|
• Atli It is perfect that we can take the mortgage loans and that o... |
| 15:51, 15.07.2011 |
| ChristianAnnie18 |
|
• Dagskránni lokið Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ... |
| 12:04, 26.10.2010 |
| Ási Sveinss |
|
• Dagskránni lokið Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu... |
| 16:20, 09.10.2010 |
| Rauður |
|
• Dagskránni lokið nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru... |
| 20:18, 01.10.2010 |
| Igor |
|
• Dagskránni lokið Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k... |
| 19:19, 01.10.2010 |
| Valsarinn |
| Fjandvinir að hverfa? 2 |
| Fimmtudagur, 23. október 2008 11:21 | ||||||
|
Síðuskrifari gerðist sekur á dögunum um að fá kökkinn í hálsinn vegna ótímabærar andlátsfregnar af Knattspyrnufélaginu Fram. Samningaviðræður Fram við Fjölni sigldu í strand m.a. vegna þess að verðandi Grafarholtsklúbburinn gerði þá kröfu á Grafarvogsklúbbinn um að sameinað félag myndi heita Fram. Óneitanlega eru ákveðnar spurningar sem vakna varðandi hvað það var sem hratt þessum viðræðum af stað og hvert framhaldið verður hjá öðrum af helstu erkifjendum Vals. Er Fram kannski á leiðinni í þrot? Menn hljóta að spyrja sig hvað það var nákvæmlega sem Fram kom með til samningaborðsins í viðræðunum við Fjölni annað en 100 ára gamalt nafn og vilyrði frá borginni um uppbyggingu í Grafarholti. Fréttir af lóðaskilum í hverfinu hafa eflaust áhrif á flutning Fram en líklega þýðir þetta að uppbygging tefst eitthvað. Fjölnir er með lið í Landsbankadeild karla (blessuð sé minning hennar), með fjölmennustu yngriflokka landsins, helmingi fleiri íþróttadeildir en Fram og komnir vel á veg með að eiga fullbúna keppnisaðstöðu. Áttu Grafarvogsbúar að falla í stafi og gefa allt sitt uppbyggingarstarf á silfurfati í skiptum fyrir vörumerkið Fram? Upp til hópa er Íslendingar einfaldlega of nýjungagjarnir til að slíkt teljist sem meiriháttar bitbein. Nokkrir stjórnarmenn í Val voru vel að merkja með svipaðar grillur í kollinum rétt upp úr síðustu aldamótum. Málið var komið svo langt að Fjölnir og Valur sendu sameiginlegt körfuboltalið í úrvalsdeild karla einn vetur. Grafarvogsbúar virtust ekkert sérstaklega æstir í að fá félag með sögulegahefð á bakvið sig á þeim tíma frekar en þeir eru í dag. Hugmyndin var því jafn gölluð þá og hún er nú. Forsendurnar eru ekki heldur það ólíkar. Á spjallsíðu Fjölnis var sterk andstaða við sameiningu en erfiðara er að ráða í hug Framara. Eftir að Fram opnaði nýja heimasíðu í sumar hefur ekki verið boðið upp á spjallborð fyrir stuðningsmenn liðsins og því ekki gott að segja til um hversu mikil, ef þá einhver, samstaða um sameiningu var þeirra á meðal. Einnig hefur verið rætt um að félögin hyggðust aðeins ætla að hafa sameiginlega aðstöðu. En hvers vegna átti Fram að eiga samleið með Fjölni um keppnisvelli og íþróttahús þegar Vesturlandsvegurinn klífur í sundur Grarfarholt og Grafarvog? Væri ekki nærtækara að Fram myndi halla sér upp að Fylki í þessum efnum fyrst þeir eru að flytja á annað borð? Árbæjarliðið er með hug á að færa starfsemi sína úr Lautinni og nær Rauðavatni og þar með komið í næsta nágrenni við nýja Framhverfið. Kannski er enn grunnt á því góða milli Fram og Fylkis en þeir síðarnefndu höfðu lengi vel horft hýru auga til Grafarholtsins sem framtíðar Fylkishverfis. Á síðustu árum hefur KSÍ komið á fót leyfiskerfi að kröfu Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA. Samkvæmt því eru lagðar ákveðnar skyldur á félögin í efstudeild og 1. deild (og getum við plís farið að kalla þetta einfaldlega 1. deild og 2. deild aftur). Ein megin stoðin í leyfiskerfinu lýtur að fjárhagslegum forsendum. Auknar kröfur eru um gegnsæi í bókhaldi og að félögin geri upp laun við starfsmenn sína og skammtímaskuldir fyrir tilskildan tíma í bókhaldsárinu. (Nánar er hægt að lesa til um leyfiskerfi KSÍ hér; http://www.ksi.is/leyfiskerfi/Leyfishandbok/ og fjárhagslega hluta leyfiskerfisins hér; http://www.ksi.is/media/leyfiskerfi/leyfishandbok/210FjarhagurRe03.pdf ). Í sumar var Fram með fjóra útlendinga í liðinu en Valur skar félagið reyndar úr snörunni með því að taka yfir samning við Henrik Eggerts (sem var sennilega versti díll hjá Val síðan Lárus Guðmundsson var fenginn). Aðrir aðkomumenn eins og Auðun Helgason, Reynir Leósson* eða Hjálmar Þórarinsson fóru varla til Fram