• Decrease font size
  • Reset font size to default
  • Increase font size

Nýjustu athugasemdir

Atli
It is perfect that we can take the mortgage loans and that o...
15:51, 15.07.2011
ChristianAnnie18

Dagskránni lokið
Sorglegt ef rétt reynist. Skil samt vel að menn geti ekki ...
12:04, 26.10.2010
Ási Sveinss

Dagskránni lokið
Nú hljótum við að fá fullt af nýjum leikmönnum sem mu...
16:20, 09.10.2010
Rauður

Dagskránni lokið
nei nei nei, enga svona vitleysu að hætta ! Pistlarnir eru...
20:18, 01.10.2010
Igor

Dagskránni lokið
Takk fyrir allt strákar. Ég hef fulla trú á að þið k...
19:19, 01.10.2010
Valsarinn

Nafn:

Netfang:

Eigi skal gráta...
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 05. júní 2008 17:07
Jæja, Valsliðið hefur ekki byrjað mótið í ár á þann hátt sem við stuðningsmenn hefðum helst kosið, og 2 sigrar í 5 leikjum finnst okkur flestum helst til súrt í broti, enda var væntingavísitala valsara í hæstu hæðum áður en blásið var til leiks í fyrstu umferð í Keflavík fyrir nokkrum vikum.

Hinsvegar þýðir ekkert að tuða sig aftur í steinaldir eða detta í einhverja Vesturbæjartaugaveiklun yfir þessu, betra er að taka sig saman í andlitinu, skeina sér, hysja upp um sig og gyrða í brók, og mæta tvíelfdur til næsta leiks, en þetta á vitaskuld bæði við um Valsliðið sem og stuðningsmenn þess. Núna á sunnudagin verður leikur nr.2 á nýja Hlíðarenda spilaður, og þeir sem mættu á opnunarleikinn muna alveg hversu skemmtileg stemmingin þar var, það er einfaldlega yndislegt að vera kominn heim. Pálmi Rafn lét m.a. hafa það eftir sér eftir leik, að Hlíðarendi "...verður gryfja...", og það er eins gott að við gerum þann sómapilt ekki að lygara, heldur bökkum þessi orð upp og mætum kolvitlaus til leiks á móti græningjunum úr Kópavogi. Það er eiginlega að duga eða drepast fyrir leik- og stuðningsmenn Vals, sunnudagsleikurinn verður að vinnast, og þó að Blikar séu með sprækt lið, eiga ríkjandi Íslandsmeistarar einfaldlega að klára dæmið. Við stuðningsmenn verðum líka að mæta spræk til leiks, hafandi með kappið og fegurðina í hárfínu jafnvægi að forskrift Sr.Friðriks.

Eins og áður, munu stuðningsmenn Vals hittast á pöbbnum í keiluhöllinni fyrir leik, uppúr klukkan 11 ( Íslenska stundvísin í hávegum höfð að sjálfsögðu ), og eins og öllum ætti að vera orðið ljóst hafa Stuðarar græjað sértilboð fyrir stuðningsmenn Vals á mat og veigum, og því ættu engir að þurfa að rölta niðrá völl svangir eða þyrstir. Á pöbbnum verða svo málin rædd, söngvar sungnir og almenn uppgírun fyrir leikinn.
Klukkan 13 ætlar svo hetjan Jón Grétar Jónsson að kíkja og ræða málin, segja sögur og rifja upp gamla tíma. Hersingin röltir svo öll niðrá völl rétt fyrir leik, enda stutt að fara.

En semsagt, nú er okkur ekki til setunnar boðið, við þurfum öll að mæta og styðja okkar menn, og helst að taka með okkur vin / vinkonu. Því fleiri því betra.
Sérstaklega skal það tekið fram, að þessir hittingar uppá pöbb í keiluhöllinni eru öllum opnir, allir velkomnir og öllum vel tekið. Við erum jú öll valsarar.

Upphitunarpistill frá okkur strákunum kemur þegar nær dregur leik, en við sjáumst öll í gírnum á sunnudaginn.

Digg    Facebook   
Besservisserar (0)add comment

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy