|
Höfundur: Valþór Druzin
|
|
Miðvikudagur, 02. júlí 2008 16:07 |
Við viljum vekja athygli á því að við höfum slökkt á Spjallinu hér á Valsarar.is, í ljósi þess að Vals-spjallið hjá hinu opinbera er komið í góðan gír á ný. Þetta var enda aðeins hugsað sem millibilsástand á meðan sú síða lá niðri.
Fleira er ekki í fréttum...
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:11 |
|
Miðvikudagur, 02. júlí 2008 11:14 |
|
Þrátt fyrir að umfjöllun um Þróttara leikinn hafi dottið upp fyrir hjá okkur á valsarar.is þá hefur Knattspyrnufélagið Valur síður en svo legið í dvala síðustu daga. Góður 0-3 útisigur vannst loks gegn sprækum Þrótturum á sunnudag og meistaraflokkur kvenna lagði svo Fylki 4-1. Í gær drógumst við gegn martraðarliðinu Bade frá Hvíta Rússlandi í Meistaradeildinni en handan við hornið bíður stórlið Anderlecht frá Brussel í Belgíu, ekki ónýtt það.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. júlí 2008 14:23 |
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 24. júní 2008 11:04 |
 Gryfjan á Hlíðarenda ( mynd : www.valsmyndir.com ) Fyrsti stórleikur sumarsins er að bresta á, fimleikafélagið úr Hafnarfirði mætir til grasæfinga á Hlíðarenda í kvöld, ásamt því sem ætla má fríðu föruneyti.
Áður en lengra er haldið, er vert að benda á að stúkan á Vodafonevellinum tekur aðeins 1200 manns í sæti þannig að við viljum benda fólki á að mæta með fyrra mótinu til þess að þurfa síður að standa við vallarlínuna sunnanverða. Það svæði má gjarnan frátaka fyrir hafnarfjarðarmafíuna. Við Stuðningsmenn Vals ætlum að venju að hittast á pöbbnum í Keiluhöllinni um klukkan 18, n.t.t. alla leið inni á Rúbín í þetta skiptið. Þar verða góðir prísar á veitingum og leynigestur mætir til að heilsa uppá stuðningsmenn. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir eins og alltaf, og sérstaklega væri gaman ef meðlimir úr hafnarfjarðarmafíunni myndu reka inn nefið.
En þá að máli málanna, leiknum í kvöld.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. júní 2008 15:17 |
|
Nánar...
|
|
|
Baldur Bett meiddur...... |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 23. júní 2008 22:08 |
 Baldur Bett Baldur Bett meiddur og verður ekki með á móti FH á morgun .. Baldur tognaði í innanverðu læri og verður frá í einhvern tíma, Sigubjörn Hreiðarsson mun líklega taka stöðu Baldurs á miðjunni. Meiðslasaga Baldurs Aðalsteins heldur áfram en hann meiðslin tóku sig upp aftur í u-23 leik sem var spilaður við KR á laugardaginn var , Og verður einhver tími þangað til hann dettur inn aftur.. Gleðitíðindin eru sú að Barry Smith er gott sem klár hann spilaði 45 mín í sama leik. Danni Hjalta er líka klár sem og Frelsarinn sjálfur G-Ben...... Það er vonandi að sem flestir sjái sér fært til þess að koma á leikinn á morgun , Það er von á um 3000 manns á Vodafonevöllinn.................... Áfram Valur
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. júní 2008 15:05 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 20. júní 2008 00:35 |
|
Valsarar unnu Þórsara í kvöld í óáhorfendavænustu bikarkeppni Evrópu. K.S.Í. ásamt R.Ú.V.lögðu sig sameiginlega fram við að draga sem mest úr áhuga fólks á keppninni. Engin leið var fyrir stuðningsmenn í venjulegu starfi að ná út á land til að sjá liðið sitt spila á fimmtudagskvödi og R.Ú.V passaði upp á að enginn sæji neitt áhugavert frá keppninni. Virkileg fagmennska í gangi.
|
|
Barry Smith,Danni Hjalta og G-Ben líklegir í hóp á sunnud |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 13. júní 2008 17:16 |
Barry Smith , Danni Hjalta og Guðmundur Benediktsson verða líklega allir í 18 manna hóp á sunnudaginn þegar við sækjum Skagamenn heim. Danni spilaði allan leikinn með 23 liðinu í vikunni þegar við burstuðum Fylki 6-0 , Skoraði Danni tvö mörk og sýndi flott tilþrif í leiknum. Barry átti að spila leikinn en Willum ákvað að láta hann hvíla vegna leikbanns Atla Sveins og eru bara ágætis líkur á að hann verði í byrjunaliðinu. G-Ben er allur að skríða saman og tók hann þátt í síðustu æfingu á fullum krafti sem segir mér að Willum eigi eftir að nota hann í skagaleiknum nema eitthvað komi uppá á æfingu í dag eða morgun... Baldur Aðalsteins á örlítið í land ennþá eftir að hafa verið að tæklaður niður allsvakalega í HK leiknum, En gæti samt jafnvel komið inn í hóp. Þetta eru allt jákvæðar fréttir fyrir okkur valsmenn að menn séu að skríða saman... Áfram Valur
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. júní 2008 12:55 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 16 af 19 |