|
Höfundur: Valþór Druzin
|
|
Föstudagur, 26. júní 2009 15:12 |
|
Valsarar.is auglýsa eftir sniðugum bloggurum á síðuna, sem eru til í að skrifa sína vinkla á uppáhalds liðið okkar. Bloggið myndi birtast undir valmyndinni 'Valsarablogg', og svo myndu vel valdir pistlar detta á forsíðuna á valsarar.is Áhugasamir mega gjarnan senda okkur línu á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 26. júní 2009 15:50 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 26. júní 2009 14:41 |
 Jæja hvað er hægt að segja eftir svona rassskellingu. Valur steinlá fyrir stinnum og flottum Stjörnufolum 3-0 á gervigrasinu í Garðabænum í kvöld. Möguleikarnir á að elta FH-inga eru að renna Val endanlega úr greipum þetta tímabilið og ekkert nema sigur gegn Hafnfirðingum í næstu umferð heldur þeim í augsýn. Ýmislegt fleira þarf að falla með okkar mönnum ef það á að rætast eitthvað úr þessu tímabili.
Nánari umfjöllun um leikinn kemur á morgun en þangað til er orðið laust fyrir lesendur
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 10:55 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 24. júní 2009 12:01 |
 Á fimmtudagskvöld förum við Valsarar í heimsókn á gervigrasið í Garðabæ og spilum gegn spútnikliði Stjörnunnar. Garðabæjarliðið er búið að koma mikið á óvart í sumar og skellti m.a. Fram 4-1 á dögunum en einnig fengið sína skelli gegn FH og síðan Fylki í bikarnum. Blikar lögðu Stjörnumenn á mánudaginn og Valsarar verða að vona að nýja brumið sé farið af nýliðunum. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Lesendur geta unnið sér inn einn fisléttan í Stuðaratjaldinu á næsta heimaleik með því að giska á rétt úrslit í athugasemdunum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:06 |
|
|
Fleiri námskeið fyrir Willum |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 22. júní 2009 22:58 |
 Þorgrímur Þráins lagði línurnar í kvöld og það var ekki að sökum að spyrja. Pétur Georg Markan sýndi að það er ekkert sem amar að honum og gaf tóninn eftir 7-8 sekúndur. Það er þá nákvæmlega ekkert AÐ Markan eftir allt saman, a.m.k á meðan ákveðinn maður er utan landhelgi. Ólafur Páll klýndi öðru marki eftir 10. mínútna leik og þar við sat. 2-0 sigur hjá Val og við skríðum hægt og rólega upp töfluna. Umfjöllun um leikinn kemur inn á morgun en þangað til er orðið laust fyrir lesendur.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 11:05 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Sunnudagur, 21. júní 2009 22:12 |
 Eyjamenn mæta á Hlíðarenda nú á mánudagskvöldið. Partýtjaldið góða er enn á sínum stað við Fjósið. Gaman væri að sjá helstu úrtölumenn spjallborðsins mæta og létta af hjarta sínu um þær skoðanir sem þeir hafa liðinu og öðru sem tengist félaginu í góðum selskap. Léttiefni fæst á staðnum í fljótandi formi. Menn geta spáð um úrslit hér í athugasemdunum og heimt einn Grænan eftir leik rambi viðkomandi á réttar tölur.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 21. júní 2009 22:15 |
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 18. júní 2009 12:35 |
 Gæsirnar á Álftanesi munu mæta Valnum frá Hlíðarenda í kvöld. Gera má ráð fyrir ójöfnum leik en menn geta spáð um úrslit í athugasemdakerfinu hér að neðan. Sá sem giskar á rétt úrslit vinnur sér einn léttan og getur vitjað vinningsins í Stuðaratjaldinu á næsta leik gegn ÍBV.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 19 |