• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Enn einn Valsarinn í landsliðið
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008 14:52
Sífellt fleiri dæmi benda til þess að Ólafur Jóhannesson sé búinn að vera helsti aðdáandi Vals síðustu árin en í dag tilkynnti landsliðsþjálfarinn hóp sinn fyrir æfingaleik gegn Möltu í næstu viku.


Mesta athygli vekur innkoma Garðars Jóhannssonar sem sló í gegn hjá Val sumarið 2006. Knattspyrnuferill Garðars hafði virst næstum ónýtur meðan hann lék hjá KR undir stjórn Teits Þórðarsonar en vistaskiptin yfir á Hlíðarenda blésu heldur betur lífi í hæfileika hans. Garðar kom eins og stormsveipur inn í Valsliðið og var búinn að spila sig í atvinnumennsku í Noregi stuttu síðar þar sem hann hefur staðið sig með prýði allar götur síðan.

Bjarni Ólafur er einn af tveimur leikmönnum úr Landsbankadeildinni sem komast í hópinn en hinn er Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson. Bjarni hefur verið við æfingar í Noregir undanfarið og ekki loku fyrir það skotið að hann komist í atvinnumennsku á nýjan leik.

Aðrir Valsarar sem eru að verða fastamenn í landsliðinu eru þeir Birkir Már Sævarsson og Pálmi Rafn Pálmason en báðir urðu þeir Íslandsmeistarar með Val í fyrra. Eiður Smári Guðjohnsen fær hins vegar frí í þetta skiptið.

Fleiri Valsmenn gætu verið í sigtinu hjá landsliðseinvaldinum en hver veit nema að hann fari að velja fyrrum leikmenn frá Val eins og þá Ara Frey Skúlason eða Garðari Bergmann Gunnlaugsson á næstu misserum.

Digg    Facebook   
Besservisserar (4)add comment

bj.bj. said:

...
Bíddu... er eitthvað að gerast?
19:17 | 26 febrúar | 2009

toti said:

...
Jaja nú eru nokkrir dagar í að fótboltinn byrji. Hvernig væri að fara yfir liðið okkar og segja fólki frá því hvað er að gerast.
Hverjir hafa verið að spila, hverjir eru meiddir, hverjir eru líklegir, hvernig fer í sumar, breytingar frá í fyrra osfrv.
Nú væri gott að fara koma hlutum í gang.
Maður þarf að fara á KR spjallið til að fá upplýsingar um íslenska boltann. Meira að segja les maður meira um Val þar en á Valur.is og Þessari síðu.
Auðvitað ömurleg staðreynd en sönn.
Koma nú kæru Valsmenn.
08:33 | 21 apríl | 2009

tom said:

...
hvaða doði er yfir valsmönnum????
11:19 | 02 maí | 2009

Pétur said:

...
það er einhver dvali í Valsmönnum greinilega. Um að gera að vekja þá
17:37 | 04 maí | 2009

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. nóvember 2008 14:52