlaugs Jónssonar sýnt á sér ýmis veikleikamerki. Þegar Valur mætti besta sóknarliði landsins var ljóst að ýtt yrði á allar veikustu hliðar á hinu brotthætta burðarvirki sem Valsliðið er. Þegar á reyndi var ekki að sökum að spyrja, húsið á sandinum féll og 5-0 niðurlæging lokaúrslit. Hafi einhver efast um að þetta tímabil sé um margt líkt því síðasta þá hlýtur þessi leikur að hafa tekið af allan vafa um það.

Að loknum 14 leikjum er liðið með 18 stig eða einu minna heldur en eftir 14 umferðir á síðasta tímabili. Þar við bætist að liðið hefur fengið á sig mark í hverjum einasta leik í sumar og alls 20 deildarleikjum í röð. Á síðasta ári var allt að ganga af göflunum en nú þykir þessi staða vera lítt óeðlileg. Hvort það hafi með einhverjar uppbyggingar hugmyndir að gera er vafamál því erfitt er að koma auga á einhverja nýja vinkla sem geta nýst á komandi árum. 

spanking

Valsmenn voru ágætir framan af en eins og svo oft á þessu Íslandsmóti hægði á liðinu fram að hálfleik og menn gleymdu sér í varnarvinnunni þegar Jökull Elísarbetarson komst á auðan sjó og skoraði laglegt mark. Valur átti sín færi fram að því en líkt og venja er orðin í sumar fóru þau til spillis. Í seinni hálfleik má liðið eiga það að sýnd var viss viðleitni til að laga sinn hlut en um leið og annað mark Blika kom var ljóst að mótspyrnunni var lokið. Meistaraefnin úr Kópavogi gengu á lagið og reykspóluðu yfir flata Valsmenn sem hafa brotlent algjörlega eftir fimm leikja sigurgöngu í deild og bikar í maí og júní. 

Rassskelling af hendi Breiðabliks var ekki neitt sem kom verulega á óvart og helstu tipparar landsins hafa eflaust ekki velkst í vafa um hvaða merki átti að setja á leikinn fyrir fram. Valur fékk auðvitað slæma útreið gegn Fram á dögunum í bikarkeppninni og eins töluðu fjölmiðlar um hvað liðið brotnaði saman við að fá jöfnunarmark á sig gegn ÍBV á dögunum. Liðinu virðist skorta það andlega og líkamlega þrek sem þarf til í alltof mörgum leikjum. Óhjákvæmilega er kominn tími á að ræða þátt þjálfarans, hvaða braut hann er að feta með liðið og hvort reynsluleysi hans sé ekki að koma í bakið á mönnum. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Þynnka eða þrjú stig
Höfundur: Valsarar.is   
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 14:07

ginger_ninjaKgingerninja

Gummi P. verður í banni


Valur mætir meistara kandídötunum í Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld klukkan 19.15 í leik sem sýnir kannski hvort liðið kemur betur undan verslunarmannahelginni. Í eina tíð var Kópavogsvöllur ekki beint upphálds leikvangur Vals en þó hafa Valsmenn unnið Blika þar síðustu tvö ár og ekki tapað þar í deildinni síðan 2006. Í fyrra var það með var það með  klassíkum 0-1 sigri a la Willum Þór og árið áður var það öruggt 0-2.  Okkar menn þurfa á stuðningi að halda nú sem aldrei fyrr en liðið hefur ekki náð deildarsigri frá 14. júní. Einnig styttist í árs afmælið síðan Valur hélt hreinu en það gerðist gegn Þrótti þann 17. ágúst 2009. Vonandi verður það partý blásið af í kvöld. Góðar stundir.

 

Digg    Facebook   
 
Hundadaga König
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 30. júlí 2010 14:06

 

konig_norris



Hinn gríðarlega ósannfærandi Dani er loksins farinn frá Val og þótt fyrr hefði verið. Stjórnendur liðsins naga sig eflaust í handabökin yfir að hafa ekki verið fyrri til og sparkað pilti enda voru næg tilefni til.  Þess heldur sýndi Danni König félaginu puttann í síðasta skiptið og stingur af rétt fyrir lok félagaskiptagluggans. Í rauninni er þetta í takt við annað hjá König í sumar og ekki hægt að segja að menn í skrifstofuturni Valsara.is séu blindaðir af sjokki. 

