|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Laugardagur, 11. október 2008 12:16 |
|
Handbolti er lífið sagði Guðjón Guðmundsson (Gaupi) eitt sinn við einn af síðuhöldurum og hann ásamt lífinu heldur áfram. Meistaraflokkar kvenna og karla leika við kollega sína í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í Kaplakrika í dag. Kvennaleikurinn hefst klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16.
Í öðrum fréttum:
*Evrópudraumar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu eru úti þetta árið eftir 2-3 tap í morgun gegn Bardolino frá Ítalíu.
*Meistaraflokkur karla í körfubolta vann sinn fyrsta leik í 1. deild í gær gegn Þór Þorlákshöfn 100-74.
*Fyrrum leikmenn Vals þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Birkir Már Sævarsson ásamt Valsmanninum Bjarna Ólafi Eiríkssyni eru líklegir til að vera byrjunarliði Íslands gegn Hollandi í dag. Pálmi Rafn Pálmason er einnig í hópnum.
 |
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 11. október 2008 12:29 |