upp á vatn og brauð frekar en útlendingarnir. Við það bætist að Þorvaldur Örlygsson var í fullu starfi sem þjálfari. Þetta er vel að merkja einungis knattspyrnulega hliðin. Handboltinn kostar án efa einnig sitt með Viggó Sigurðsson sem æðsta prest. Launakostnaðurinn er því augljóslega umtalsverður og spurning hvernig Fram fer að því að brúa bilið miðað við núverandi aðstæður. Stoðir, áður FL Group, voru helsti bakhjarl Fram. Án efa eru greiðslur vegna auglýsingastyrkja ekki fremstar í forgangsröð fyrirtækisins um þessar mundir. Stjórnarmenn Fram hafa rætt það opinberlega að áhorfendatekjur hafi valdið vonbrigðum í sumar en félagið þarf auk þess að borga leigu af Laugardalsvelli fyrir hvern heimaleik. Ef tekjur af bæði miðasölu og frá styrktaraðilum bregðast er varla í mörg hús að venda fyrir Fram. Hvað þá heldur þegar Fjölnismenn eru ekki tilbúnir að skjóta yfir þá skjóli. Hvað gerist þá ef Fram tekst ekki að uppfylla leyfiskröfur KSÍ í ljósi fjárhagslegra vandræða? Félagið náði sínum besta árangri á síðasta tímabili í meira en einn og hálfan áratug og vann sér í leiðinni inn þátttökurétt í UEFA keppninni á næsta ári. Miðað við þjóðfélagsaðstæður er Fram varla eina liðið sem er hugsanlega í miklum vandræðum og því hlýtur að teljast líklegt að KSÍ haldi aftur af refsivendinum ef til kastanna kemur. Reglugerðarbákn leyfiskerfis KSÍ gerir aftur á móti meiri kröfur til liða sem vinna sér inn þátttöku á Evrópumótum og geta þær leitt til neitunnar á þátttökuleyfi. KSÍ þarf ofan á allt annað að svara til UEFA þannig að erfiðara er að sópa óþægilegum tölum undir teppi en kannski annars staðar í þjóðfélaginu. Við næst-verstu hugsanlegu aðstæður gæti Fram verið dæmt niður í 1.- eða jafnvel 2. deild og misst þar með þátttökuréttinn í Evrópukeppni. Við verstu aðstæður yrði Fram hreinlega þurkað út af kortinu og punktur settur aftan við 100 ára sögu fyrsta stórveldis íslenskrar knattspyrnu. Eða er kannski bara allt í góðum málum hjá Fram? Þeir voru bara að spila smá póker eins og gengur og gerist (gerðist) í viðskiptalífinu. Taka stöðutékk á verðandi nágrönnum sínum í Fjölni áður en þeir tjalda við hliðina á þeim og undirbúa yfirtöku á austasta hluta Reykjavíkur. Hver veit. ------ *Greinin var skrifuð áður en félagaskipti Reynis Leóssonar áttu sér stað. Vegna bilunnar á heimasíðu birtist hún ekki fyrr. Í framhaldi af félagsskiptum Reynis vakna enn fleiri spurningar um stöðu Fram. Síðustu ár hefur Valur pungað út fáheyrðum upphæðum til Fram fyrir þá Sigfús Pál Sigfússon og Helga Sigurðsson. Stuðningsmenn Fram eru löngu orðnir brjálaðir á þessu og stjórnarmenn hljóta að hafa fundið fyrir þrýstingi um að láta ekki fleiri afreksmenn skipta yfir á Hlíðarenda. Reynir var samningsbundinn Fram en fer engu að síður frítt yfir til Vals. Ef notuð er hundarökfræði hlýtur að vera hægt að álykta að Fram hafi einfaldlega ekki getað staðið við gerða samninga og þeir þar með fallið úr gildi. Á heimasíðu Fram hefur rekstrarfélag meistaraflokks sent frá sér svo hljóðandi tilkynningu: "Reynir Leósson hefur óskað eftir því að vera leystur undan samningi við FRAM Fótboltafélag Reykjavíkur og niðurstaðan liggur fyrir. Við þökkum Reyni fyrir hans framlag síðustu tvö ár. " Þarna er nákvæmlega ekkert sagt. Stuðningsmenn Fram fá fulla samúð frá völsurum.is því framtíð félagsins virðist vera álíka óskýr og staða íslensku bankanna. Félagið býður heldur ekki upp á vettvang til að málin séu rædd. Er nema von að menn spyrji hvort Fram sé hreinlega að hverfa? Besservisserar (6)
![]()
Johnson
said:
|
|
... Hann er nú orðinn 35 ára kallinn, alveg komin tími fyrir Val að treysta öðrum mönnum fyrir sóknarleiknum, efa ekki um að hann sé góð búbót fyrir KR en ég veit s.s ekki hvort það verði sem leikmaður eða bara aðalega sem góður lærifaðir fyrir yngri leikmenn. |
|
... Já það er eins og allir séu bara nokkuð sáttir með þetta í Val. Gummi þjónaði Val vel en hefði kannski ekki bætt miklu við þetta næsta sumar og fínt fyrir Kr-ingana að fá að kveðja hann. Svo er verið að segja að Helgi SIg sé óánægður með launalækkun kannski það séu fleiri beitingar á leiðinni. |
|
... Það er altalað að Helgi og fleiri eru ósáttir. Vandamálið er að þeir geta ekki farið neitt annað til að fá þau laun sem þeir vilja. Eina liðið sem er ekki með sína bakhjarla á kúpunni þessa dagana er FH. |