Í staðinn er kominn Íri að nafni Diarmuid O'Caroll sem meðal annars hefur verið á mála hjá Celtic í Skotlandi. Þar vann hann sér helst til afreka að sitja fyrir í tómstunda klæðnaði merktum kaþólska félagi Glasgow borgar en lítið fer af afrekum hans á Celtic Park. Á Wikipedia er hægt að lesa nánar um það sem hann hefur helst áorkað;  http://en.wikipedia.org/wiki/Diarmuid_O'Carroll .

Á þetta ekki annars að vera einhvers konar uppbyggingar tímabil? Maður spyr sig. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Tap í Eyjum
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 25. júlí 2010 18:54
Ekki fóru Valsmenn neina frægðarför á Hásteinsvöll í dag. Miðað við textalýsingu fjölmiðla virtust Valsmenn vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fóru síðan út af sporinu í seinni hálfleik. Deildarleikur númer 19 í röðinni þar sem Valur nær ekki að halda hreinu svo því sé haldið til haga. Valsarar.is voru ekki á svæðinu svo lesendum verður hlíft við frekari umfjöllun um leikinn og liðið.

Digg    Facebook   
 
Stórmeistara jafntefli
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 19. júlí 2010 10:02

 

succsess_failure
Leiðir Vals og FH skildu eftir 2007

Aðeins tvö lið hafa orðið Íslandsmeistarar á síðustu sex ár og mættust þau á Kaplakrikavelli á sunnudagskvöldið í bongó blíðu. Fyrir þremur árum veltu Valsmenn Hafnarfjarðarrisanum af stalli á sama velli og á síðasta ári fögnuðu FH-ingar titlinum í andlitið á andlausu liði Vals sem náði 8. sæti. Stórmeistara jafntefli var niðurstaðan í kvöld sem var sum part svekkjandi en eðlileg niðurstaða miðað við þróun leiksins. 

FH-ingar hafa haldið sínu striki síðustu árin og segja má að leiðir hafi skilist milli þeirra og Vals eftir leikinn fræga árið 2007. Valur hefur verið fastur í miðjumoðinu með miklum tilkostnaði en FH haldið sig við að hirða Íslandsmeistaratitilinn. Stærsti munurinn milli liðanna er líklega sá að FH mætir til leiks með sóknaráætlun í sína leiki en síðustu árin hefur Valur verið í meiri iðnaðarmanna bolta. 

Valsmenn byrjuðu vel líkt og þeir gerðu í mörgum leikjum framan af móti. Klúður König sóaði fyrsta færinu sínu snemma leiks en Haukur Páll fékk alla til að gleyma því skömmu síðar þegar hann skoraði laglegt mark eftir að hafa gabbað varnarmenn FH. Okkar menn voru með góða stjórn á leiknum og aldrei þessu vant gekk boltinn nokkuð vel á milli leikmanna. Klúður König komst síðan aftur í færi skömmu eftir mark Hauks en skaut boltanum í stöngina úr þröngri stöðu og vonuðust Valsarar til að nú væri klúður kvótinn kláraður hjá þeim danska. Því miður reyndist það tóm óskhyggja.

 

konig_norris
König vantar mikið upp á til að fullkomna sinn leik

Eftir að hafa stjórnað drjúgum hluta fyrri hálfleiks tók liðið aðeins eins marks forskot með sér í búningsherbergið. FH-ingar skora jafnan nokkur mörk á sínum heimavelli og Valsmenn fá undantekningalaust á sig a.m.k. eitt mark í leik svo ljóst mátti vera að ekki myndi duga að hanga á 0-1 forystu. 

Byrjun seinni hálfeiks lofaði góðu og svo virtist sem Jón Vilhelm hefði komið Val í 0-2 en Magnús Þórisson sá eitthvað sem enginn annar tók eftir og gaf FH aukaspyrnu og hafði mark af Val. Vægast sagt fáránleg ákvörðun og magnað hvað við njótum sjaldan vafans í svona tilfellum.

