|
Þriðjudagur, 28. október 2008 11:05 |
|
Þegar þjóðin er að farast úr maniukasti yfir bankakreppu Björgólfsfeðga, eða hverra þeirra KR-inga sem um er að kenna, þá svífa Valsmenn vængjum þöndum yfir vandræðaganginn. En sem komið er að minnsta kosti.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 28. október 2008 11:06 |
|
Nánar...
|
|
|
Fimmtudagur, 23. október 2008 11:21 |
Síðuskrifari gerðist sekur á dögunum um að fá kökkinn í hálsinn vegna ótímabærar andlátsfregnar af Knattspyrnufélaginu Fram. Samningaviðræður Fram við Fjölni sigldu í strand m.a. vegna þess að verðandi Grafarholtsklúbburinn gerði þá kröfu á Grafarvogsklúbbinn um að sameinað félag myndi heita Fram. Óneitanlega eru ákveðnar spurningar sem vakna varðandi hvað það var sem hratt þessum viðræðum af stað og hvert framhaldið verður hjá öðrum af helstu erkifjendum Vals. Er Fram kannski á leiðinni í þrot?
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 24. október 2008 13:17 |
|
Nánar...
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Laugardagur, 11. október 2008 12:16 |
|
Handbolti er lífið sagði Guðjón Guðmundsson (Gaupi) eitt sinn við einn af síðuhöldurum og hann ásamt lífinu heldur áfram. Meistaraflokkar kvenna og karla leika við kollega sína í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar í Kaplakrika í dag. Kvennaleikurinn hefst klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16.
Í öðrum fréttum:
*Evrópudraumar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu eru úti þetta árið eftir 2-3 tap í morgun gegn Bardolino frá Ítalíu.
*Meistaraflokkur karla í körfubolta vann sinn fyrsta leik í 1. deild í gær gegn Þór Þorlákshöfn 100-74.
*Fyrrum leikmenn Vals þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Birkir Már Sævarsson ásamt Valsmanninum Bjarna Ólafi Eiríkssyni eru líklegir til að vera byrjunarliði Íslands gegn Hollandi í dag. Pálmi Rafn Pálmason er einnig í hópnum.
|
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 11. október 2008 12:29 |
|
Mánudagur, 06. október 2008 16:21 |
|
Sumir dansa til að gleyma. Aðrir horfa á handbolta. Bikarkeppni HSÍ hefst í kvöld og tökum við í Val á móti HK. Leikurinn hefst klukkan 19.30.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 06. október 2008 16:21 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 6 af 11 |