• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Rúta uppá Akranes
Höfundur: Valþór Druzin   
Föstudagur, 13. júní 2008 15:49
Við viljum benda á að Ási Motta, stuðari með meiru, reddaði rútuferð uppá Akranes á sunnudaginn, og skráning fer m.a. fram hér á síðunni, með því að smella á tengilinn hér vinstra meginn, nú eða bara hér .

Rútan fer frá Keiluhöllinni 14:40, og svo heim aftur í siðmenninguna strax að leik loknum. Fínt er að fá sér einn eða tvo kalda drykki fyrir rútferðina.
Líka um að gera að nýta sér þetta, losna undan akstrinum fram og tilbaka uppá Skag, og fara í góðra vina hópi, skapa stemmingu og hafa gaman.
Ekki heldur horfa frmahjá sparnaðnum sem það felur í sér í bensíndýrtíðinni.

Við viljum vitaskuld líka benda Völsurum á að splæsa í miða á Skagaleikinn einfaldlega á Miði.is , það er miklu ódýrara, enda algjör óþarfi að vera að styrkja önnur lið of mikið neitt.

* Biðjumst aukinheldur velvirðingar á því hvað skráningarformið er ljótt (og illa þýtt), þessu var hent upp á augabragði.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:12
 
Kæru Stuðarar og aðrir Valsmenn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 10. júní 2008 20:06
Á morgun fer fram einn stæðsti leikur sem spilaður verður á Hlíðarenda þetta sumarið. Valur - KR. Valsstelpunar hafa verið flottasta lið klúbbsins undanfarin ár og er það ekkert slor í félagi eins og Valur er.

Mfl karla og kvenna í handbolta hafa ákveðið að gera sitt allra besta til að styðja stelpunar í þessum mikilvæga leik. Ástæðunar eru nokkrar. Í fyrsta lagi erum við erum VALSARAR og styðjum okkar félag í súru og sætu óháð því hvaða bolta er leikið með og hvaða kyn etja kappi inn á vellinum. Í öðru lagi hafa stelpunar í mfl í fótbolta verið manna duglegastar að mæta á leiki hjá öðrum meistaraflokkum félagsins og eiga því stuðning okkar inni og rúmlega það. Í þriðja lagi spila þær rauðklæddu sannkallaðan sambabolta, eru alveg hreint ótrúlega sprækar og það er okkur sönn ánægja að horfa á slíkar drottningar á vellinum. Svo má ekki gleyma að það gerist ekki á hverjum degi að íþróttamaður ársins spili hörkuleik á Hlíðarenda í rauðu.

Stuðningsmannasveit Valsmanna Stuðarar hafa unnið frábært starf í félaginu. Þeir hafa poppað upp stemminguna svo um munar. Mæting þeirra á fótboltaleiki karla er þó áberandi betri en á aðra kappleiki í félaginu. Nú ætla ég að skora á Stuðara að mæta á leikinn á morgun, í rauðu... með fána lúðra og allt tilheyrandi og sýna þar með að Stuðarar eru stuðningssveit ALLRA VALSMANNA. Tökum Miðjuna í þessum stórslag og jörðum hana. Sannir Valsmenn styðja allt félagið og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lúta ekki gras fyrir KR.

Að sjálfsögðu eru aðrir Valsarar hvattir til að mæta. Leikirnir verða ekki skemmtilegri en þetta. Stelpunar okkar eiga það skilið því engin hefur haldið merki félagsins jafn hátt og lofti síðustu ár og þær.

Sjáumst á morgun

AFRAM VALUR - ALLTAF - ALLSTAÐAR

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. júní 2008 20:12
 
Eigi skal gráta...
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 05. júní 2008 17:07
Jæja, Valsliðið hefur ekki byrjað mótið í ár á þann hátt sem við stuðningsmenn hefðum helst kosið, og 2 sigrar í 5 leikjum finnst okkur flestum helst til súrt í broti, enda var væntingavísitala valsara í hæstu hæðum áður en blásið var til leiks í fyrstu umferð í Keflavík fyrir nokkrum vikum.

Hinsvegar þýðir ekkert að tuða sig aftur í steinaldir eða detta í einhverja Vesturbæjartaugaveiklun yfir þessu, betra er að taka sig saman í andlitinu, skeina sér, hysja upp um sig og gyrða í brók, og mæta tvíelfdur til næsta leiks, en þetta á vitaskuld bæði við um Valsliðið sem og stuðningsmenn þess.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Líklegt byrjunarlið í kvöld
Skúbb
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 02. júní 2008 12:42
Image

Líklegt byrjunarlið í leiknum
 í kvöld


Kjartan í markinu
Gunni Einars hægri bakvörður, Atli Sveinn miðvörður, Bjarni Ólafur miðvörður, René Carlsen vinstri bakvörður.
Birkir hægri kantur, Bjössi Hreiðars miðja, Rasmus Hansen miðja, Habbó vinstri kantur.

Helgi Sig og Pálmi Rafn fremstir.

Bekkur  Ágúst Markmaður, Baldur Aðalsteins,Baldur Þórólfs, Guðmundur Steinn, Einar Marteins. Geir Brynjólfsson, Albert Inga.

Meiddir  Barry Smith- G-Ben- Steinþór- Dennis..
í banni Baldur Bett


Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 02. júní 2008 14:23
 
Skúbbaðu !
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 30. maí 2008 12:10
Nú getur þú skúbbað á www.valsarar.is.
Skúbbið er háð samþykki ristjórnar, og þú verður að setja inn löglegt netfang. Netfangið birtum við þó ekki á síðunni.

Skoðaðu málið hérna

Digg    Facebook   
 
Viðtal við Pálma Rafn
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 27. maí 2008 14:01
Viljum benda völsurum á viðtalið við meistara Pálma Rafn Pálmason á fótbolta.net í dag.

Sömuleiðis viljum við koma á framfæri óskum um að Habbó nái sér nú fljótt og vel eftir þennan hrikalega skell þarna á móti Grafarvogsbolunum, já og auðvitað að allir hinir leikmennirnir nái að skríða saman sem allra fyrst.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Síðasta >>

Síða 17 af 19