|
Miðvikudagur, 02. júlí 2008 11:14 |
|
Þrátt fyrir að umfjöllun um Þróttara leikinn hafi dottið upp fyrir hjá okkur á valsarar.is þá hefur Knattspyrnufélagið Valur síður en svo legið í dvala síðustu daga. Góður 0-3 útisigur vannst loks gegn sprækum Þrótturum á sunnudag og meistaraflokkur kvenna lagði svo Fylki 4-1. Í gær drógumst við gegn martraðarliðinu Bade frá Hvíta Rússlandi í Meistaradeildinni en handan við hornið bíður stórlið Anderlecht frá Brussel í Belgíu, ekki ónýtt það.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. júlí 2008 14:23 |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 24. júní 2008 11:04 |
 Gryfjan á Hlíðarenda ( mynd : www.valsmyndir.com ) Fyrsti stórleikur sumarsins er að bresta á, fimleikafélagið úr Hafnarfirði mætir til grasæfinga á Hlíðarenda í kvöld, ásamt því sem ætla má fríðu föruneyti.
Áður en lengra er haldið, er vert að benda á að stúkan á Vodafonevellinum tekur aðeins 1200 manns í sæti þannig að við viljum benda fólki á að mæta með fyrra mótinu til þess að þurfa síður að standa við vallarlínuna sunnanverða. Það svæði má gjarnan frátaka fyrir hafnarfjarðarmafíuna. Við Stuðningsmenn Vals ætlum að venju að hittast á pöbbnum í Keiluhöllinni um klukkan 18, n.t.t. alla leið inni á Rúbín í þetta skiptið. Þar verða góðir prísar á veitingum og leynigestur mætir til að heilsa uppá stuðningsmenn. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir eins og alltaf, og sérstaklega væri gaman ef meðlimir úr hafnarfjarðarmafíunni myndu reka inn nefið.
En þá að máli málanna, leiknum í kvöld.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. júní 2008 15:17 |
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 20. júní 2008 00:35 |
|
Valsarar unnu Þórsara í kvöld í óáhorfendavænustu bikarkeppni Evrópu. K.S.Í. ásamt R.Ú.V.lögðu sig sameiginlega fram við að draga sem mest úr áhuga fólks á keppninni. Engin leið var fyrir stuðningsmenn í venjulegu starfi að ná út á land til að sjá liðið sitt spila á fimmtudagskvödi og R.Ú.V passaði upp á að enginn sæji neitt áhugavert frá keppninni. Virkileg fagmennska í gangi.
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 05. júní 2008 17:07 |
Jæja, Valsliðið hefur ekki byrjað mótið í ár á þann hátt sem við stuðningsmenn hefðum helst kosið, og 2 sigrar í 5 leikjum finnst okkur flestum helst til súrt í broti, enda var væntingavísitala valsara í hæstu hæðum áður en blásið var til leiks í fyrstu umferð í Keflavík fyrir nokkrum vikum.
Hinsvegar þýðir ekkert að tuða sig aftur í steinaldir eða detta í einhverja Vesturbæjartaugaveiklun yfir þessu, betra er að taka sig saman í andlitinu, skeina sér, hysja upp um sig og gyrða í brók, og mæta tvíelfdur til næsta leiks, en þetta á vitaskuld bæði við um Valsliðið sem og stuðningsmenn þess.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 11 |