|
Miðvikudagur, 02. júlí 2008 11:14 |
|
Þrátt fyrir að umfjöllun um Þróttara leikinn hafi dottið upp fyrir hjá okkur á valsarar.is þá hefur Knattspyrnufélagið Valur síður en svo legið í dvala síðustu daga. Góður 0-3 útisigur vannst loks gegn sprækum Þrótturum á sunnudag og meistaraflokkur kvenna lagði svo Fylki 4-1. Í gær drógumst við gegn martraðarliðinu Bade frá Hvíta Rússlandi í Meistaradeildinni en handan við hornið bíður stórlið Anderlecht frá Brussel í Belgíu, ekki ónýtt það.
Annað kvöld fer meistaraflokkur karla í heimsókn til Breiðabliks í Kópavogi. Áfram haldandi þátttaka í Visa bikarkeppninni er í boði fyrir sigurvegarann en heil þrjú ár verða liðin í haust síðan við unnum þá ágætu keppni síðast.
Séu einhverjir Valsarar að hugsa um að fara út fyrir Elliðaár fyrstu helgina í júlí er þeim bent á að mótanefnd KSÍ hefur sett borgarslaginn við Fram á sunnudagskvöldið klukkan 19.15.
 |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. júlí 2008 14:23 |