|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Kreppa? Hvaða kreppa? |
| Þriðjudagur, 28. október 2008 11:05 |
|
Þegar þjóðin er að farast úr maniukasti yfir bankakreppu Björgólfsfeðga, eða hverra þeirra KR-inga sem um er að kenna, þá svífa Valsmenn vængjum þöndum yfir vandræðaganginn. En sem komið er að minnsta kosti.
Einu félagaskiptin sem hafa átt sér stað að loknu tímabilinu hafa verið skipti þeirra Ian Jeffs og Reynis Leóssonar yfir í Val. Báðir þessir leikmenn voru með samning við sín félög en koma frítt yfir á Hlíðarenda. Reynir gerir starfslokasamning við Fram og Ian Jeffs er ekki með gildan KSÍ samning við Fylki en gott ef Björgólfur Takefusa fór ekki til KR frá Fylki á svipuðum forsendum. Sem sagt þegar allt stefnir í kaldakol á landinu bláa þá safnar Vodafone-ránfuglinn í sarpinn. Reiðin virðist krauma víða í garð Valsmanna. Hin ótæmandi uppspretta gáfumanna á KR-spjallinu gengur svo langt að halda fram að skólum borgarinnar kunni að vera lokað til vegna eyðslusemi Valsmanna. Hvað sem öðru líður þá er vissulega erfitt að skilja að Valur geti verið umsvifamikill á leikmannamarkaði sem lítur út fyrir að vera lokaður öllum öðrum. Kannski að menn hafi verið forsjálir og látið norskukrónurnar sem fengust fyrir þá Birki Má Sævarsson og Pálma Rafn Pálmason liggja inn á gjaldeyrisreikning. ------ Talandi um Pálma Rafn þá er drengurinn þegar orðin eins konar cult hetja á meðal stuðningsmanna Stabæk eftir að hafa innsiglt fyrsta meistaratitil félagsins á dögunum. Á meðfylgjandi hlekk er hægt að sjá sigurhátíðina hjá norsku meisturnum en okkar maður stígur á stokk við gríðarfögnuð þegar tímastikan er komin í tæpar 10 mínútur: http://webtv.tv2.no/webtv/sumo/?treeId=250&progId=270028&itemId= ----- Elísabet Gunnarsdóttir gerir það einnig gott en á dögunum var hún ráðin sem þjálfari í Svíþjóð. Valsarar.is þakka Elísabetu kærlega fyrir sitt framlag en titlasöfnun Vals á síðustu árum hófst einmitt undir hennar stjórn. ----- Íslenska kvennalandsliðið sem að sjálfsögðu er borið uppi af Völsurum gerir það einnig gott eins og alþjóð veit. Valsarar láta varla sitt eftir liggja í stúkunni í leiknum gegn Írum hvenær svo sem hann fer fram. Besservisserar (0)
![]() Skráðu inn athugasemd
|
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 28. október 2008 11:06 |