|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Þriðjudagur, 24. júní 2008 11:04 |
 Gryfjan á Hlíðarenda ( mynd : www.valsmyndir.com ) Fyrsti stórleikur sumarsins er að bresta á, fimleikafélagið úr Hafnarfirði mætir til grasæfinga á Hlíðarenda í kvöld, ásamt því sem ætla má fríðu föruneyti.
Áður en lengra er haldið, er vert að benda á að stúkan á Vodafonevellinum tekur aðeins 1200 manns í sæti þannig að við viljum benda fólki á að mæta með fyrra mótinu til þess að þurfa síður að standa við vallarlínuna sunnanverða. Það svæði má gjarnan frátaka fyrir hafnarfjarðarmafíuna. Við Stuðningsmenn Vals ætlum að venju að hittast á pöbbnum í Keiluhöllinni um klukkan 18, n.t.t. alla leið inni á Rúbín í þetta skiptið. Þar verða góðir prísar á veitingum og leynigestur mætir til að heilsa uppá stuðningsmenn. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir eins og alltaf, og sérstaklega væri gaman ef meðlimir úr hafnarfjarðarmafíunni myndu reka inn nefið.
En þá að máli málanna, leiknum í kvöld.
Einungis sex stig skilja að Val og FH í deildinni þegar þessi orð eru skrifuð, og ef allt fer að óskum, verður sá munur 3 stig í kvöld. Það er því morgunljóst að allt fyrra tal um að 'mótið sé búið' og annað slíkt tuð, á ekki við nokkur rök að styðjast, það er meira en nóg eftir í pottinum. Það má heldur ekki gleyma því, að mikill viðsnúningur hefur orðið í innbyrðis viðureignum liðanna, því að í mörg ár átti Valur í stökustu vandræðum með fimleikafélagið, jafnvel áður en þeir hófu Íslandsmeistarahrinuna, en nú á síðustu árum hefur það verið þveröfugt. Valur hefur t.a.m. unnið síðustu 3 deildarleiki liðanna í röð, og skemmst er að minnast dísæts sigurs í Kaplakrikanum í fyrra, sem svo gott sem innsiglaði sigur Vals á Íslandsmótinu 2007. Á meðan ágætis stígandi hefur verið í leik Vals, eftir frekar sjoppulega byrjun, virðast komnar harðsperrur í fimleikafélagsmenn, sem skíttöpuðu á móti Breiðablik í síðustu umferð, og stefnir því allt í góðan Valsleik á Hlíðarenda í kvöld. Hr. Smith, Hr. Mortensen og Hr. Aðalsteinsson eru sem fyrr frá vegna meiðsla, en til allra lukku er meistari Benediktsson í hópnum auk þess sem varpa má öndinni léttar yfir því að Atli Sveinn skuli aftur vera kominn í liðið. Það er þó von undirritaðs að Einar Marteins fái að byrja leikinn, enda á hann ekkert minna skilið. Sömuleiðis væri gaman að sjá Albert Ingason hefja leikinn, og jafnvel taka upp þráðin við markaskorun á Hlíðarenda, og hafa hann og Helga fremstan. Þetta verður þó spennandi að sjá. Ætla má að Hafnfirðingar, Hlíðabúar og miðbæingar fjölmenni á Hlíðarenda í kvöld, og brýnum við aftur fyrir völsurum að fjölmenna í stúkuna og skilja helst ekkert pláss eftir fyrir Hafnfirðinga. Það skiptir gríðarlegu máli að við fjölmennum í kvöld og sýnum þeim að Hlíðarendi sé flottasti heimavöllur landsins, og illlur heim að sækja. Allir í rautt, allir á völlinn, allir að öskra Áfram Valur !
 |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. júní 2008 15:17 |