Valsmenn héldu áfram að vera með undirtökin og eftir um 60 mínútur var Heimi Guðjónssyni nóg boðið og gerði tvöfalda skiptingu á sínu liði. Skömmu síðar þurfti Sigurbjörn Hreiðarsson að fara af velli vegna meiðsla en hann hafði verið drjúgur fram að því. Þetta reyndist vatn á myllu FH-inga sem tóku að ýta Valsliðinu aftar á völlinn og eftir um 70 mínútna leik var komið að fasta liðnum hjá Valsliðinu. Torger Motland jafnaði þá leikinn en sá norski hefur ekki verið að gera miklar rósir til þessa. Var þetta 18 deildarleikurinn í röð sem Valur fær á sig mark, svo því sé haldið til haga. Jafnræði var með liðunum eftir markið en heimamenn eitthvað aðeins líklegri til að hirða þrjú stig.

Undir lok leiksins fengu Valsmenn síðan aukaspyrnu rétt fyrir aftan miðju. Martin Petersen tók sér óratíma í að sparka boltanum og Magnús Þórisson blés leikinn af meðan boltinn sveif um loftið. Óþarfa tímasóun hjá Petersen þegar ljóst var að leiktíminn var að renna út og lét Arnar Sveinn hann heyra það óþvegið.

chuck_evo

Fótbolti.net talar um agavandamál hjá Dönum liðsins í viðtali við Gunnlaug Jónsson og eins voru nefndar kítingar milli Arnars Sveins og Pedersen að leik loknum. Þjálfarinn segir agamálin vera leyst, deilur milli leikmanna séu af hinu góðu og sýni að það sé skap í mönnum. Vonandi að svo sé því nóg er nú ruglið samt.

Fyrir Íslandsmótið var gripið í frasahandbókina og talað um að liðið væri að taka uppbyggingartímabil en slíkt er talið óbrigðult ráð til að létta af kröfum á keppnisliðum. Að notast við handónýtan danskan framherja í hverri umferð er varla hluti af þessum uppbyggingar áformum og þegar agavandamál bætast í ofan á lag verður sífellt erfiðara að átta sig á eftir hvaða plani er verið að vinna. Líklegasta skýringin á veru König í byrjunarliðinu er að hann velur sig nánast sjálfur í liðið enda varla neinn annar framherji á boðstólum. Pedersen getur aftur á móti bætt fyrir eitt stykki fyllerí með þokkalegum framstöðum.

Jafntefli í Kaplakrika eru alls ekki slæm úrslit en Valsarar eru orðnir frekar langeygir eftir sigri sem hefði vel getað dottið okkar megin. Sérstaklega þar sem FH-ingar virkuðu enn þotuþreyttir eftir sneypuför til Hvíta Rússlands og alls ekki tilbúnir í neinn hörku leik.

Næsti leikur Vals er gegn ÍBV í Eyjum á sunnudag. Sjáum til hvort það verði komið nánar að því síðar.

 

 

Digg    Facebook   
 
Dós af rassskellingu
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 13. júlí 2010 13:18

 

rassskelling


Valsarar voru mættir í Laugardalinn í gær til að horfa á sína menn glíma við Framara í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Í jafnteflisleik liðanna á dögunum misstu Valsmenn dampinn eftir góða byrjun og svipaða sögu var að segja um leikinn í gær. Munurinn var einna helst sá að í gær fengu Valsmenn enga forgjöf frá gestgjöfunum en hin alræmda Gjafavörudeild Valsliðsins var í essinu sínu líkt og svo oft í sumar. 3-1 sigur Framara var sanngjarn í alla staði og allt stefnir í miðjumoð þriðja tímabilið í röð.

Gunnlaugur Jónsson kippti sér greinlega lítið yfir peysukasti Danni König gegn Haukum og var Daninn í byrjunarliðinu að vanda. Viktor Unnar fékk einnig tækifæri í fjarveru Arnars Sveins en að öðru leyti var byrjunarliðið með hefðbundnu sniði.
Valsliðið leit þolanlega út í fyrri hálfleik og virtist vel geta staðið í hinu spræka liði Fram. Fátt var þó um fína drætti og mikil stöðubarátta á miðjunni einkenndi leikinn. Sóknarleikur Vals var frekar takmarkaður en sama mátti segja um Fram.

