• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Fjölnir í kvöld
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 14. maí 2009 10:14
Fyrrum Fjölnismaðurinn þarf að vera beittur í kvöld
Á meðan sorphirðumenn hins íslenska fjölmiðlasamfélags reyna að gera sér mat úr minnsta tilefni þurfa leikmenn Vals að einblína á næsta verkefni liðsins sem er heimaleikur gegn Fjölni.  Fjölnir tapaði sínu fyrsta leik gegn KR 2-1 eftir að hafa komist yfir og ljóst er að Jónas Grani markmannsbani mun verða hvaða liði sem er skeinuhættur í sumar. Valsmenn verða aftur á móti að hrista af sér sliðruorðið eftir slakt undirbúningstímabil og herfilega frammistöðu gegn Fylki. Nú er ekkert sem heitir og vonandi blæs Willum til sóknar í kvöld enda þrjú stig eina ásættanlega niðurstaðan. Leikurinn hefst klukkan 19.15.

Digg    Facebook   
Besservisserar (5)add comment

Trautman said:

...
Já, það var allt annað að sjá liðið í kvöld. Það var líka mjög gaman að sjá þessar breytingar á liðinu og mér finnst Willum vera gefa viss skilaboð með þessu útspili: Ef þú stendur þig ekki þá ferðu á bekkinn! Einfalt mál.

Marel var alveg feikilega öflugur. Flottar móttökur, hélt bolta vel, og gerði bara allt sem góður Center á að gera. Helgi stóð einnig fyrir sínu í kvöld og svo voru Ólafur Páll og Habbó nokkuð sprækir inn á milli.
Maður bara vonar það að Habbó haldi uppteknum hætti því maður hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum með spilamennsku hans undanfarin 2 tímabil og þá sérstaklega á því seinasta.
23:54 | 14 maí | 2009

Valþór said:

...
Habbó var að leysa margt mjög vel, vonandi verður þetta hans tímabil eftir að hafa verið lengi að ná sér eftir fótbrotið. Helgi var góður, Ian Jeffs og Óli Palli voru líka mjög traustir.

En rosalega yfirburði hafði Marel á vellinum, hann var langsamlega besti maðurinn, og er vonandi að Hlíðarendavúdúið sem hélt Hr. Benediktssyni svo vel frá meiðslum, geri slíkt hið sama fyrir Marel.
Ef Marel spilar svona áfram, þá er augljóst að þarna fer langbesti leikmaður deildarinnar.
00:36 | 15 maí | 2009 | url

toti said:

...
Mér fannst liðið frábært í kvöld. Marel ótrúlega góður og allt annað að sjá strákana. Ég var líka mjög ánægður með að Sigurbjörn sé kominn inn því hann er auðvitað mjög góður þó gamall sé og styrkir þetta alltaf.
07:34 | 15 maí | 2009

Trifon said:

...
Það er alltaf kostur að sjá Hr. Val -Sigurbjörn Hreiðars á miðjunni. Þá veit maður að amk einn maður mun spila með hjartanu, hann er td alltaf besti maður Vals á móti KR
09:07 | 15 maí | 2009

Páll said:

...
Vorum mjög þéttir og Marel er náttúrulega bara snillingur.
Mér finnst samt að mætingin mætti hafa verið betri.
Það er til skammar að það mæti færri á Valsleik heldur en á Þróttur - Stjarnan.
Það eru fjölmargir Valsmenn út um allan bæ, mætið á völlinn!
Mér finnst einnig að Stuðararnir mættu vera öflugri, það heyrist allt f lítið í ykkur,
11:45 | 15 maí | 2009 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 14. maí 2009 10:15