• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Hitt og þetta
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 18:36
Smá uppfyllingarpælingar svona rétt á milli leikja.


Íslandsmeistaratitill í augsýn

Kvennaliðið færðist skrefinu nær enn einum titlinum með öruggum sigri á Breiðablik í vikunni. Yfirburðir þessa liðs eru magnaðir og reyndar svo miklir að það er hálf erfitt að selja almennum áhorfendum þessa leiki sem spennandi viðburði. Oft gerist það að þegar lið ná slíkum fádæma yfirburðum að misvitrir menn taka upp á að gagnrýna þau fyrir of mikla kappsemi. Það sama hlýtur þó að gilda í kvennaboltanum og karlaboltanum þegar þar hafa komið fram vísar að einveldum. Það er hinna liðanna að mæta hærri stöðlum. Valur er eitt af fáum liðum sem leggur metnað í sitt kvennalið og mega Valsarar vera virkilega stoltir af þessu frábæra liði.

Fylkir að sogast í ræsið


Fylkismenn eru ekki upplitsdjarfir þessa dagana
Fylkismenn eru ekki upplitsdjarfir þessa dagana
Árbæingar eru ekki þeir upplitsdjörfustu þessa dagana. Einn stuðningsmanna Fylkis hefur nú farið þess á leit við Valsara.is að myndin fræga af hinum litríka þjálfara Leifi Garðarssyni verði endurbirt enn á ný. Sitt sýnist hverjum í þessum efnum.  Eftir að fylkismenn.is  misnotuðu myndina fyrir leik Vals og Fylkis á dögunum eru margir farnir að efast um virkni hennar.

Hvað sem mönnum finnst um Leif Garðarsson þá verður að segjast að hann er einn af litríkari þjálfurum deildarinnar. Leifur getur verið óþolandi montinn eftir sigurleiki en að sama skapi hlægilega tapsár þegar hans menn lúta í gras. Slíkir menn gæða deildina mun meira lífi en upptrektir klisjukarlar á borð við Kristján Guðmundsson hjá Keflavík. Willum okkar fellur svo sem stundum í þá grifju en hann á þó sín kostulegu upphlaup inn á milli. *

Kjaftasagan
Talandi um upphlaup Willums þá hvíslaði Gróa gamla því að okkur að Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport var ekki par sáttur eftir leik Vals og HK á dögunum. Willum tók þrumuræðu yfir sínum mönnum og á meðan beið Gaupi óþreyjufullur eftir viðtali. Eitthvað leiddist gamla Víkingnum þófið og tók víst upp á að hóta stjórnarmönnum Vals öllu illu ef hann fengi ekki viðtal á næstu fimm mínútum. Ekki varð Guðjóni kápan úr því klæðinu en sagt er að hann sé ekki efstur á jólakortalista Knattspyrnudeildar Vals eftir þessi viðskipti. Magnús Gylfason og Hörður Magnússon göntuðust með það í markaþætti síðustu umferðar að Valur hafi unnið Blika til þess eins að Stöð 2 Sport fengi örugglega viðtal.
(Um sannleiks gildi þessarar sögu á það sama við og um annað efni sem Gróa gaukar að okkur.)

Landsliðið
Ólafur Jóhannesson landsliðseinvaldur hefur ekki leynt hrifningu sinni af leikmönnum Vals þegar kemur að landsliðsvali. Æfingaleikurinn við Wales í sumar þar sem fimm Valsmenn voru í hópnum kom sér ekki sérstaklega vel fyrir deildarformið hjá okkar mönnum á meðan gamlir lærisveinar Ólafs í FH hlutu ekki náð fyrir hans augum. Kannski hefur það hjálpað til við að hækka verðmiðann á Pálma Rafni og Birki Má. Kjartan og Bjarni Ólafur eru í hópnum fyrir leikinn gegn Skotum en valið á þeim síðarnefnda er hálf sérstakt. Formið á Bjarna hefur verið ekki verið með besta móti undanfarið og í síðasta leik fór hann meiddur út af gegn Breiðabliki. Kjartan er jafnan umdeildur en mörgum sjálfskipuðum "sérfræðingum" (lesist Guðmundur Hreiðarsson og smjörklípu vinur hans Þorsteinn Guðmundsson) hættir til að einblína á neikvæðu þætti hans. Kjartan á að jafnaði einn til tvo gloríu leiki á ári (Cork City í fyrra, Breiðablik á heimavelli árið þar áður) og útspörkin hafa aldrei verið hans sterka hlið. Fyrir utan það er hann jafnbesti markvörður deildarinnar og fær Óli Jó prik í kladdann fyrir að koma auga á það.

Image

Hin kjaftasagan
Síminn hringdi hjá ónefndum fréttamanni á Stöð 2 Sport þegar hann var með Martin O'Neil í viðtali. Hann á að hafa svarað. Virkileg fagmennska.

Inni íþróttirnar
Það styttist í að parket íþróttirnar taki við skemmtikeflinu af fótboltanum. Valur sendir meistaraflokka í efstudeild handbolta karla og kvenna auk körfubolta kvenna. Það styttist vonandi í að meistaraflokkur karla í körfunni skipi sér á nýjan leik á meðal þeirra bestu þar sem keppnislið Vals eiga heima. Munið ársmiðana.



*Uppfært: Leifur Garðarsson var rekinn nú undir kvöldmatarleytið.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 22:25