Í síðari hálfleik tóku hjólin að snúast og það á sveif með Framliðinu. Almar Ormarsson var nálægt því að brjóta ísinn í nánast fyrstu sókn Fram en Kjartan sýndi gamalkunna takta og bjargaði á ótrúlegan hátt.
Færið var ekki til þess að hrista upp í Valsliðinu heldur fór allt í gang hjá Frömurum sem tóku sig til og völtuðu algjörlega yfir sljóa Valsmenn. Á átta mínútna kafla opnuðu Framarar dós af rassskellingum og sturtuðu yfir Valsara. Þrjú mörk litu dagsins ljós á þessum kafla og þrátt fyrir að Valur hefði minnkað muninn um fimm mínútum eftir þriðja mark Fram einkenndi hálfgerður doði liðið og sýndu fáir leikmenn þess merki að hafa getu til að rífa sig upp og setja pressu á Framara. Öruggur sigur Fram niðurstaða og lítið hægt að segja um frammistöðu Valsmanna sem ekki hefur verið tíundað undanfarið.


Water22

Stemmingin í stúkunni hefur verið með daufasta móti í sumar en helstu kanónur úr stuðningsmannaliðinu virðast hafa öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. Eitthvað er lítið um endurnýjun í hópnum en vonandi náum við að taka okkur saman í andlitinu að þessu leyti á seinni hluta Íslandsmótsins.

Flogið var með einn slakasti dómara deildarinnar, Þórodd Hjaltalín junior (já hann nefnir sig junior!), frá Akureyri til að stjórna flautunni og hans helsta axarskaft var þegar Hannes Halldórsson fékk aukaspyrnu eftir villt úthlaup. Atli Sveinn kom boltanum í netið en markið stóð ekki. Annars voru yfirburðir Framliðsins slíkir að Valsmenn voru fremur ólíklegir til að komast inn í leikinn svo lítið stoðar að ræða hlutverk dómarans.

Á dögunum var reifað hversu erfitt er fyrir Gunnlaug að stokka upp í vörninni. Breiddin er lítil og menn velja sig nánast sjálfir í liðið þrátt fyrir skelfileg afglöp. Nú er svo komið að Gunnlaugur einfaldlega verður að taka til í öftustu línu ef hann ætlar að verða langlífur í starfi. Auðvitað er ekkert komið að þeim tímapunkti að skipta út Gunnlaugi en þolinmæðin fyrir reynslulitlum þjálfara sem á engan bakgrunn innan félagsins er eðlilega ekki sú sama heldur en ef um mann eins Kristin Lárusson væri að ræða, svo einhver sé nefndur.


vatnsberi
Hugsað út fyrir kassann: vatnsberinn fær tækifæir

Reynir Leósson virðist ekki ganga heill til skógar þessa dagana og það er alveg ljóst að tæpur Reynir er verri en enginn Reynir. Eins hefur Atli Sveinn ekki verið að eiga sitt besta tímabil en þeir félagar missa menn á milli sín nánast leik eftir leik. Sama má segja um Sigurbjörn sem hefur staðið sig prýðilega fram á við en veitir varnarmönnum litla sem enga hjálp þegar liðið er að verjast. Þegar þessir burðarásar eru ekki að skila sínu fer allt í hund og kött annars staðar á vellinum.

Svo við hugsum aðeins út fyrir hinn hefðbunda ramma þá má helst líta til Einars Marteinssonar sem er í láni hjá HK til að koma inn í liðið. Ef það er ekki hægt að notast við Einar í þessari aðstöðu er ærlegra að segja drengnum hreint út að ekki sé þörf fyrir hann hjá félaginu. Eins mætti athuga að nýta krafta Hauks Páls í miðvarðarstöðunni miðað við ástand mála. Haukur er fylginn sér og gæti kannski tekið að sér að loka Gjafavörudeild liðsins.
Helsti höfuðverkur hins lítt reynda þjálfara Valsliðsins er að þétta raðrinar og varla er útileikur gegn FH maskínunni drauma andstæðingur í þessari stöðu. Sá leikur er í Kaplakrika á sunnudaginn klukkan 19.15. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 22