• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hver hefur sinn djöful að draga
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 22. ágúst 2010 20:04

barcode666

Fyrir áhugafólk um svartagaldur, hvítagaldur eða aðrar samsæriskenningar er rétt að benda á enn ein tengsl KR við djöfulinn umfram þessi allra augljósustu. Strikamerkin sem troðið er á allar vörur nú til dags innihalda þrjár sexur innan um svarthvítar langrendur. Tilviljun? Varla. 

Valur-KR klukkan 6 á mánudagskvöld í sannkölluðum 6 stiga leik fyrir bæði lið.

Digg    Facebook   
 
Langþráður sigur
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 09:29
gull_haukur
Haukur létti þungu fargi af Gulla

Loksins tóku liðsmenn Vals þrjú stig frá knattspyrnuleik. Ekki nóg með það heldur hélst markið hreint annan leikinn í röð og geta Valsarar.is því hætt að út tuða sig um þann þátt í bili. Allt annar bragur hefur verið yfir vörn liðsins í síðustu tveimur leikjum og þó svo að spilið fram á við sé lítið til að hrópa húrra fyrir þá er auðvitað alltaf mikilvægt að treysta grunninn fyrst. Full oft í sumar hefur liðið verið að byrja leiki ágætlega en síðan fallið allur ketill í eld við að fá á sig mark. 

Leikur Fylkis og Vals einkenndist af mikilli stöðubaráttu og segja má að bæði lið hafi jafnað hvort annað út að því leytinu en fátt var um opin marktækifæri eða góða spilakafla. Báðir þjálfarar liðanna koma úr harðhausa bekknum í hinum fræga knattspyrnuskóla á Skipaskaga og eflaust hafa þeir félagar svipaðar skoðanir á því hvernig eigi að spila fótbolta. 

oli_gulli
Gunnlaugur og Óli Þórðar fagna bikarnum 2003

Segja má að sigurinn hefði getað dottið hvorum  megin en Fylkismenn fengu þó betri færi framan af og var Albert Ingason Valsarasonur einna sprækstur í liði heimamanna. Hjá okkur var það Haukur Páll sem var einn besti maður vallarins og skoraði gamli Þróttarinn eina mark leiksins þegar boltinn datt fyrir hann í miðjum vítateig eftir hornspyrnu. Vel að verki staðið hjá Hauki sem stóð fyrir sínu á miðjunni ásamt þeim Rúnari Má og Jóni Vilhelm. Einnig sýndi Kjartan gamalkunna takta og var öruggur í öllum sínum aðgerðum í markinu. Fátt annað gladdi augað á vellinum fyrir utan baráttuna og vinnusemina sem Valsmenn voru tilbúnir að leggja á sig til að hanga á eins marks forystunni sem kom kannski eitthvað niður á skemmtanagildi leiksins. Að minnsta kosti er það samdóma álit flestra fjölmiðla sem fjalla um leikinn.  

Eftir afleitt gengi síðustu tvo mánuði þar sem liðið hefur hvorki verið þess megnugt að vinna leiki né að spila neitt sérstaklega vel var auðvitað fyrst og fremst mikilvægt að ná að kreista út sigurleik. Þrjú stig gegn Fylki þýða að Valur skilur sig endanlega frá hugsanlegum falldraug og nær að hanga í liðunum um miðja deildina. Næsti leikur er gegn KR klukkan 18.00 á mánudaginn. Vesturbæjar volæðið hefur náð nýjum hæðum eftir bikarúrslitin og spennandi verður að sjá með hvaða hætti liðin nálgast leikinn. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Annað hundraðið nálgast
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 21:05

bikarmeistarar2010
Mynd: fotbolti.net

Í öllum barlómnum sem fylgir meistaraflokki karla gleymist það alltof oft hér á Valsarar.is hversu frábært fótboltlalið meistaraflokkur kvenna er. Velgengni síðustu ára hefur síður en svo stigið liðinu til höfuðs heldur hefur stöðugleikinn haldist og uppskeran er tíundi stóri titillinn frá 2001 og sá ellefti er í seilingar fjarlægð. Stelpurnar urðu bikarmeistarar í tólfta sinn í dag eftir mikinn barnings leik gegn liði Stjörnunnar og titill númer 99 kominn í Íslands- og bikarmeistara safnið á Hlíðarenda. Liðið er síðan í dauðafæri í Pefsí deildinni til að bæta við hundraðasta titlinum í hús á hundraðasta starfsári félagsins. Engu keppnisliði innan Vals er betur treystandi til að ná því markmiði.

Viðbót á mánudegi:
Þetta var jafnframt  fimmtugasti Íslands- eða bikarmeistaratitill sem Valur vinnur í meistaraflokkum í fótbolta. Félagið er það sigursælasta í íslenskri knattspyrnu en næst á eftir kemur KR með 45 dollur og síðan ÍA með 36.

Digg    Facebook   
 
Útkall: Titill númer 99 er í húfi !
Höfundur: Valsarar.is   
Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:12

visabikar

Flaggskip félagsins getur bætt titli númer 99 í Íslands- og bikarmeistarasafn Vals. Mætum og hvetjum þær í átt að þessu takmarki. Við viljum hafa að minnsta kosti 100 titla á afrekaskránni fyrir 11. maí 2011.

