• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Er ekkert að Markan?
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 31. maí 2009 14:48
Image
Valsarar.is komu inn á mál Péturs Georgs Markan á dögunum eftir að hinn framsækni leikmaður lét ginna sig í tvö viðtöl. Líkt og Valsarar.is bentu á var Pétur sæmilega ósáttur í viðtali við Hafliða Breiðfjörð en hjá Henrý Birgi var ekki annað að lesa en að verulega þungur tónn væri í Valsmanninum. Eðlilega var Pétur tekinn á teppið hjá Willum en samkvæmt heimildum Valsara.is ku Pétur ekki vera par sáttur við æsifréttamennskuna sem var undirliggjandi í grein Fréttablaðsins. Reyndar segir sagan að Pétur kannist bara alls ekki við þetta viðtal og sé meira en sáttur hjá Val hvað svo sem íþróttafréttamönnum dettur í hug að skrifa. Það er sem sagt ekkert að Markan.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 10:59
 
Fyrsti úti sigur tímabilsins
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 28. maí 2009 23:45
Valur gerði góða ferð í Laugardalinn í kvöld og lagði að velli flökkufélagið Fram með mörkum frá besta framherja deildarinnar og besta bakverði deildarinnar. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun en þangað til mega menn endilega bauna inn skoðunum á leiknum.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 23:45
 
Fram í kvöld
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 28. maí 2009 11:36
Image
Í kvöld sækir meistaraflokkur karla heim erkifjendur okkar í Fram á Þjóðarleikvangnum, enda á Fram ekki heimavöll eins og allir vita. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og ljóst er að allt annað en þrjú stig í kvöld hækkar hitastigið undir stól þjálfarans enn frekar.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 11:36
 
Fyrsti Valsarinn til að verða Evrópumeistari
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 28. maí 2009 00:49
Image
Eiður Smári Guðjohnsen sem hóf meistaraflokks feril sinn árið 1994 með Knattspyrnufélaginu Val varð í kvöld fyrstur leikmanna Vals til að verða Evrópumeistari og það í Meistaradeildinni sjálfri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Eiður braut ísinn með meistaraflokki Vals á sínum tíma og gekk svo til liðs við PSV Eindhoven. Nú hefur hann náð hæsta tindi eftir margar lægðir en botninum var án efa náð þegar hann var í hlutverki feitabollu í KR. Valsmaðurinn Guðni Bergsson hjálpaði til við að draga Eið Smára af upp af botninum á sínum tíma og restin er hluti af sagnfræðinni. Glæsilegt Eiður!

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:02
 
Allt að verða vitlaust?
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 27. maí 2009 13:41
Image
Pétur Georg Markan er ekki par sáttur þessa dagana. Í viðtali við Hafliða Breiðfjörð á fótbolta.net virkar Pétur temmilega óánægður með að fá ekki tækifæri en í viðtali við Henrý Birgi virðist hann vera að ganga af göflunum. Hér er viðtalið við Pétur á fótbolta.net: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=76395 og síðan við Fréttablaðið: http://visir.is/article/20090527/IDROTTIR0101/346739834

Það er því spurning hvort að Pétur sé að fylgja í kjölfar þeirra Alberts Ingasonar og Kristjáns Haukssonar sem yfirgáfu Val nú á vordögum. Pétur hefur ýmislegt til síns máls og ótrúlegt að þjálfarinn skuli ekki nýta þá hraðamöguleika sem hann hefur fram yfir marga aðra leikmenn liðsins.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 10:58
Nánar...
 
Hvað er í gangi?
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 25. maí 2009 23:01
Image
Já hvað er hægt að segja. 1-1 gegn Grindavík og ekki neitt merkilegt í gangi. Umfjöllun um leikinn bíður til morguns en á meðan hefur Captain Jean-Luc Picard orðið. Endilega sendið inn álit á frammistöðu Valsliðsins.

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Mánudagur, 25. maí 2009 23:13
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 19