|
Vegna leiks Fylkis og Keflavíkur |
|
Mánudagur, 28. júlí 2008 15:22 |
 Myndin góða af Leifi óheppna er hér með endur-endurbirt með von um góð úrslit hjá þeim appelsínugulu gegn spútnikliði Keflavíkur.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 08. ágúst 2008 09:56 |
|
Kaffistund hjá Gróu á Leiti |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 25. júlí 2008 17:41 |
 *Valsarar.is þekkja hina og þessa menn á æðstu stöðum og innstu hringjum, að ógleymdum öllum helstu kjaftakerlingum beggja megin Faxaflóa. Einu og öðru hefur verið gaukað að okkur síðustu daga og eftirfarandi er það allra helsta. Taka ber skýrt fram að þetta eru allt sögusagnir sem ekki þurfa að eiga sér stoð í raunveruleikanum. En eins og gamla konan sagði þá ber ekki að láta góða sögu gjalda sannleikans.
|
|
Nánar...
|
|
Valur - Bate 19.15 í kvöld |
|
Miðvikudagur, 23. júlí 2008 12:03 |
 Bate frá Hvíta Rússlandi mæta í dag á Vodafone völlinn í leik sem er líklega fyrsti Evrópuleikurinn í knattspyrnu sem fram hefur farið á Hlíðarenda. Eins og allir Valsarar vita þá sigruðu Hvít-Rússarnir okkur 2-0 á sínum heimavelli sem þýðir að ekkert minna en 3-0 sigur dugir okkur til að komast áfram. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður upphitun hjá Stuðurum frá klukkan 17.00. Áframhaldandi þátttaka í undandkeppni Meistaradeildarinnar er í húfi og kúltúrferð til Brussel næsti dagskrárliður komist Valsliðið áfram. Íslenska þjóðin treystir því á okkur Valsmenn.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júlí 2008 12:06 |
|
|
Þriðjudagur, 22. júlí 2008 14:17 |
 Útlitið er ekki bjart hjá góðkunningjum okkar á Akranesi þessa dagana. Lið ÍA ber sömu einkenni og KR á síðustu leiktíð sem virtist hafa hlaupið úr sér lungu og lifur á undirbúningstímabilinu. Sigrar hjá Grindavík og Þrótti í síðustu umferð þýða að aðeins Fylkir er í seilingarfjarlægð fyrir Skagastórveldið sem má heldur betur mun sinn fífil fegurri.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. júlí 2008 14:19 |
|
Nánar...
|
|
Snítupappír uppseldur í póstnúmeri 107 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 11. júlí 2008 17:53 |
Síðustu pakkarnir seldust í Melabúðinni í dag. Ný sending væntanleg á mánudaginn: http://krreykjavik.is/?p=544 Menn eru farnir að lofa hefndum fyrir seinni leikinn. Svipað og þeir gerðu FYRIR þennan leik líka: http://krreykjavik.is/?p=539 Maður er hreinlega farinn að fá sykursjokk áhrif af þessum sigri. Þetta er farið að verða allt of mikið.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 14:30 |
|
Föstudagur, 11. júlí 2008 14:50 |
 Óheppnin hefur elt Leif Garðarsson á röndum undanfarið. Nú er svo komið að fjölmiðlar eru farnir að hæða hann og spotta við hvert tækifæri. Á götum bæjarins er talað um að leikur Fylkis í Kaplakrika á sunnudag verð hans síðasti séns til að snúa við Fylkisskútunni. Við síðustu birtingu þessarar myndar snéru Leifur og lærisveinar blaðinu við og lögðu okkur Valsmenn að velli 2-0. Valsarar.is vonast til að endurbirting þessarar myndar nægi til að kveikja í þeim appelsínugulu í Krikanum á sunnudag.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 08. ágúst 2008 09:56 |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 14 af 19 |