 

Digg    Facebook   
 
Málning þornar á endanum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 13:31
Framlag Vals til Gleðigöngu Hinsegin daga var 90 mínútna leiðinda hátíð. Eða svo segja menn. Greinilegt var að Gulli Jóns er farinn að horfa niður fyrir sig á töflunni frekar en upp á við því tap gegn Grindavík hefði þýtt að gestirnir hefðu verið aðeins þremur stigum á eftir Val. 0-0 jafntefli og langrþráð hreint mark leit dagsins ljós og greinilegt var á viðtölum eftir leik að þungu fargi var létt af Valsliðinu hvað það varðaði.
Eftir velheppnaða ferð norður í land var fulltrúi Valsara.is mættur á heimaleik gegn Grindavík. Eitthvað settu umferðartafir strik í ferðaáætlun síðuskrifara þannig að fyrri hálfleikur gekk úr skaftinu og mátti þakka fyrir að ná síðustu 40 mínútum leiksins. Sessunautur minn á Vodafonevellinum fulllvissaði mig um að ekkert stórmerkilegt hefði átt sér stað fram að því og síðar um kvöldið staðfestu Pepsi mörkin með Magga Gylfa og félögum það.
Gulli Jóns var furðu líflegur á línunni miðað við oft áður í sumar og hver veit nema að pressan sé farin að ná til hans. Liðið virtist hugsa mest megnis um að tapa ekki leiknum og tók litlar áhættur fram á við. Reyndar virðist liðinu orðið lífsins ómögulegt að sækja enda losuðu menn sig við einu sóknarmenn félagsins í félagaskiptaglugganum. Síðasta korterið var nánast eign Grindvíkinga sem voru óheppnir að læða ekki inn marki enda sýndu þeir mun meiri sigurvilja og fengu hættulegri færi.
Valsarar.is hafa verið duglegir að benda á markahrinu Valsliðsins síðastliðið ár. Núna loksins komu helstu fjölmiðlamógúlar landsins auga á þessa skelfilegu tölfræði en Valsarar.is taka ekkert aukalega fyrir að vekja athygli á þessu. Liðið batt enda á 20 leikja hrinu í deildinni þar sem það fékk á sig mark og ef bikarleikir eru taldir með þá eru þeir orðnir fimm í röð. Þessir leikir skarast á innbyrðis við deildarleikja hrinuna svo menn skulu forðast að telja þetta sem 25 leiki í röð heldur eru þetta 20 leikir í deild og fimm í bikar. Glósaðu þetta blaðamaður.
Næsti leikur Vals er gegn Fylki á mánudaginn eftir viku. Eini virkilega góði leikur Vals kom einmitt gegn Árbæjarliðinu og kannski menn endurtaki þá gleði. Nánar að því

síðar.

malning



Framlag Vals til Gleðigöngu Hinsegin daga var 90 mínútna leiðinda hátíð. Eða svo segja menn. Ljóst var að Gulli Jóns er farinn að horfa niður fyrir sig á töflunni frekar en upp á við því tap gegn Grindavík hefði þýtt að gestirnir hefðu verið aðeins þremur stigum á eftir Val. 0-0 jafntefli og langrþráð hreint mark leit dagsins ljós og greinilegt var á viðtölum eftir leik að þungu fargi var létt af Valsliðinu hvað það varðaði.

Eftir velheppnaða ferð norður í land var fulltrúi Valsara.is mættur á heimaleik gegn Grindavík. Eitthvað settu umferðartafir strik í ferðaáætlun síðuskrifara þannig að fyrri hálfleikur gekk úr skaftinu og mátti þakka fyrir að ná síðustu 40 mínútum leiksins. Sessunautur minn á Vodafonevellinum fulllvissaði mig um að ekkert stórmerkilegt hefði átt sér stað fram að því og síðar um kvöldið staðfestu Pepsi mörkin með Magga Gylfa og félögum það að mestu.

Gulli Jóns var furðu líflegur á línunni miðað við oft áður í sumar og hver veit nema að pressan sé farin að ná til hans. Liðið virtist hugsa mest megnis um að tapa ekki leiknum og tók litlar áhættur fram á við. Reyndar virðist liðinu orðið lífsins ómögulegt að sækja enda losuðu menn sig við einu sóknarmenn félagsins í félagaskiptaglugganum. Síðasta korterið var nánast eign Grindvíkinga sem voru óheppnir að læða ekki inn marki enda sýndu þeir meiri sigurvilja og fengu hættulegri færi.


naestakynslod
Núverandi uppbyggingar áform gætu tekið tíma

Valsarar.is hafa verið duglegir að benda á markahrinu Valsliðsins síðastliðið ár. Núna loksins komu helstu fjölmiðlamógúlar landsins auga á þessa skelfilegu tölfræði en Valsarar.is taka ekkert aukalega fyrir að vekja athygli á þessu. Liðið batt enda á 20 leikja hrinu í deildinni þar sem það fékk á sig mark og ef bikarleikir eru taldir með þá eru þeir orðnir fimm í röð. Þessir leikir skarast á innbyrðis við deildarleikja hrinuna svo menn skulu forðast að telja þetta sem 25 leiki í röð heldur eru þetta 20 leikir í deild og fimm í bikar. Glósaðu þetta blaðamaður.

Annars er lítið um þennan leik að segja en svo virðist sem að menn óttist að stigasöfnun í ágúst og september geti reynds erfið. Næsti leikur í uppbyggingarferli Vals er gegn Fylki á mánudaginn eftir viku. Eini virkilega góði leikur Vals á þessu Íslandsmóti kom einmitt gegn Árbæjarliðinu og kannski að menn endurtaki þá gleði. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Áfram hitt liðið!
Höfundur: Valþór Druzin   
Laugardagur, 07. ágúst 2010 18:05
gay_valur

Valsarar.is óska þeim sem spila fyrir hitt liðið, aðstandendum þeirra og öllum Íslendingum til hamingju með daginn.


Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 22