• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Fjandvinir að hverfa? 2
Fimmtudagur, 23. október 2008 11:21
Image
Síðuskrifari gerðist sekur á dögunum um að fá kökkinn í hálsinn vegna ótímabærar andlátsfregnar af Knattspyrnufélaginu Fram. Samningaviðræður Fram við Fjölni sigldu í strand m.a. vegna þess að verðandi Grafarholtsklúbburinn gerði þá kröfu á Grafarvogsklúbbinn um að sameinað félag myndi heita Fram. Óneitanlega eru ákveðnar spurningar sem vakna varðandi hvað það var sem hratt þessum viðræðum af stað og hvert framhaldið verður hjá öðrum af helstu erkifjendum Vals. Er Fram kannski á leiðinni í þrot?

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Föstudagur, 24. október 2008 13:17
Nánar...
 
Tvíhöfði í Hafnarfirði
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 11. október 2008 12:16
Handbolti er lífið sagði Guðjón Guðmundsson (Gaupi) eitt sinn við einn af síðuhöldurum og hann ásamt lífinu heldur áfram. Meistaraflokkar kvenna og karla leika við kollega sína í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í Kaplakrika í dag. Kvennaleikurinn hefst klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16.

Í öðrum fréttum:

*Evrópudraumar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu eru úti þetta árið eftir 2-3 tap í morgun gegn Bardolino frá Ítalíu.

*Meistaraflokkur karla í körfubolta vann sinn fyrsta leik í 1. deild í gær gegn Þór Þorlákshöfn 100-74.

*Fyrrum leikmenn Vals þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Birkir Már Sævarsson ásamt Valsmanninum Bjarna Ólafi Eiríkssyni eru líklegir til að vera byrjunarliði Íslands gegn Hollandi í dag. Pálmi Rafn Pálmason er einnig í hópnum.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Laugardagur, 11. október 2008 12:29
 
Valur - HK í kvöld
Mánudagur, 06. október 2008 16:21
Sumir dansa til að gleyma. Aðrir horfa á handbolta. Bikarkeppni HSÍ hefst í kvöld og tökum við í Val á móti HK. Leikurinn hefst klukkan 19.30.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 06. október 2008 16:21
 
Spurningin sem brennur á allra vörum...
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 01. október 2008 11:56
...eru peningarnir sem Valur fékk fyrir þá Birki Má og Pálma Rafn ekki örugglega inn á gjaldeyrisreikning?

Það er nóg að gera á Hlíðarenda þrátt fyrir að fótboltanum sé lokið. Handboltafólk farið að klína harpix upp um alla veggi og körfuboltaliðin að gera sitt til að halda sínum merkjum uppi. Nýtt útlit komið á valur.is en spjallborðið liggur niðri. Menn rasa kannski út í athugasemdakerfinu hér í staðinn, svona til tilbreytingar.

Í lok vikunnar ætlum við pennarnir á valsarar.is að koma með uppgjörspistla um nýliðið tímabil enda af nægu að taka.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. október 2008 11:56
 
Tap og aftur tap
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 28. september 2008 18:13
Tapleikur gegn KR beit höfðuðið af skömminni þetta tímabilið. Aðeins fjögur lið í Landsbankadeildinni náðu því ekki að leggja fyrrum Íslandsmeistarana í sumar. Umfjöllun um KR leikinn ætti að detta inn á morgun og í vikunni munum við gera upp sumarið.

Digg    Facebook   
 
Fyrsti í handbolta
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 18. september 2008 11:02
efnilegurÍ kvöld kíkja Valsmenn í Fossvoginn og hefja þar með þáttöku liðisins á Íslandsmóti karla á móti Víkingum.
Óhætt er að segja að Valsliðið sé ógnarsterkt, a.m.k. á pappírunum, og eftirvæntingin mikil. Við förum betur yfir handboltamálin fyrir fyrsta heimaleikinn, en hvetjum valsmenn til að mæta í víkina, og styðja valsmaskínuna sem dregin er áfram af Hlíðarendatröllinu.

Áfram Valur !


Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 18. september 2008 15:10
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Síðasta >>

Síða 12 af 19